Fréttablaðið - 21.07.2014, Side 11
MÁNUDAGUR 21. júlí 2014 | SKOÐUN | 11
Halldór Halldórsson
@dnadori
21. júlí 2014
Ef ég væri borgarstjóri væri
mitt fyrsta verk að rífa niður
útveggina í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum og bjóða öllum að hafa gaman.
Með vissu millibili ranka sjálf-
stæðismenn við sér og muna að
þeir eru flokkur sem aðhyllist
frelsi í viðskiptum. Í kjölfarið
leggja þeir alltaf fram frumvarp
um að heimilt verði að selja vín í
matvöruverslunum.
Og við rjúkum upp til handa
og fóta, voða spennt, og förum að
ræða frumvarpið fram og til baka,
eins og til standi að greiða ein-
hvern tímann atkvæði um það. Og
nú, á miðju sumri, þegar Alþingi
er í sumardvala, er þetta vínsölu-
spursmál rætt af mikilli ákefð. Af
hverju erum við að tala um það
núna? Það er til þess að við tölum
ekki um annað.
Allt hitt
Við tölum þá ekki á meðan um
það hvernig sjálfstæðismenn
hafa svikið eitt helsta kosninga-
loforð sitt um þjóðaratkvæða-
greiðslu um áframhaldandi aðild-
arviðræður að ESB. Flokkurinn
klofnaði fyrir vikið – frjálslynt
fólk, sem vill hafa áhrif á líf sitt
sjálft, streymdi úr flokknum, sem
bregst þá við með allsherjar átaki
í vínspursmálinu; og býður líka
upp á ameríska stórmarkaði, svo
sem eins og í sárabætur fyrir það
að fá aldrei að vita hvað hugsan-
leg Evrópu sambandsaðild kann
að þýða fyrir lífskjör almennings.
Á meðan við rökræðum vín-
spursmálið fjálglega gæti líka
farið svo að við gleymdum því að
sjálfstæðismenn standa nú um
mundir í því að leggja niður heil-
brigðisstofnanir víða um land. Það
er byggðastefna í verki. Þótt fram-
sóknarmenn ætli að skipa Hafn-
firðingum að flytja til Akureyrar,
vilji þeir halda vinnu sinni, þá er
þetta eiginlega miklu afdrifaríkari
byggðastefna en slíkur flutningur,
rétt eins og kvótakerfið (sem allir
stóru flokkarnir fjórir bera reynd-
ar ábyrgð á) hefur eytt grónum
byggðum.
Á meðan við ímyndum okkur að
sjálfstæðismenn berjist fyrir ský-
lausum rétti okkar til vínkaupa
hvar og hvenær sem okkur lystir
– og þyrstir – er ekki ósennilegt að
við gleymum því að nýlega tók for-
maður flokksins upp á því greiða
Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni
milljónir af opinberu fé til þess að
hann geti lagst í rannsóknir á hug-
myndum sínum um orsakir Hruns-
ins; en eins og hvert mannsbarn
gæti sagt Bjarna Benediktssyni
telur Hannes að Hrunið hafi alls
ekki og ekki í nokkrum skilningi
verið Davíð Oddssyni að kenna.
Við gætum líka hugsanlega
gleymt að fylgjast með því hvern-
ig sjálfstæðismenn eru nú í óða
önn að reka bankastjóra Seðla-
bankans fyrir þá ósvinnu að kæra
Samherja fyrir brot á gjaldeyris-
lögum, en við því hefur þetta
sjávarútvegsfyrirtæki brugðist
með því að kæra dómara og láta
eins og það sé yfirleitt svívirða að
málið komi fyrir dómstóla enda
sé Samherji yfir landslög hafinn.
Til virðist standa að ráða í Seðla-
bankann annaðhvort einn kunn-
asta brauðmolasinna landsins og
öfgafullan andstæðing velferðar-
samfélagsins – eða hagfræðing
sem kunnur hefur orðið fyrir að
skrifa skýrslu um prýðilega stöðu
íslensku bankanna árið 2007.
Og á meðan við þráttum fram og
til baka um þessi vínkaupaspurs-
mál gæti okkur jafnvel yfirsést
hvernig sjálfstæðismenn halda
hlífiskildi yfir pólitískum aðstoð-
armanni innanríkisráðherra sem
eftir öllum sólarmerkjum að dæma
sendi á sínum tíma völdum fjöl-
miðlum trúnaðarupplýsingar um
erlendan hælisleitanda og skáldaði
upp ávirðingar þegar upplýsing-
arnar sjálfar reyndust ekki nógu
krassandi til að útmála þennan
mann sem illmenni sem ekki ætti
skilið eðlilega landvist hér í ríki
réttlátra.
Sjálfstæðismenn ráða. Sjálf-
stæðismenn stjórna. Þeir nota
völd eins og fólk sem er vant því
að hafa hlutina eftir sínu höfði; og
það sé hin náttúrulega skipan hlut-
anna að þeir hafi völdin. Valda-
flokkurinn yfir Íslandi sem aðhyll-
ist frjálsræði að því marki að þeir
stjórni því.
En vínspursmálið?
En vínspursmálið? Hvað um það?
Þetta er álitamál. Áfengi er hreint
ekki eins og hver önnur matvara –
að minnsta kosti ekki hér á landi.
Það er vímugjafi. Og alkóhólismi
hefur verið þjóðarböl á Íslandi um
aldir og naumast til sú fjölskylda
sem ósnortin er af honum. Skiptir
það engu máli? Eigum við að láta
okkur standa á sama um það? Eða
eigum við sem samfélag að segja
sem svo: áfengi hefur haft svo
afgerandi áhrif á líf margra lands-
manna – og samfélagið í heild – að
rétt er að hver og einn sem aflar
sér þess þurfi að gera sér sérstaka
ferð til þess; þurfi að hafa örlítið
fyrir því að nálgast það; þurfi að
hugsa sig um. Það fólk sem vill
geta drukkið hvítvínsglas með
matnum og eitt á eftir í kvöldsól-
inni – og ekki meir – verður þá að
una því að geta ekki kippt flösku
með sér í stórmarkaðnum heldur
verður að rölta í ríkið. Er það erf-
itt? Þar taka á móti manni sérþjálf-
aðir sölumenn sem hjálpa manni
að velja vín sem hentar hverju
sinni, í stað þess að innkaupastjór-
ar Baugs eða annarra einokunar-
risa kaupi ofan í okkur öll tvær,
þrjár tegundir að sínum geðþótta.
AF NETINU
Skrýtnir dagar og skrýtið loft slag
Er þetta íslenskt loftslag? Varla.
Molluhiti, rigning og mikill raki. Dálítið þrúgandi.
Þegar ég var krakki rigndi alltaf heil ósköp á sumrin. En rigningin
var köld og það blés. Nú er rigning og logn.
Hafið í kringum Ísland er víst mjög hlýtt. Maður sér að gróður vex
með eindæmum vel. Laxveiði gengur illa, löxum fækkar semsagt
en uglum fer fjölgandi.
Ég held mikið upp á uglur– en ég er vanur að sjá þær að nætur-
þeli í Grikklandi.
Lundinn er hins vegar að deyja út sunnan- og vestanlands, en lifir
ennþá norðanlands. Samt eru búðirnar í Reykjavík fullar af lunda.
Mér skilst reyndar að mikið af honum sé framleitt í Kína. Selst
sem íslenskt.
http://www.eyjan.pressan.is/silfuregils
Egill Helgason
TÍSTIÐ
Enn er ekki búið að sálga
Íbúðalánasjóði þrátt
fyrir fagnaðarlæti suður
í Brüssel yfir framkomn-
um hugmyndum í ríkis-
stjórn um breytingar á
sjóðnum. Oda Helen Slet-
nes, forseti Eftirlitsstofn-
unar EFTA (ESA), lýsir
því nú yfir, samkvæmt
fréttum fjölmiðla, að nú
verði hætt að rannsaka
hvort sjóðurinn standist
markaðsvæðingarkröf-
ur ESB því fyrirsjáanlegt sé að
dregið verði úr félagslegu hlut-
verki sjóðsins.
Hinn félagslegi þráður í Íbúða-
lánasjóði hefur sem kunnugt er
í bland verið sá að tryggja lán-
veitingar á landinu öllu og jafna
áhættu sína með því að hafa á
hendi bæði hin tryggari veð sem
og hin ótryggari.
Velferðarráðherra hefur kynnt
hugmyndir að breytingum á
lögum um Íbúðalánasjóð. Sagt er
að stuðst verði við „danska kerf-
ið“. Á kynningarfundum var þó
jafnan tekið skýrt fram að ýmis-
legt sem mörg okkar tóku sem
jákvæðast í „danska kerfinu“,
svo sem möguleikar á tímabund-
inni frystingu afborgana, á ekki
að gilda í hinu íslenska kerfi sam-
kvæmt þeim tillögum sem
þingflokkum voru kynntar
í vor. Skírskotanir í danskt
húsnæðiskerfi voru ann-
ars á óljósum forsendum.
Hitt þarf líka að kanna
hverjir kostir hins danska
kerfis raunverulega eru
með tilliti til þess hve
auðvelt er að eignast hús-
næði. Sýnist mér þar sitt-
hvað orðum aukið. Þetta
þarf að leiða rækilega í
ljós áður en hrapað er að
breytingum.
Alþingi á síðasta orðið
Fögnuðurinn í Brüssel lýtur að því
að íslensk stjórnvöld skuli ætla að
vísa lántökum vegna allra eigna
sem eru meira en fjörutíu millj-
óna króna virði til bankanna. Þetta
myndi stórlega veikja Íbúðalána-
sjóð. Styrkur hans er í því fólginn
að hafa á hendi sem flest traust
veð. Menn kann að ráma í að þegar
bankarnir gerðu aðför að Íbúða-
lánasjóði á árunum fyrir hrun, þá
vildu þeir að hann héldi sinni stöðu
gagnvart tekjulægsta hluta þjóð-
arinnar og „köldum svæðum“, þ.e.
svæðum á landsbyggðinni þar sem
fasteignaviðskipti gengju treg-
lega og eignirnar fyrir vikið lágt
metnar. Inn á slík „ótrygg“ svæði
vildu bankarnir sem minnst koma.
Og það sem meira er, þangað fóru
þeir ekki!
Styrkur Íbúðalánasjóðs hefur
sem áður segir verið í því fólginn
að hafa undir sínum handarjaðri
bæði hin tryggari veð sem og hin
ótryggari. Oda Helen Sletnes,
forseti Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA), gefur sér að nú sé búið að
hverfa frá þessu fyrirkomulagi
og fagnar ákaft. Í mínum huga er
þetta ótímabær fögnuður og sann-
ast sagna ekkert sérlega geðfelld-
ur og minnir á hve takmarkaða
virðingu Evrópusambandið ber
fyrir lýðræðislegum vilja þegar
hagsmunir markaðsfyrirtækja
eru annars vegar.
En málið er sem betur fer ekki
útkljáð. Lögum hefur enn ekki
verið breytt. Íbúðalánasjóður er
enn á lífi þótt Evrópusambandið
og þær stofnanir sem kalla má
skilgetin afkvæmi þess, vilji hann
feigan. Alþingi á síðasta orðið.
Enn ekki búið að slátra
Íbúðalánasjóði
ALICIA Svefnsófi
B 163 D 83 H 78 cm.
Dýnustærð 147x197 cm.
Slitsterkt áklæði. Litir:
Rautt, svart, grænt, og
blómamunstur.
119.990
FULLT VERÐ: 139.990
SVEFNSÓFAR Í HÖLLINNI
H Ú S G AG N A H Ö L L I N
E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
MELBOURNE SVEFNSÓFI MEÐ TUNGU
169.990
FULLT VERÐ: 199.990
MELBOURNE Svefnsófi Stærð: 243x170 H:70 cm.
Slitsterkt áklæði. Litir: Svargrár, grænn og rauður.
Vinstri og hægri tunga.
Rúmfata-
geymsla í tungu.
ÁTTU
VON Á
GESTUM!
SVEFNSÓFAR
Í ÚRVALI
ÍBÚÐALÁNA-
SJÓÐUR
Ögmundur
Jónasson
alþingismaður
➜ Íbúðalánasjóður er enn
á lífi þótt Evrópusambandið
og þær stofnanir sem kalla
má skilgetin afkvæmi þess,
vilji hann feigan. Alþingi á
síðasta orðið.
➜ Við gætum líka hugsan-
lega gleymt að fylgjast með
því hvernig sjálfstæðismenn
eru nú í óða önn að reka
bankastjóra Seðlabankans
fyrir þá ósvinnu að kæra
Samherja fyrir brot á gjald-
eyrislögum.
Vínspursmálið
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Una Sighvatsdóttir
@ungasighvats
20. júlí 2014
Borgaði 500 kr fyrir glas af
Bónus appelsínusafa í dag.
Ferskur appelsínusafi hefði kostað 1000
kr. Er það alveg normal verðlagning?