Fréttablaðið - 21.07.2014, Qupperneq 10
21. júlí 2014 MÁNUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út
í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun -
um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Er það ekki svolítið sérkennilegt að
svo mikil umræða sem raun ber vitni
verði um hvað Juncker, nýr forseti
framkvæmda stjórnar ESB, sagði í ræðu
sinni í vikunni sem leið? Bið fólk að
athuga að ég segi og skrifa um hvað hann
sagði en ekki það sem hann sagði.
Hann sagði ekkert um að ESB mundi
hætta samningaviðræðum um aðild
að samstarfinu. Hann sagði einmitt að
samningaviðræðum sem eru í gangi yrði
haldið áfram (… ongoing negotiations will
continue …). Auðvitað er þó ólíklegt að
framkvæmdastjórnin eyði miklum tíma á
samningafundum ef hún er ein á fundun-
um eins og blasir við í samningaviðræð-
um við okkur. Eins og við öll vitum ætlar
ríkisstjórnin ekki að gera út neinn mann-
skap til að sitja slíka fundi af okkar hálfu.
Evrópusambandið ætlar hins vegar
ekki að taka ómakið af utanríkisráðherr-
anum og ríkisstjórninni að slíta þann þráð
sem þegar hefur verið spunninn í aðildar-
viðræðum. Það er engu sjálfhætt í þeim
efnum eins og Gunnar Bragi lætur liggja
að. Ríkisstjórnin hefur hins vegar sagt
að þráðurinn verði ekki tekinn aftur upp
nema að undangenginni þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Kannski er umræðan eins og hún er
vegna þess að undanfarið hefur færst í
vöxt að stjórnmálamenn gefi yfirlýsing-
ar sem þeir vilja síðan lítið kannast við,
eða að minnsta kosti túlka á annan veg en
orðanna hljóðan. Á Austurvelli voru yfir-
lýsingar stjórnmálamanna spilaðar viku
eftir viku til að rifja upp hvað sagt var
í kosningabaráttinni fyrir meira en ári.
En það var reyndar áður en okkur var til-
kynnt að ummæli í kosningabaráttu væru
bara til þess brúks, og hefðu ella enga
þýðingu.
Gjaldeyrishöft hafa nú verið hér á landi
í bráðum sex ár. Það er áríðandi að sem
mestur friður verði um hvernig þau verða
afnumin, þó ólíklegt megi telja að um
það náist fullkomin sátt. Þess vegna er
áríðandi að ekki verði klippt á línuna til
Evrópusambandsins nema að áætlun liggi
fyrir um afnám haftanna. Við getum haft
mismunandi skoðanir á aðild að Evrópu-
sambandinu, en það má ekki fækka leið-
unum sem hugsanlegar eru til afnáms
haftanna.
Hvað sagði Juncker?
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
EVRÓPUMÁL
Valgerður
Bjarnadóttir
alþingismaður
➜ Hann sagði ekkert um að
ESB mundi hætta samningavið-
ræðum um aðild að samstarfi nu.
Hann sagði einmitt að samninga-
viðræðum sem eru í gangi yrði
haldið áfram.
Vínveitingastaðurinn IKEA
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, vill að fólk geti keypt
vín með steikinni í matvöruverslunum.
Það er að mörgu leyti umhugsunarvert
að einkaaðilum sé treystandi fyrir því
að selja áfengi á matsölustöðum og
vínveitingastöðum en ekki í versl-
unum. Á stöðum eins og í IKEA er
þetta kannski skrýtnast. Eigendur
verslunarinnar geta selt léttvín
og bjór á afmörkuðu svæði á
matsölustað sem rekinn er inni
í versluninni. En ef þeir stilltu
vörunni upp í hillurekka í sömu
verslun við hlið matsölustaðar-
ins er hætta á að það yrði að
lögreglumáli.
Rangt forgangsraðað
Þórey Þórðardóttir, fram-
kvæmdastóri Landssamtaka lífeyris-
sjóða, minnti á það í fréttum RÚV um
helgina að mikilvægt væri að endur-
skoða fjárfestingarheimildir lífeyrissjóð-
anna. Þannig brást hún við ummælum
forsætisráðherra sem vill að lífeyris-
sjóðir fjárfesti meira í nýsköpun. Eitt af
mikilvægustu stjórnarfrumvörpum sem
lagt var fram á síðasta þingi var frum-
varp til að heimila lífeyrissjóðum að
fjárfesta á svokölluðum First North-
markaði í Kauphöllinni. Þannig
gætu lítil nýsköpunarfyrirtæki sótt
sér fjármagn á markaði, stækkað
og dafnað. Slík lög
skapa því hvata
til fjárfestinga
í nýsköpun.
Illu heilli
var for-
gangs-
röðun stjórnarmeirihlutans á Alþingi
þannig að málið hlaut ekki afgreiðslu.
Ímyndarvandinn
Þeir eru margir sem hafa látið veðrið
á Íslandi í sumar fara í taugarnar á sér.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Press-
unnar, er einn þeirra. „Íslenska sumarið
á við alvarlegan ímyndarvanda
að etja,“ segir hann á
Facebook. Það má reyndar
líka velta því fyrir sér hvort
veðurfarið á Íslandi kunni
að valda ímyndarvanda
fyrir íslenska ferða-
þjónustu. Eða hvort
rokið og rigningin sé
hreinlega á meðal
þess sem erlendir
gestir okkar ásælist.
jonhakon@frettabladid.is
M
argir hafa fordæmt málflutning framsóknarmanna
í Reykjavík um múslíma í síðustu sveitarstjórnar-
kosningum. Það er ljóst að þessar efasemdir ná
einnig inn í raðir flokksins. Fjölmargir frammá-
menn hafa sagt sig úr flokknum og gerð var
heiðarleg tilraun til að fordæma þennan málflutning á síðasta
miðstjórnarfundi en hún var barin niður. Til að bæta gráu ofan á
svart þá á forsætisráðherra, samkvæmt fréttaflutningi frá fund-
inum, að hafa verið fremstur í flokki þeirra sem vildu standa vörð
um þennan málflutning.
Í síðasta mánuði kvað Mann-
réttindadómstóll Evrópu upp
dóm í máli S.A.S. gegn Frakk-
landi. Málið hefur verið kallað
blæju bannsmálið og snerist
um lögmæti banns franskra
stjórnvalda við að hylja andlit á
almannafæri. Þar komst dóm-
stóllinn með naumum meiri-
hluta að þeirri niðurstöðu að bannið stæðist ákvæði mannrétt-
indasáttmálans. Í niðurstöðunni er einnig fjallað um umræðu sem
skapaðist í frönsku þjóðfélagi (reyndar um allan heim) og lýst
sérstaklega yfir áhyggjum af því að í aðdraganda lagasetningar-
innar hafi umræða í Frakklandi oft og tíðum markast af haturs-
fullum ummælum í garð múslíma. Dómstóllinn sagði að þegar
ríki réðist í lagasetningu af þessu tagi þá tæki það þá áhættu að
festa í sessi neikvæðar staðalímyndir af minnihlutahópum. Slíkt
gæti hvatt einhverja íbúa landsins til að tjá fordómafullar skoð-
anir á þeim þegar ríki hefðu, þvert á móti, skýlausa skyldu til að
boða umburðarlyndi. Dómstóllinn ítrekaði að ummæli sem fælu í
sér almennar og afdráttarlausar árásir á trúarhóp eða þjóðarbrot
gengju gegn grunngildum Mannréttindasáttmálans um umburð-
arlyndi, félagslegan frið og jafnræði og féllu ekki undir tjáningar-
frelsi í skilningi hans.
Þegar oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík hóf umræðu
um fyrirhugaða mosku, setti hana í samhengi við nauðungarhjóna-
bönd, leyfði eigin Facebook-síðu að vera gróðrarstía mannhaturs
í ummælakerfi og bætti um betur og „lækaði“ fordómafullar
færslur frá öðrum, þá var hann, vægt til orða tekið, ekki að boða
umburðarlyndi í íslensku þjóðfélagi. Þvert á móti var oddvitinn að
kynda undir neikvæðum staðalímyndum af múslím um og óhætt
er að segja að útspil hans hafi fleytt af stað hatursfullri umræðu
sem var nánast öll byggð á ótrúlegri fáfræði og fordómum. Það
er jafnvel hægt að ganga svo langt að segja að þetta útspil hafi
falið í sér árás á múslímska minnihlutann hér á landi. Oddvitinn
getur ekki á nokkurn hátt skýlt sér á bak við tjáningarfrelsi eins
og ítrekaðar fullyrðingar framsóknarmanna um „þöggun“ gáfu til
kynna. Allt slík tal er, eins og margoft hefur komið fram í dómum
Mannréttindadómstólsins, ekkert annað en gróf tilraun til að mis-
nota mannréttindi. Enginn, hvorki oddviti Framsóknar né nokkur
annar, hefur þau mannréttindi að leyfast að meiða aðra.
Ábyrgð formanns flokksins er sömuleiðis mikil, sérstaklega í
ljósi þess að hann er einnig forsætisráðherra. Með því að neita að
fordæma málflutning oddvitans og hindra persónulega að hann
sé fordæmdur af flokknum er hann í raun að bregðast þeirri
skýlausu skyldu sinni, sem einn æðsti embættismaður hér á landi,
að boða umburðarlyndi gagnvart öllum þegnum landsins.
Ríkjum ber skylda til að boða umburðarlyndi:
Mega ekki meiða
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is