Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 2

Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 2
26. júlí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2 Yfirvöld í Suður-Afríku hafa samþykkt danskt samkynhneigt par sem foreldra og komu hinir ný- bökuðu foreldrar, Thomas Møller og Rasmus Holm, nýlega heim til Danmerkur með um níu mánaða gamla dóttur. Framkvæmdastjórar Íslenskrar ættleiðingar og Samtakanna ´78 fagna tíðindunum og vonast til að fleiri samkynhneigðir fái að ættleiða börn. Samkynhneigðir fá að ættleiða frá Suður-Afríku MANNLÍF Flestir vita að Sigurður G. Tóm- asson liggur ekki á skoðunum sínum en færri vita að það á við um fleira í fórum hans því hann hefur gefið þjóðinni eina frægustu fiðlu landins. Hún var smíðuð í kringum 1880 í Þýskalandi og var í eigu áhrifamanna í íslenskri tónlistarsögu. Hann hefði sjálfsagt getað selt hana, „en þetta er gripur sem á að vera í eigu þjóðarinnar,“ segir Sigurður. „Það borg- ar sig ekki að fara með gömul hljóðfæri á Þjóðminjasafnið því maður veit ekki hvernig búið er að hljóðfærum þar en það þarf að passa gömul strengjahljóðfæri mjög vel.“ Úr varð að hann færði Tón- listarsafni Íslands fiðluna, enda segir útvarpsmaðurinn að þar sé unnið frá- bært starf og nokkur sögufræg hljóð- færi séu þar fyrir. Fiðluna átti Þórarinn Guðmundsson, en hann var fyrstur íslenskra fiðluleik- ara til að læra listgrein sína í erlendum tónlistar skóla. Eflaust kannast aðeins þeir fróðustu við nafnið, enda spá fáir í hver samdi lagið þegar þeir söngla „Yfir kaldan eyðisand“ í söngvímu en það var einmitt Þórarinn sem gerði ljóð Krist- jáns Jónssonar Fjallaskálds að lagi. Einnig samdi hann lagið „Þú ert yndið mitt yngsta og besta“. Hann samdi svo og lagið við ljóð Jóhannesar úr Kötlum „Land míns föður“ og var það frumflutt á lýðveldishátíðinni á Þingvöllum árið 1944. Ólíklegt er að nokkurt þeirra sé samið á þessa fiðlu því hana brúkaði Þór- arinn til æfinga á lærlingsárum. Fiðluna fékk Sigurður í arf frá Guð- mundi Guðmundssyni, bróður fiðluleik- arans. Guðmundur átti að nota hana til æfinga sem ekkert varð úr. „Guðmundur var mágur pabba míns og ég ólst mikið upp á heimili þeirra hjóna en þau áttu engin börn,“ segir Sigurður. Ekki er öll sagan sögð því Sigurður segir allt benda til þess að þessi sögu- fræga fiðla sé sú sama og Söngfélagið Harpa gaf Jónasi Helgasyni þegar hann lét af söngstjórn þar árið 1887. Hún er nú í spilahæfu formi en var þó ekki fýsileg þegar Sigurður fékk hana. Ívar sonur Þórarins, sem var fiðlu smiður, hafði þurft að nýta úr henni eitt og annað á haftaárunum þegar erfitt var að fá efni. En Sigurður átti hauk í horni því Hans Jóhannsson kom henni í samt lag og fræddi eigandann í leiðinni um eitt og annað sem hjálpaði honum að rekja sögu hennar. Hún er nú undir sama þaki og selló Erlings Blöndals Bengtssonar en það selló má sjá í styttuformi í fangi Erlings fyrir utan Háskólabíó. jse@frettabladid.is FRÉTTIR FIMM Í FRÉTTUM NÝR LÖGREGLUSTJÓRI OG ELDHEITUR KNATTSPYRNUUNNANDIGLEÐIFRÉTTIN VIKAN 19.07.➜25.07.2014 Það borgar sig ekki að fara með gömul hljóðfæri á Þjóðminjasafnið því maður veit ekki hvernig búið er að hljóðfærum þar en það þarf að passa gömul strengjahljóð- færi mjög vel. Edda Garðarsdóttir, fyrr- verandi fyrirliði landsliðsins í fótbolta, dæmdi leik Fjölnis og Hamranna í fyrstu deild kvenna í knattspyrnu á sunnu- daginn fyrir viku. Guðbrandur Bogason öku- kennari vill hærri bílprófsaldur til þess að fækka megi enn frekar slysum í umferðinni. Með breyttum kennsluháttum hefur þó náðst mikill árangur í að fækka slysum undanfarin ár. Kristín Anný Jónsdóttir, segir að sala á ferðavögnum gangi vel, en rigningin setji þó strik í reikninginn. Hjólhýsi seljast mun betur en fellihýsi og tjaldvagnar. Sigríður Björk Guð- jónsdóttir, fyrrverandi lögreglustjóri á Suður- nesjum, hefur verið skipuð lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Hún er fyrsta konan til að gegna því embætti. ➜ Ásdís María Viðarsdóttir er einn af skipuleggj- endum Druslugöng- unnar. Hún greindi nýverið frá kyn- ferðisofb eldi sem hún varð fyrir. LAUGARDAGUR Gunnar Nelson yfirvegaður Bardaga- kappinn Gunnar Nelson kom, sá og sigraði í Dyflinni á Ír- landi á laugardag. Hann lagði Zak Cummings þegar nokkrar sekúndur voru eftir af annarri lotu í bardaga þeirra. SUNNUDAGUR John Kerry styður Ísrael Utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, John Kerry, gaf út yfirlýsingu þess efnis að Bandaríkjastjórn styddi rétt Ísraela til að verja sig gegn árásum frá Hamas. Ummælin hafa mætt mikilli gagnrýni. MÁNUDAGUR Risavaxið berghlaup í Öskju Vís- indamenn reyna nú að finna orsakir þess að gríðarstór aurskriða féll ofan í Öskjuvatn á mánudagskvöld. Skriðan orsakaði 120 metra flóðbylgju á svæðinu sem náði inn að Víti. Sem betur fer var enginn á svæðinu þegar skriðan féll. ÞRIÐJUDAGUR Aðskilnaðarsinnar standa sig Stefán Haukur Jóhannesson, sem starfar fyrir eftirlitssveit Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, segir að aðskilnaðar- sinnar hafi gengið rétt frá líkamsleifum þeirra tæplega 300 sem létust þegar malasísk farþegaþota var skotin niður yfir austurhluta Úkraínu í síðustu viku. MIÐVIKUDAGUR Eygló bregst við fréttum Félags- málaráðherra, Eygló Harðardóttir, brást hratt við fréttum Fréttablaðsins um langtímaatvinnuleysi kvenna yfir fimm- tugu. Hún óskaði eftir samstarfi við Félag eldri borgara og Vinnumálastofnun til að finna lausn á vandanum. FIMMTUDAGUR 700 fallnir borgarar á Arnarhóli Fréttablaðið birti mynd af fjöldagjörningi á Arnarhóli í tilefni aðgerða Ísraelshers á Gasa-svæðinu. Sjö hundruð Íslendingar lögðust niður á Arnarhóli til þess að tákna þá Palestínumenn sem hafa látist vegna framgangs Ísraels síðastliðnar vikur. FÖSTUDAGUR Ætlar ekki að taka þátt í kostnaði „Við hjá borginni óskuðum ekki eftir þessari upp- færslu á flóðljósum heldur Knattspyrnusamband Evrópu. Því er eðlilegt að knattspyrnuhreyfingin beri kostnaðinn en ekki Reykjavíkurborg.“ S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs, tekur fyrir það að Reykja- víkurborg muni borga nýja fl óðlýsingu á Laugardalsvelli. ht.is AUGLÝSINGASKJÁIR UPPLÝSINGASKJÁIR SKJÁVEGGIR Heimilistæki söludeild, 5691520, sala@ht.is EFNAHAGSMÁL Jón Á. Ágústs- son, einn af fyrrverandi eig- endum Invent Farma, var greið- andi hæstra opinberra gjalda á Íslandi á síðasta ári. Jón og nokkrir félagar hans seldu hlut sinn í Invent Farma á síðasta ári. Jón greiddi tæpar 412 milljónir króna á síðasta ári. Útgerðarmenn eru fyrirferðamiklir á lista yfir hæstu gjaldendur. Næst á eftir Jóni kemur Guðbjörg M. Matthías- dóttir, útgerðarkona í Vestmanna- eyjum sem meðal annars á stóran hlut í Ísfélaginu, Kvos, Árvakri og fleiri félögum. Guðbjörg greiddi rúmar 389 milljónir í opinber gjöld. Á eftir Guðbjörgu kemur Ingi- björg Björnsdóttir með 239 millj- ónir greiddar og Kristín Vil- hjálmsdóttir með 237 milljónir, en þær seldu báðar hlut í HB Granda. Ingibjörg Björnsdóttir er ekkja Árna Vilhjálmssonar, fyrrverandi stjórnarformanns fyrirtækisins. Frændurnir Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vil- helmsson koma næstir þeim, en Þorsteinn greiddi 211 milljónir og Kristján tæpar 190 milljónir. - jhh JÓN ÁRNI ÁGÚSTSSON GREIÐANDI HÆSTRA OPINBERRA GJALDA Greiðir tæpar 412 milljónir króna vegna ársins 2013. GUÐBJÖRG M. MATTHÍASDÓTTIR GREIÐANDI NÆSTHÆSTRA GJALDA Greiðir tæpar 389 milljónir króna vegna síðasta árs. Skattakóngur ársins 2013 seldi hlut sinn í lyfjafyrirtækinu Invent Farma: Skattakóngur greiddi 412 milljónir Færir Tónlistarsafni Íslands aldargamla fiðlu Sigurður G. Tómasson lét Tónlistarsafni Íslands eftir eina frægustu fiðlu landsins. Hún var smíðuð í Þýskalandi á síðari hluta 19. aldar. Margir hafa raulað lög eftir fyrrverandi eiganda. SIGURÐUR LÆTUR FIÐLUNA AF HENDI Eflaust lærði tónskáldið sitthvað á þessa fiðlu sem kom að gagni þegar hann samdi „Land míns föður.“ MYND/TÓNLISTARSAFN ÍSLANDS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.