Fréttablaðið - 26.06.2014, Blaðsíða 58
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 46
Það eina sem vakir
fyrir okkur er að tryggja
fullnægjandi lýsingu á
Laugardalsvelli.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ.
SPORT
MANNVIRKI Þau fyrirtæki sem ekki
fengu kost á að gera Knattspyrnu-
sambandi Íslands tilboð í nýja
flóðlýsingu á Laugardalsvelli eru
ósátt við að verkið hafi ekki farið í
útboð og skoða nú réttarstöðu sína.
Þetta segir Arnar Þór Hafþórsson,
sölu- og markaðsstjóri hjá Jóhanni
Ólafssyni og co.
„Okkar lögfræðingar eru að
kynna sér hvaða úrræði við höfum
og hvaða líkur eru á því að málið
yrði tekið fyrir. En þetta er eitt-
hvað sem við höfum skoðað,“ segir
Arnar Þór en fyrirtækið er ekki
það eina sem er í þeirri stöðu sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Reykjafell, Rönning og Ískraft
munu einnig vera að skoða málin.
Þann 4. júní greindi Fréttablað-
ið frá því að ný flóðlýsing Laugar-
dalsvallar hefði ekki farið í útboð
en Geir Þorsteinsson, formaður
KSÍ, segir að ekki hafi gefist tími
til þess.
„Þessi mál þurfti að afgreiða
fljótt og vel,“ sagði Geir þá en
KSÍ hafði fengið athugasemdir
frá Knattspyrnusambandi Evr-
ópu, UEFA, um að flóðlýsing vall-
arins stæðist ekki kröfur og að
hana þyrfti að lagfæra fyrir fyrstu
leiki íslenska landsliðsins í undan-
keppni EM 2016 í haust.
Engin lög brotin
Verkið hefði þurft að fara í útboð
samkvæmt þeim viðmiðunar-
fjárhæðum sem tilgreindar eru
í lögum um opinber innkaup en
kærunefnd útboðsmála hefur áður
úrskurðað að KSÍ sé ekki skylt að
fara eftir lögunum þar sem sam-
bandið telst ekki opinber aðili.
Kaupin eru þó að hluta fjár-
mögnuð með styrk frá Reykja-
víkurborg en S. Björn Blöndal,
formaður borgarráðs, segir að
borgaryfirvöld séu þess fullviss
að lög hafi ekki
verið brotin.
„Hverju sem
öðru líður mun
Reykjavíkur-
borg borga
innan við helm-
ing kostnað-
arins,“ segir
Björn en bend-
ir á að nákvæm
ú t fæ r s l a á
greiðslufyrirkomulagi borgar-
innar til KSÍ sé enn í skoðun hjá
borginni.
„Það var farið ítarlega yfir þetta
á sínum tíma enda erum við ákaf-
lega passasöm með innkauparegl-
ur borgarinnar,“ segir Björn.
Upphaflega stóð til að málið yrði
tekið fyrir á fundi ráðsins þann
8. maí en þáverandi formaður og
núverandi borgarstjóri, Dagur B.
Eggertsson, tók málið af dagskrá.
Björn segir að málið verði ekki
tekið fyrir á fundi borgarráðs í
dag en vonast til að það verði gert
á næstu vikum.
„Þetta er mál sem er ekki klárt
að öllu leyti en verður upplýst með
gegnsæjum og góðum hætti þegar
þar að kemur.“
Geir Þorsteinsson vildi ekki
tjá sig um málið með ítarlegum
hætti í samtali við Fréttablaðið
í gær. „Það eina sem vakir fyrir
okkur er að tryggja fullnægj-
andi lýsingu á Laugardalsvelli
fyrir næstu keppnisleiki íslenska
landsliðsins í knattspyrnu,“ sagði
Geir.
eirikur@frettabladid.is
Íhuga að kæra KSÍ og borgina
Fyrirtæki sem ekki fengu tækifæri til að bjóða í fl óðlýsingu KSÍ við Laugardalsvöll eru að skoða réttarstöðu
sína. Formaður borgarráðs telur ekki að lög um opinber innkaup hafi verið brotin.
AUTT MASTUR Arnar Þór Hafþórsson hjá Jóhanni Ólafssyni og co. er óánægður með hvernig staðið var að kaupum á nýrri
flóðlýsingu við Laugardalsvöll. Í baksýn má sjá mastur við Laugardalsvöll sem á að bera flóðlýsinguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
S. BJÖRN
BLÖNDAL
ÚRSLIT
HM 2014 Í BRASILÍU
E-RIÐILL
HONDÚRAS - SVISS 0-3
0-1 Xherdan Shaqiri (6.), 0-2 Xherdan Shaqiri (31.),
0-3 Xherdan Shaqiri (71.).
EKVADOR - FRAKKLAND 0-0
LOKASTAÐAN
Frakkland 3 2 1 0 8-2 7
Sviss 3 2 0 1 7-6 6
Ekvador 3 1 1 1 3-3 4
Hondúras 3 0 0 3 1-8 0
F-RIÐILL
NÍGERÍA - ARGENTÍNA 2-3
0-1 Lionel Messi (3.), 1-1 Ahmed Musa (4.), 1-2
Lionel Messi (45.+1), 2-2 Ahmed Musa (47.),
Marcos Rojo (50.).
BOSNÍA - ÍRAN 1-3
0-1 Edin Dzeko (23.), 0-2 Miralem Pjanic (59.), 1-2
Reza Ghoochannejhad (82.), 1-3 Avdija Vrsajevic
(83.).
LOKASTAÐAN
Argentína 3 3 0 0 6-3 9
Nígería 3 1 1 1 3-3 4
Bosnía 3 1 0 2 4-4 3
Íran 3 0 1 2 1-4 1
LEIKIR DAGSINS
G-RIÐILL: Bandar. - Þýskaland kl. 16.00
G-RIÐILL: Portúgal - Gana kl. 16.00
H-RIÐILL: Alsír - Rússland kl. 20.00
H-RIÐILL: S-Kórea - Belgía kl. 20.00
PEPSI-DEILD KVENNA
ÍBV - FH 6-0
1-0 Shaneka Gordon (8.), 2-0 Kristín Erna Sigur-
lásdóttir (10.), 3-0 Kristín Erna Sigurlásdóttir (42.),
4-0 Kristín Erna Sigurlásdóttir (70.), 5-0 Nadia
Lawrance (80.), 6-0 Ármey Valdimarsdóttir (90).
STAÐAN
Stjarnan 6 5 0 1 23-6 15
Þór/KA 6 4 1 1 11-7 13
Fylkir 6 4 1 1 7-3 13
Breiðablik 6 3 1 2 18-6 10
Valur 6 3 1 2 16-11 10
ÍBV 6 3 0 3 12-8 9
Selfoss 6 3 0 3 15-13 9
FH 6 2 0 4 5-27 6
Afturelding 6 1 0 5 6-20 3
ÍA 6 0 0 6 4-16 0
FÓTBOLTI Íris Dögg Gunnarsdóttir, markvörður
Fylkis, hélt enn á ný hreinu í fyrrakvöld þegar
Fylkir vann 2-0 útisigur á Val í 6. umferð Pepsi-
deildar kvenna. Íris hefur haldið hreinu í öllum
leikjum nema einum í sumar og það eru aðeins
Íslandsmeistarar Stjörnunnar sem hafa skor-
að hjá henni. Nýliðar Fylkis sitja líka í 3. sæti
deildarinnar og eru aðeins tveimur stigum á
eftir toppliði Stjörnunnar þegar þriðjungur er
búinn af mótinu.
Fylkismenn ákváðu samt sem áður að semja
við landsliðsmarkvörðinn Þóru B. Helgadóttur
í byrjun júní. Íris Dögg var þá nýbúin að fá á
sig þrjú mörk í tapleik á móti Íslandsmeisturum
Stjörnunnar en hefur haldið marki sínu hreinu
síðan fréttist af komu Þóru.
„Ég reyni helst ekki að hugsa um þetta. Ég
tek bara einn leik í einu og vona það besta,“
sagði Íris Dögg Gunnarsdóttir í viðtali við
Valtý Björn Valtýsson á Stöð 2 í gærkvöldi.
Nú eru liðnar 362 mínútur síðan Íris Dögg
fékk síðast á sig mark í Pepsi-deildinni eða
Borgunarbikarnum. Stjörnukonan Maegan
Kelly skoraði það mark sem og hin tvö sem Íris
fékk á sig í Garðabænum.
„Það hefur verið rosalega góð hvatning til að
skoða hlutina hjá sjálfri sér, gera sitt besta og
auglýsa sig smá,“ segir hún sallaróleg í sam-
talinu við Valtý en Íris býst samt ekki við að
vera mikið lengur hjá Fylki. „Það má ekkert lið
á Íslandi hafa tvo svona góða markmenn þann-
ig það verður eitthvað að gerast,“ segir hún og
brosir. Íris Dögg á því kannski bara tvo deildar-
leiki eftir með Fylki.
„Það getur vel verið að ég fari [þegar glugg-
inn opnast]. Ég hef reynt að standa mig vel
þannig að vonandi opnast einhverjir gluggar
hjá mér. Ég vil halda mér í toppbaráttunni í
Pepsi-deildinni en það hefur enginn haft sam-
band ennþá. Mér líður vel hjá Fylki og ég vil
ekki fara í neinum leiðindum en ég vil ekki
missa af þessu tækifæri og sitja á bekknum
það sem eftir er af sumrinu. Það kemur ekki
til greina,“ segir Íris Dögg Gunnarsdóttir. - óój
Ekki fengið á sig mark síðan Þóra samdi
Íris Dögg Gunnarsdóttir, markvörður Fylkis, sættir sig ekki við að setjast á bekkinn þegar Þóra kemur.
HÉLT HREINU FJÓRÐA LEIKINN Í RÖÐ íris Dögg
Gunnarsdóttir í leiknum á móti Val. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÆST MÖRK Á SIG Í LEIK
Í PEPSI-DEILDINNI:
Íris Dögg Gunnarsdóttir, Fylki
(3 mörk á sig/ 6 leikir) 0,5
Sandra Sigurðardóttir,
Stjörnunni (6/6) 1,0
Sonný Lára Þráinsdóttir,
Breiðabliki (6/6) 1,0
Roxanne Kimberly Barker,
Þór/KA (7/6) 1,2
OFTAST HALDIÐ HREINU
Í PEPSI-DEILDINNI:
Íris Dögg Gunnarsdóttir,
Fylki 5 sinnum
Sonný Lára Þráinsdóttir,
Breiðabliki 4 sinnum
Sandra Sigurðardóttir,
Stjörnunni 3 sinnum
Roxanne Kimberly Barker,
Þór/KA 2 sinnum
FÓTBOLTI ÍBV vann stórsigur á
FH, 6-0, í lokaleik sjöttu umferð-
ar í Pepsi-deild kvenna í gær-
kvöldi þar sem Kristín Erna Sig-
urlásdóttir skoraði þrennu.
Kristín er að komast á fullt
eftir krossbandaslit og er nú búin
að skora fimm mörk í síðustu
tveimur leikjum sínum en hún
setti tvö þegar Eyjakonur lögðu
Aftureldingu í síðustu umferð.
Með sigrinum komst ÍBV upp í
sjötta sæti deildarinnar með níu
stig en verri sögu er að segja af
FH-liðinu sem ekkert hefur getað
undanfarnar vikur.
FH vann fyrstu tvo leiki sína
í deildinni en hefur síðan tapað
fjórum í röð og það sem meira er
hefur liðið ekki skorað mark í síð-
ustu fjórum leikjum.
- tom
Kristín Erna
komin í gang
ÞRENNA Kristín Erna skoraði þrjú mörk
á móti FH. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Fyrir áramót var
búist við því að Radamel
Falcao, framherji Monaco, yrði
stjarna Kólumbíu á HM. En
hann sleit krossbönd og nú
skín stjarna annars Kólumbíu-
manns sem Monaco keypti
fyrir morð fjár skært. James
Rodríguez er að stimpla sig
inn sem eina af skærustu
stjörnum mótsins en hann
skoraði eða lagði upp mark
á 45 mínútna fresti í riðla-
keppninni.Allt um HM á Vísi
Annar Mónakó-milljónamaður að
verða stjarna Kólumbíu á HM
16.00 BANDARÍKIN– ÞÝSKALAND
20.00 S-KÓREA– BELGÍA
Það kemur í ljós í dag hvort Aron Jóhannsson
og félagar hans í bandaríska landsliðinu komist
áfram í 16 liða úrslitin á HM í Brasilíu.
Bandaríkjamenn mæta Þýskalandi og geta
fallið úr keppni með tapi ef Gana vinnur
Portúgal á sama tíma. Eitt stig tryggir þó
Aroni og hans menn alltaf áfram. Belgar
eru búnir að tryggja sér efsta sætið í H-
riðli en Suður-Kórea þarf á litlu krafta-
verki að halda til að komast áfram.
Lionel Messi fór á kostum
í 3-2 sigri Argentínu gegn
Nígeríu í gær. Hann skoraði
bæði mörkin í fyrri hálfleik,
það fyrra á þriðju mínútu og
það síðara í uppbótartíma.
Seinna markið skoraði Messi
beint úr aukaspyrnu en það
er eitthvað sem Maradona
tókst aldrei að gera á HM.
Heldur nú metingurinn áfram
á milli þeirra tveggja. Messi
er markahæstur á HM ásamt
Brassanum Neymar.
STJARNA
GÆRDAGSINS
Lionel Messi
Argentína