Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 14

Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 14
26. júlí 2014 LAUGARDAGUR14 Ég var beðin að vera með þessa leiðsögn vegna þess að ég skrif-aði mastersritgerðina mína um sögu sam-kynhneigðra á Íslandi í gegnum tíðina og leitaði svo- lítið í þjóðsögurnar okkar,“ segir Særún Lísa Birgisdóttir þjóð fræðingur, spurð um hvað leið- sögn hennar í Árbæjarsafni á morgun klukkan 15 snúist. „Mig langaði að komast að því hvort það væri hægt að finna einhver merki um samkynhneigð í þjóð- sögunum, þótt það væri undir rós.“ Særún segist munu fjalla um hvernig þöggunin hefur verið fylgifiskur samkynhneigðar frá örófi alda og hvað sam- kynhneigðir eru ósýnilegir í íslenskri sögu. „Ég tengi þetta við huldufólks- og útilegumanna- sögur. Það sem fólk gat ekki sagt og mátti ekki segja var nefnilega ofið inn í þær, þannig að kannski er hægt, án allrar ábyrgðar, að setja á sig gleraugun og skoða sögurnar okkar út frá þessum sjónarhóli.“ Forsaga málsins er að Borgar- sögusafn Reykjavíkur hafði sam- band við Samtökin ’78 í þeim til- gangi að leita upplýsinga um það hvort á einhvern hátt væri hægt að tengja sögu samkynhneigðra við safnkostinn, en það reyndist hægara sagt en gert. „Þeir vissu af mér og mastersritgerðinni og báðu mig að koma og kynna efni hennar. Það er kannski ekki beint hægt að tengja Árbæjar- safn og samkynhneigð en ég ætla að reyna, svona lauslega, að nota safnkostinn til að varpa ljósi á þessa sögu.“ Særún segist hafa komist að því við rannsóknir sínar fyrir ritgerðina að það sé nánast hvergi minnst á samkynhneigða í íslenskum gagnasöfnum. „Það var ekki fyrr en upp úr miðri síðustu öld sem fólk fór að tjá sig um að það hefði þekkt ein- hverja samkynhneigða áður fyrr. Reyndar er talað um samkyn- hneigð í Íslendingasögunum, þar var versta níð sem hægt var að segja um mann að hann væri argur, en eftir siðaskipti hverfa þeir gjörsamlega úr heimildum. Ef einhver var grunaður um að hneigjast mögulega til sama kyns var talað um að hann væri þjófóttur, eða eitthvað annað fundið á hann. Hann er góður til kvenverka, var stundum sagt um þá og mjög snyrtilegir, sem þótti sérstakt, en það er aldrei sagt hreint út að þeir séu hommar.“ Hvað samkynhneigðar konur varðar segir Særún þær algjör- lega vanta í þjóðsögur og heim- ildir. „Þær eru algjörlega ósýni- legar. Ég fann nákvæmlega ekki neitt um samkynhneigðar konur. Það virðist bara engum hafa dottið það í hug að konur gætu hneigst til sama kyns.“ Eru álfar kannski hommar? Særún Lísa Birgisdóttir þjóðfræðingur verður með forvitnilega leiðsögn í Árbæjarsafni á morgun. SÆRÚN LÍSA BIRGISDÓTTIR „Ég tengi þetta við huldufólks- og útilegumannasögur. Það sem fólk gat ekki sagt og mátti ekki segja var nefnilega ofið inn í þær.“ FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is FR ÉT TA BL AÐ IÐ /D AN ÍE L HELGIN 26. júlí 2014 LAUGARDAGUR FARÐU HLUSTAÐU LESTU HORFÐU... Á LAGIÐ TARANTÚLUR með rappsveitinni Úlfur Úlfur sem er skipuð þeim Arn ari Frey og Helga Sæ mundi. Góð upp- hitun fyrir plötuna þeirra sem kemur út í október. MEÐ BÖRNIN Á BARNA- DAGINN í Viðey á morgun. Þar verður barnajóga og fjörug barnamessa, skátarnir stjórna leikjum og furðuverur heilsa upp á krakkana. ÍSLENSK ÚRVALSLJÓÐ valin af Guðmundi Andra Thors- syni. Bók sem inniheldur úrval gamalla íslenskra ljóða og hvað er nú huggulegra í rigningunni en sitja við kertaljós og lesa ljóð fyrir ástina sína? „Þetta verður að mestu leyti nýtt efni af sólóplötu sem ég er að vinna,“ segir Sigur- laug Gísladóttir, öðru nafni Mr. Silla, um dagskrá tónleikanna sem hún heldur í Mengi í kvöld. „Ég hef aldrei spilað þessi lög fyrir áhorfendur áður og hlakka mikið til.“ Mr. Silla er nafnið sem Silla notar þegar hún kemur fram ein en hún segir það ekki hafa neina karllæga merkingu. „Þetta er bara gælunafn sem vinur minn byrjaði að kalla mig fyrir fyrir mörgum árum og það festist við mig þannig að ég ákvað að nota það sem listamannsnafn.“ Auk sólóferilsins kemur Silla fram með múm, Snorra Helgasyni, Mice Parade og Low Roar þannig að hún hefur nóg að gera í tónlistinni. Reyndar er hún líka útskrifaður myndlistarmaður úr LHÍ og hefur unnið töluvert við myndlist, en segir tónlistina hafa orðið ofan á. „Stundum sam- ræmi ég nú tónlistina og myndlistina, þetta skiptist töluvert á.“ Myndlistarkonan skín í gegn í búningum Sillu á sviði, sem hún segist hafa lagt mikið upp úr í gegnum tíðina, en hún segist reynd- ar ekki enn vera búin að ákveða í hverju hún ætli að vera í kvöld, það sé minna atriði en áður. „Ég er svona aðeins að þreifa fyrir mér að spila þetta „læf“ í kvöld, en það er aldrei að vita hvað gerist á sviðinu.“ - fsb Á THE IDES OF MARCH á RÚV í kvöld kl. 23.10. Pólitískur þriller í leikstjórn George Clooney sem jafn- framt leikur annað aðalhlutverkið. Hitt aðalhlut- verkið leikur Ryan Gosling og Philip Seymour Hoffman heitinn á stórleik í sínu hlut- verki. Þessa verður þú að sjá. Ef einhver var grunaður um að hneigjast mögulega til sama kyns var talað um að hann væri þjófóttur, eða eitthvað annað fundið á hann. Aldrei að vita hvað gerist á sviðinu Mr. Silla frumfl ytur efni af nýrri sólóplötu í Mengi í kvöld. Hlakkar til að fá viðbrögð áheyrenda í fyrsta sinn. MR. SILLA „Þetta er bara gælunafn sem vinur minn byrj- aði að kalla mig fyrir mörgum árum og festist við mig.“ Maggi mix, sjónvarpsstjarna og gleðigjafi Vinnur í vefsíðu og hreyfi r sig „Ég er að vinna í nýrri síðu á Facebook undir nafninu Mixarinn, þar gef ég sparnaðarráð og fer yfir þjóðfélagsmálin. Ég ætla líka að hreyfa mig og hjóla mikið og jafnvel kíkir maður í miðbæinn. Það er brjálað að gera hjá kallinum.“ María Lilja Þrastardóttir fjölmiðlakona Druslugangur „Helgin mín mun að mestu fara í Druslugang og aðra óhlýðni, en Druslugangan á hug minn allan. Eftir göngu og tónleikadagskrá mun ég svo eflaust lyfta mér upp með öðrum úr skipulaginu og á morgun mæti ég hjá Sirrýju á RÚV.“ Greta Mjöll Samúelsdóttir söngkona Ættarmótið Erlingur „Ég er á leiðinni á „mini“ ættarmót sem við fjöl- skyldan köllum Erling. Þetta eru afkomendur ömmu og afa og ætlum við að hittast í Gulllandinu þeirra við Hellu. Ég ætla svo aðeins að skreppa frá í dag og syngja í fallegu sveitabrúðkaupi.“ Bjartmar Þórðarson, leikari og leikstjóri Afslappelsi og stybba „Ég er að þykjast vera í sumar fríi, þannig að róleg- heitin verða í fyrirrúmi. Af- slappelsi í góðra vina hópi á kaffihúsum miðborgarinnar, út að borða með manninum mínum, jafnvel rölt í gegnum stybbuna í Kolaportinu.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.