Fréttablaðið - 26.06.2014, Side 62
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50
„Það er nauðsynlegt að eiga alltaf
engiferöl inni í ísskáp, með nóg af
klökum og lime. En þegar maður vill
leyfa sér smá þá er whiskey sour í
miklu uppáhaldi.“
Ósk Gunnarsdóttir, dagskrárgerðarkona
á Popp Tíví.
SUMARDRYKKUR ÁRSINS
„Í byrjun árs fór ég til Berlínar til
þess að semja, aðallega til að byrja
á næstu Retro Stefson-plötu. Það
er fínt að vera í Berlín í einangrun
og það komu dagar þar sem ég hitti
engan og kom ekki einu sinni upp
orði. Það var eftir nokkra þannig
daga sem ég var alveg að farast
vegna þess að mér fannst ég ekki
geta sungið, og í miðri sjálfsvor-
kunninni mundi ég eftir þessu ljóði
sem ég hafði lært í kórnum. Svo að
ég tók upp gítar og söng nýja lag-
línu með alls konar hljómum undir.
Og úr varð þetta lag,“ segir Unn-
steinn Manuel Stefánsson, söngv-
ari hljómsveitarinnar Retro Stef-
son, sem hyggst á næstu misserum
gefa út lög undir nafninu Uni Stef-
son. Fyrsta lagið, Enginn grætur,
lítur dagsins ljós í dag.
„Þegar ég er að semja tónlist þá
reyni ég bara að vinna sem mest
án þess að setja mig í stellingar
fyrir eitthvert eitt ákveðið verk-
efni. Svo flokka ég lögin seinna,
oftast með bróður mínum, og við
sjáum hvaða lög henta í hvaða
verkefni,“ útskýrir Unnsteinn,
sem finnst best að semja nýtt efni
í útlöndum eða í Bjarnarfirði.
„Maður má ekki verða of upptek-
inn af því að vera poppstjarna á
Íslandi,“ segir hann og hlær.
„Dagana eftir að ég samdi þetta
lag þá fór ég að skoða gömul lög
sem ég hafði alltaf ætlað mér í
sóló-bankann og prófaði að skrifa
nokkra íslenska texta yfir. Mér
fannst það mjög frelsandi sköpun
með minna álagi á markaðsvitund-
ina sem er innprentuð djúpt í huga
flestra poppara. En það er einmitt
markaðsvitundin sem gerir popp-
tónlist að popptónlist. Hvað selur?
Hvað fær spilun? Því að popptón-
list getur verið hvaða tónlistar-
stefna sem er, á meðan hún selur.
Rammstein var popptónlist þegar
þeir komu hingað 2001 og School-
boy Q er popptónlist í dag, þótt
þetta séu rappari og þungarokks-
hljómsveit ef við pælum í stefn-
unum.“
Fyrsta lag Unnsteins í sóló-
verkefninu er á íslensku, en
hann syngur vanalega á ensku
með hljómsveit sinni Retro Stef-
son. „Mér finnst mjög gaman að
syngja á íslensku, fyrir utan smá
tíma í kringum kosningarnar þar
sem ég fékk algjört ógeð á því
að syngja rómantísk ljóð á sama
tíma og nokkrir einstaklingar í
samfélaginu munduðu hakakross-
inn í vasanum. En svo fattaði ég
að þessi ljóð eru ekki síður hluti
af mínum menningararfi og ég
„má“ alveg syngja þau jafn mikið
og hver annar söngvari. Ég held ég
sé að komast að því að mér líður
best í minni listsköpun þegar ég
geri það sem ég vil, frekar en það
sem fólk heldur að ég ætti að gera.
Maður á aldrei að fara beinu braut-
ina og aldrei að fá sér sæti, því um
leið og þú sest í sófann þá ferðu að
gera leiðinlega tónlist,“ segir Unn-
steinn og hlær.
„Ég hef aldrei þorað að gefa
út sólóefni vegna þess hvað fólk
myndi halda að yrði um bandið.
En ég lít á bandið sem kollektív
af nokkrum krökkum úr Austur-
bæjarskóla sem munu koma saman
næstu áratugina til þess að gleðja
fólk og sjokkera til skiptis. Retro
Stefson er kjarninn. Retro Stefson
er popptónlist,“ segir Unnsteinn að
lokum. olof@365.is
Hefur sólóferil undir
nafninu Uni Stefson
Unnsteinn Manuel er landsmönnum þekktur sem forsprakki sveitarinnar Retro
Stefson en í dag lítur sólóverkefni kappans dagsins ljós undir nafninu Uni
Stefson. Hann vill ekki verða of upptekinn af því að vera poppstjarna á Íslandi.
SEMUR Á ÍSLENSKU Unnsteinn Manuel Stefánsson hefur sólóferil sinn undir
nafninu Uni Stefson í dag með útkomu lagsins Enginn grætur. MYND/SAGA SIG
Þó að Unnsteinn sé um þessar mundir að leggja
mesta áherslu á sólóferilinn segir hann að Retro
Stefson sé ekki hætt. En hljómsveitin er í hvíld.
„Ef ég myndi gera það sem fólk býst við af mér,
þá myndi ég setjast í sófann og semja Glow tíu sinn-
um í viðbót og gefa út plötu og spila á fullt af tón-
leikum. En það væri ekki gaman fyrir mig, hvað
þá krakkana í bandinu. Við spiluðum yfir okkur á
seinasta ári, en það var líka bara gaman. Það bjarg-
aði hljómsveitinni að fá Hermigervil inn og bandið
varð bara betra. En á meðan við spilum alltaf sama
efnið þá verður lítil þróun í tónlistinni, það væri svo
leiðinlegt að gefa út eins plötu og síðast. Allavega
fyrir Retro Stefson, þar sem hver plata hljómar eins
og ný hljómsveit. Mér finnst það mjög mikilvægt
þema. Við erum núna að skipuleggja upptökur á
næstu plötu. Æfingarnar byrja strax í haust og svo
upptökur í janúar. Aðalmálið fyrir bandið er að fá
erlendan upptökustjóra með nýja sýn á verkefnið.“
Lagasmíðarnar fyrir þá plötu hafa verið í gangi
í einhvern tíma, en það er mikilvægt að restin
af bandinu sé aktív á meðan í öðrum verkefnum.
Nokkrir eru í myndlistarnámi og svo eru t.d. Logi
(Young Karin) og Hermigervill með frábærar plöt-
ur á leiðinni.“
Hljómsveitin Retro Stefson komin í hvíld en er ekki hætt
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN
AÐGANG AÐ
TÓNLISTINNI Í ÖLLUM
HERBERGJUM
Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar
stafræna tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú
getur stjórnað frá hvaða síma eða spjaldtölvu sem er.
„Á tónleikaferðalagi með Óla Arn-
alds í Japan á árinu, fór ég á fund
með Íslandsvininum Yuka Ogura,
sem er nokkurs konar framleiðslu-
stjóri þáttanna, því aðstandendur
þáttanna vildu fá mig til að syngja
hluta tónlistarinnar,“ segir tónlist-
armaðurinn Arnór Dan Arnarson,
en hann syngur þrjú lög í nýrri jap-
anskri teiknimyndaþáttaröð sem
ber nafnið Terror in Resonance.
Um er að ræða teiknimynda-
þáttaröð sem er nokkurs konar
spennutryllir með yfirnáttúrulegu
ívafi fyrir börn og fullorðna. „Þau
vildu hafa íslenska tungumálið í
þættinum. Íslenska málið og íslensk
tónlist hefur verið þeim innblástur,“
segir Arnór Dan og hlær.
Hann er þó ekki eini Íslending-
urinn sem kemur að þáttunum
því fleiri íslenskir tónlistarmenn
leggja hönd á plóg. Birgir Jón
Birgisson sá um upptökurnar sem
fram fóru í stúdíóinu Sundlauginni
og Bragi Valdimar Skúlason bjó til
íslenska texta. Magnús Trygvason
Eliassen spilar á trommur, Andri
Ólafsson á bassa, Hilmar Jensson á
gítar og þá stjórnar Borgar Magn-
ússon strengjasveit.
Þættirnir fara í sýningu í júlí og
verða sýndir á einni vinsælustu sjón-
varpsstöð Japans, Fuji TV.
„Ég hef alltaf elskað anima-
teiknimyndir þannig að þetta er
mikill heiður fyrir mig og því svo
sannarlega æskudraumur að ræt-
ast.“ - glp
Íslenska í japönsku sjónvarpi
Arnór Dan Arnarson er á meðal þeirra íslensku tónlistarmanna sem eiga þátt í
gerð tónlistar í nýrri japanskri þáttaröð sem fer í sýningu í júlímánuði.
Í JAPÖNSKU SJÓNVARPI Arnór
Dan Arnarson syngur í nýrri
japanskri þáttaröð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HÆGT AÐ MÆLA HÁSTÖFUM MEÐ
ÖNGSTRÆTI EFTIR LOUISE DOUGHTY
„Höfundur fetar sig hægt og rólega áfram í ótrúlega
flottum stíganda þar til allt kemur í ljós. Bókin er mjög
grípandi, spennandi og ekki síst óvænt, og hægt að
mæla hástöfum með henni.“ – VIKAN
„Þið munuð hugsa ykkur um tvisvar áður en þið hefjið
framhjáhald eftir lestur þessarar sögu“ – FRÉTTABLAÐIÐ
„GRÍPUR ÞIG
HELJARTÖKUM
“
INDEPENDANT