Fréttablaðið - 21.07.2014, Blaðsíða 4
21. júlí 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
2.154 einstaklingar sem búsettir voru á
Íslandi létust árið árið 2013, 1.091
karl og 1.063 kona.
Dánartíðni var 6,7 látnir á hverja
1.000 íbúa og hækkaði frá árinu
2012. Heimild: Hagstofan.is
VINNUMARKAÐUR „Því lengur sem
fólk er atvinnulaust, því erfiðara
getur reynst að komast aftur út á
vinnumarkaðinn. Því er ráðgjöf,
vinnumarkaðsaðgerðir og starfs-
endurhæfing mikilvægur þáttur í
þjónustu við atvinnulausa,“ segir
Karl Sigurðsson, vinnumarkaðs-
sérfræðingur hjá Vinnumála-
stofnun.
Karl segir að konum sem orðn-
ar eru fimmtugar eða eldri reyn-
ist sérstaklega erfitt að finna nýja
vinnu missi þær vinnuna.
Nú eru rúmlega 500 konur
fimmtugar eða eldri skilgreind-
ar langtímaatvinnulausar, þar af
hafa rúmlega 330 verið á atvinnu-
leysisskrá í meira en ár. Karlarnir
eru talsvert færri, nú eru um 400
karlar eldri en fimmtugt skráðir
langtímaatvinnulausir.
Rúmlega sex þúsund manns
voru skráðir án vinnu í júní, í
sama mánuði í fyrra voru atvinnu-
lausir á skrá rúmlega 900 fleiri.
Langtímaatvinnulausum fjölg-
aði um tíu prósent á skrá Vinnu-
málastofnunar frá því í janúar og
þangað til í júní, eða úr 42 pró-
sentum í 52 prósent. Langtíma-
atvinnulausir eru skilgreindir þeir
sem hafa verið án vinnu í sex mán-
uði eða lengur. Langtímaatvinnu-
lausum hefur þó fækkað um tæp-
lega tvö hundruð á tímabilinu en
þar sem atvinnulausum fækkaði
enn meira urðu langtímaatvinnu-
lausir hærra hlutfall af heildinni.
Langflestir langtímaatvinnu-
lausra fá vinnu í gegnum átaks-
verkefni á vegum hins opinbera
auk þess sem fjöldi fær vinnu í
gegnum vinnumiðlun Vinnumála-
stofnunar.
Samkvæmt könnun sem var
gerð í lok síðasta árs meðal ein-
staklinga sem ekki voru lengur
skráðir atvinnuleitendur en höfðu
verið skráðir langtímaatvinnu-
lausir á árunum 2009 til 2013 voru
sex af hverjum tíu komnir í vinnu.
Tíu prósent þeirra voru í námi,
fimm prósent voru í vinnu sam-
hliða námi.
Sautján prósent kváðust enn í
atvinnuleit, sex prósent voru farin
af vinnumarkaði vegna aldurs,
örorku eða langtímaveikinda.
Ætla má að um tvö þúsund
manns klári bótarétt sinn á þessu
ári.
Karl segir að í september á síð-
asta ári hafi orðið skipulagsbreyt-
ingar hjá Vinnumálastofnun sem
feli í sér að þeir sem eru langt
komnir með bótaréttinn fái aukna
ráðgjöf og vinnumiðlun hjá Vinnu-
málastofnun. johanna@frettabladid.is
500 konur yfir fimmtugu
án atvinnu til lengri tíma
Því lengur sem fólk er án vinnu, því erfiðara gengur því að fá nýtt starf. Mun fleiri konur en karlar eru skráðar
langímaatvinnulausar. Þeir sem eru að missa bótarétt sinn fá aukna ráðgjöf og aðstoð hjá Vinnumálastofnun.
➜ Langflestir þeirra sem eru
atvinnulausir til langs tíma
fá vinnu í gegnum átaksverk-
efni á vegum hins opinbera.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60%
LANGTÍMAATVINNULAUSIR SEM HLUTFALL
AF HEILDARFJÖLDA ATVINNULAUSRA
52%
52%
50%
46%
44%
42%
47%
48%
50%
54%
56%
55%
54%
júní ’14
maí ’14
apríl ’14
mars ’14
feb. ’14
jan. ’14
des. ’13
nóv. ’13
okt. ’13
sept. ’13
ágúst ’13
júlí ’13
júní ’13
➜ Aldursskipting langtímaatvinnulausra í júní
85018–29 ára: 1.32730–49 ára: 91250+ ára:
➜ Langtímaatvinnulausir í júní 2014
í 6–12 mánuði 618
í meira en ár 680
karlar 1.298
í 6–12 mánuði1.005
í meira en ár786
kona1.791
FERÐAÞJÓNUSTA Framkvæmdir
hefjast fljótlega við að reisa rafveitu
og vatnsveitu við Dettifoss en það
er einungis fyrsta skrefið í miklum
framkvæmdum sem fyrirhugaðar
eru á svæðinu.
„Stefnan er að nýta náttúruöflin
sem maður fær þarna beint í æð en
án þess náttúrlega að virkja foss-
inn,“ segir Bergur Elías Ágústsson,
bæjarstjóri Norðurþings, í gaman-
sömum tón. Rafveitan verður því
með vindmyllur og sólarsellur.
Hjörleifur Finnsson, þjóðgarðs-
vörður á norðursvæði Vatnajökuls-
þjóðgarðs, segir að Dettifoss sé orð-
inn fjöldaferðamannastaður en enn
vanti upp á að aðstaðan standi undir
því.
Verið er að malbika veginn sem
liggur norðan Dettifoss í átt til
Ásbyrgis en hann er hluti af Dem-
antshringnum svokallaða sem er
vinsæl ferðamannaleið rétt eins og
Gullhringurinn syðra. Stefnt er að
því að Demantshringurinn verði
allur orðinn malbikaður árið 2017.
- jse
Reisa vindmyllur og sólarsellur við Dettifoss og malbika Demantshringinn:
Demantshringurinn pússaður
HINN DRUNGALEGI DETTIFOSS Verið
er að búa svo um einn demantinn í
hringnum að allir geti notið hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BJÖRGUN Landhelgisgæslan held-
ur í sumar áfram í sérverkefni
sem felst í aðstoð við að bjarga
líkamsleifum áhafnar banda-
rískrar björgunarflugvélar sem
fórst fyrir 70 árum á Grænlands-
jökli. Um er að ræða Grumm-
an J2F Duck sjóflugvél, en flak
hennar fannst árið 2012.
„Til viðbótar við þyrlu Land-
helgisgæslunnar eru notuð skip
og grænlenskar þyrlur en að
verkefninu standa Bandaríkja-
her, bandaríska strandgæslan og
skyldar stofnanir,“ segir á vef
Gæslunnar. - óká
Gæslan áfram í sérverkefni:
Bjargað úr flaki
BÚNAÐUR FERJAÐUR Þrjár þyrlur voru
við störf í vikunni. MYND/GÆSLAN
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fimm-
tugsaldri var á laugardag hand-
tekinn á veitingastað í Aðalstræti
þar sem hann hafði snætt steik og
fleira en neitaði að borga.
Samkvæmt lögreglu hefur
maðurinn verið handtekinn dag-
lega fyrir þjófnað, veitingasvik
og önnur brot síðustu tvær vikur.
Þá hefur maðurinn einnig sýnt
af sér ógnandi framkomu gagn-
vart því fólki sem hann svíkur í
viðskiptum.
- ih
Handtekinn á hverjum degi:
Fór út að borða
en borgaði ekki
VIÐSKIPTI Sala á Barbie-dúkkum
dróst saman um fimmtán prósent
á alþjóðlegum markaði á öðrum
ársfjórðungi þessa árs. Heildar-
sala leikfangafyrirtækisins
Mattel, sem framleiðir dúkkurn-
ar, dróst saman um níu prósent
á sama tíma og lækkuðu tekjur
fyrir tækisins um 61 prósent.
Sala á Barbie hefur nú minnkað
um meira en tíu prósent síðustu
fjóra af fimm ársfjórðungum um
heim allan. Ef aðeins er horft til
Norður-Ameríku, þar sem Barbie
var búin til fyrir 55 árum, hefur
salan minnkað um yfir tíu prósent
síðustu átta ársfjórðunga í röð.
Það virðist því vera að vinsæld-
ir Barbie hafi runnið sitt skeið en
sala á öðrum dúkkum Mattel, svo
sem Monster High, hefur verið
góð síðustu ár. - lkg
Lægð hjá leikfangarisa:
Barbie selst illa
Vordís Eiríksdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
HLÝTT FRAM UNDAN en áfram má búast við stöku skúrum eða rigningu S- og
V-lands næstu daga. Vindur yfirleitt frekar hægur og áttin suðlæg. Hiti verður þetta
10-22 stig og hlýjast verður á NA- og A-landi.
11°
3
m/s
12°
2
m/s
15°
3
m/s
11°
8
m/s
Suðaustan
3-10 m/s.
Suðaustan
5-13,
hvassast
S- og SV-
lands.
Gildistími korta er um hádegi
27°
31°
28°
24°
20°
26°
19°
26°
26°
25°
26°
34°
29°
33°
25°
30°
25°
24°
14°
2
m/s
13°
4
m/s
20°
5
m/s
12°
6
m/s
16°
2
m/s
10°
2
m/s
12°
2
m/s
15°
14°
13°
13°
13°
13°
21°
18°
18°
19°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MIÐVIKUDAGUR
Á MORGUN