Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 22

Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 22
26. júlí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 ➜ Karlotta Blöndal býr í Reykjavík. Hún útskrif- aðist með mastergráðu frá Listaháskólanum í Malmö, Lundarháskóla í Svíþjóð árið 2002 og hefur sýnt verk sín víða síðan. Meðfram því rit- stýrði hún og gaf út Sjónauka ásamt Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur. Hún hefur tekið þátt í verkefn- um tengdum myndlist og setið í stjórn Gallerís Signal í Malmö, Nýlistasafninu í Reykjavík og Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík. Endurspeglar fjölbreytileika Ferill Karlottu Blöndal myndlistarkonu endurspeglar þann fjölbreytileika sem er að finna í myndlistinni um þessar mundir. Karlotta er stundum einyrki, eins og flestir myndlistarmenn eru í hugum okkar flestra, en þess á milli vinnur hún í hópi listamanna, jafnvel samkvæmt fyrir fram ákveðnu leiðarstefi. Þar fyrir utan notar hún alls konar efni og mismunandi miðla. Svo tekur Karlotta þátt í að reka söfn og sýningarsali, heima og í útlöndum. Verkið Innanúr var sýnt í Nýlistasafninu í Reykjavík árið 2013. Það var innsetning og gjörningur sem gestir og safnið í heild urðu þátt- takendur í. Grunnstefið var ljósmynd af saltfjalli sem svo var notuð til að auglýsa við- burðinn. Þegar á safnið kom mættu gestunum slóðar og hrúgur af salti á gólfunum sem dreifðust með ágangi áhorfenda. Á borði voru svarthvít ljósrit sem sýndu Karlottu ganga um safnið og salt leka innan úr fötum hennar í stríðum straumum. Sjálf var hún ekki viðstödd þegar sýningin var opnuð en lét saltið vera vitnis- burð um nærveru sína. Áður hefur hún unnið gjörningaverk sem miðast að því að skilja eftir sem minnstar eftirstöðvar, þar sem ekki eru teknar heimildarmyndir eða hljóðupptökur, eins konar tilraun til að afmá hinn hlutlega eiginleika og efnisgerfingu myndlistar. INNANÚR 2013 Í sumar var Karlotta á Vest- fjörðum að setja upp verkið Mót sem var vígt föstudaginn 20. júní. Verkið var sett upp fyrir tilstilli Staða/Places. Sýningarstjórar og skipu leggjendur Staða eru Eva Ísleifsdóttir og Þor- gerður Ólafsdóttir. Þær hafa boðið listamönnunum að vinna ýmist varanleg eða tímabundin verk í samstarfi við sögulega og einstaka staði. Listamennirnir voru valdir með það í huga að verk þeirra endurspegla inntak og þema sýningarinnar, með náttúruna í forgrunni og söguna sem rann- sóknarefni, samhliða staðbundinni nálgun. Listamennirnir sem taka þátt ásamt Karlottu eru Bjarki Bragason og Hrafnkell Sigurðs- son og staðirnir sem eiga í hlut eru Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti í Örlygshöfn, Tálkna- fjörður og Kísilþörungaverk- smiðjan á Bíldudal. Verk Karlottu samanstendur af 13 stöngum sem komið var fyrir í afskekktu dalsmynni suðvestan megin í Tálknafirði. Efst á stöngunum eru krókar sem á eru festar nokkur hundruð pappírsarkir. Blöðin losna frá með vindinum, fjúka til og finna sér stað í umhverfinu. Eftir nokkurn tíma, einhverja daga, verður til eins konar þrykk af umhverfinu, hvert blað drekkur í sig þann stað sem það lendir á og framkallar með veðuröflunum eins konar mynd af undirlaginu og umhverfinu öllu. Verkið verður til á bilinu milli landsins og pappírsins, fyrir tilstilli veður- afla og umhverfis. Að lokum er öllum blöðunum safnað saman og stangirnar teknar niður. MÓT 2014 Myndlist Karlottu einkennist af tilraunum með ýmsa hefð-bundna miðla og efni, svo sem pappír, vatnsliti, teikningu og gjörninga. Hún nálgast efnið á annan hátt en það er yfirleitt notað en merking- arleg hleðsla hvers miðils, uppsetning- in sjálf og samhengi skiptir miklu máli. Samspil tungumáls og myndmáls skipar oft ríkan sess í verkunum. Undanfarin ár hefur hún unnið að söfnun og úrvinnslu gagna úr umhverfinu, til dæmis í gegn- um liti og mynstur hreyfinga. Þannig hefur gjörningaformið átt hlut að máli. Það má segja að hver miðill fyrir sig og fyrir hvað hann stendur, saga hans og inntak í sjálfu sér, sé stór hluti verkanna til jafns við samhengið við sýningarstað. Karlotta er einnig í samstarfi við sex manna hóp fræðimanna og myndlistar- manna sem hverfist um bók Thomas Mann, Töfrafjallið, eða Der Zauberberg. Bókin er lesin sem leiðarstef í könn- unarleiðangri og bergmál inn í samtím- ann. Leiðangurinn hófst á síðasta ári með ferð á það sem áður var berklahæli í Davos í svissnesku Ölpunum þar sem sögusvið hennar er. Hópurinn hefur boðið til sín fjölda fólks til viðræðu í kringum efni og inntak bókarinnar og tengsl þess við líðandi stund en hluta af afrakstri þess mátti sjá á sýningu þeirra í Galleríi Úthverfu á Ísafirði núna í júní. Í ágúst munu félagarnir taka þátt í ráð- stefnunni Art in Translation í Háskóla Íslands og gefin verður út bók sem kemur út á næsta ári. Næsta einkasýning Karlottu verður í Týsgalleríi í Reykjavík í byrjun september. SVIPMYND KARLOTTA BLÖNDAL Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.