Fréttablaðið - 21.07.2014, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 21.07.2014, Blaðsíða 14
FÓLK|HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447 Strax eftir hrun árið 2008 jókst eftirspurn eftir notuðum hús-gögnum. Í kjölfarið komust gamlir tekkskenkar, hansahillur og ruggustólar, sem um tíma fóru beint á haugana, aftur í tísku. Nú er svo komið að þessir hlutir seljast á góðu verði og er algengt að sjá þeim blandað við nútímalegri hönnun. Ef vel tekst til gefur það heimlinu hlýju. Þó sumir þykist nú sjá merki um að nýtt 2007 sé í aðsigi virðist ekkert lát á eftirspurn eftir gömlum munum. Þá sér í lagi frá sjöunda áratugnum. Arnar Laufdal Aðalsteinsson, eig- andi verslunarinnar Notað og nýtt sem selur notuð húsgögn í umboðs- sölu, þekkir vel til í þessum efnum en hann hóf sams konar rekstur árið 1992 og rak verslun með notuð húsgögn í fimmtán ár. „Ég hætti svo rekstri árið 2007. Þá var orðið mjög lítið að gera enda langflestir að kaupa nýtt. Ég opn- aði svo aftur fyrir þremur árum og nú er landslagið allt annað. Fólk er miklu meira að sækja í þetta gamla. Margir vilja gera hlutina upp og mér finnst fólk í raun ótrúlega duglegt við það. Það er að pússa, lakka og hvítta og ég veit líka dæmi þess að fólk fari með hlutina á bólstrunarnámskeið.“ Arnar segir sixtíshúsgögn einna vin- sælust og nefnir tekkskenka, -borð og hansahillur. Hann segir þessa hluti fara á fínu verði. Hann segir gömul og þung antíkhúsgögn ekki jafn vinsæl enda séu antíkverslanir að týna tölunni. „En svo er fólk líka að kaupa þetta hefðbundna, sem allir þurfa að eiga, eins og sófa- sett, borð og stóla. Það skýrist ef til vill líka af verðlagi á nýjum húsgögnum en sæmilega vönduð ný sófasett geta hæglega kostað fleiri hundruð þús- und.“ Aðspurður segir Arnar það líka vissulega gott fyrir umhverfið að kaupa notað. „Og svo er það líka þjóð- hagslega hagkvæmt.“ Arnar segist vera með talsvert af fastakúnnum. „Fólk er oft að leita að einhverju sérstöku og lítur þá reglu- lega við. Það fer einn hring og dettur svo að endingu niður á það sem leitað er að. Það er alltaf skemmtilegt og það er gaman að reka svona verslun í dag.“ ■ vera@365.is GEFA HEIMLINU HLÝJU NOTAÐ Í BLAND VIÐ NÝTT Eftirspurn eftir notuðum húsgögnum hefur aukist mikið eftir hrun og þá sér í lagi frá sixtístímabilinu. Í dag þykir fínt að blanda notuðu við nýtt. Landslagið er gjörbreytt frá því á árunum fyrir hrun. ALLT ANNAÐ Arnar rak verslun með notuð hús- gögn frá 1992 til 2007, en þá var orðið mjög lítið að gera. Hann opnaði Notað og nýtt fyrir þremur árum og segir landslagið nú allt annað. HLÝLEGT Það er bókstaflega slegist um suma tekkmuni og algengt að sjá þá í bland við nýrri húsgögn. FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM, FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUM OG EININGUM, GEFA ÞÉR ENDALAUSA MÖGULEIKA Á AÐ SETJA SAMAN ÞITT EIGIÐ RÝMI. 25% AFSLÁT TUR AF ÖLLU M ELDHÚSINN RÉTTINGUM ÚT JÚLÍ AFSLÁTTUR 25 friform.is TUPPERWARE LAGERSALAN heldur áfram í Háholti 23, Mosfellsbæ alla virka daga til 31. júlí 2014 Mikið úrval af ferðavörum í útileguna. 40-60% afsláttur Opið mánudaga-fimmtudaga kl. 13:00-18:00 og föstudaga kl. 13:00-17:00. Mirella ehf – Tupperware umboðið Sími: 586 8050 Netfang: mirella@simnet.is Hinn frægi spænski hönnuður Patricia Urquiola hefur hannað húsgagnalínu úr málmmöskva fyrir spænska merkið Kettal. Hún paraði saman tilbúin og náttúruleg efni til að búa til sófa, borð og stól fyrir línuna sem hún kallar Mesh. Bak og armar sófans eru mót- uð úr álmöskva. Grunnur sófans er úr gegnheilum viði en púðarn- ir bólstraðir. Borðið er búið til úr tveimur álmöskvum sem mynda gagn- stæð horn á borðinu. Urquiola, sem býr og starfar í Mílanó, er í framvarðarsveit nútímahönnunar. Hún er lærður arkitekt en tekst á við verkefni í húsgagnahönnun, liststjórnun og arkitektúr. HÚSGÖGN ÚR MÖSKVA Fallegur bekkur set- ur svip á umhverfið. Bekkurinn getur verið við útidyr þar sem pláss er eða bara úti á verönd. Á góðum dögum er hægt að setja sessur og púða á bekkinn og tylla sér með kaffibollann. Bekkir hafa fengist hér á landi, en einnig er hægt að finna gamla eldhúsbekki og mála þá upp á nýtt. Það er svo margt skemmtilegt hægt að gera í garðinum. Umhverfið verður meira aðlaðandi þegar sett eru falleg húsgögn utanhúss. Gestum finnst þeir velkomnir að húsi þar sem fallegur bekkur með púðum er við dyrnar. Ekki sakar að hafa blóm í pottum í nálægð. Einnig er hægt að hafa trébekk úti á gras- flöt meðal fallegra sumarblóma, jafnvel fleiri en einn. Með því nýtist garðurinn betur því þá er hægt að setjast á bekkinn og slappa af á milli garðverka. AÐLAÐANDI UMHVERFI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.