Fréttablaðið - 26.07.2014, Side 24
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Í huga Esterar er Þjóðhátíð fyrst og fremst fjölskylduhátíð. „Við erum alltaf í hvítu tjaldi með
f jölskyldu eiginmanns míns,
Magnúsar Sigurðssonar, sem er
Eyjamaður í húð og hár. Fram-
an af vorum við í einu tjaldi sem
afi hans og amma áttu en svo fór
okkur að fjölga og árið 2002 var
ákveðið að bæta öðru við. Við
erum því með tvö tjöld hlið við
hlið og opið á milli.“
Ester segir að núorðið sé gefin
út tilkynning þegar má byrja að
tjalda hinum margrómuðu hvítu
tjöldum en áður var það meira á
reiki og var fólk varla vinnuhæft
þá daga sem það hélt að það mætti
byrja. „Dalurinn var bara fullur
af fólki sem var tilbúið að hlaupa
og finna sér stað enda hefur fólk
miklar skoðanir á því hvar er best
að vera,“ segir Ester og rifjar upp
fræga sögu af því þegar fótbolta-
leikur stóð yfir í bænum og pall-
bíll með tjaldstöngum þusti fram
hjá og inn í dal. „Völlurinn gjör-
samlega tæmdist og allir hlupu á
eftir.“ Hún segir enn þá tals verðan
hamagang fylgja því þegar fólk er
að finna sér tjaldstæði og hefur
gaman af því að fara inn úr og
fylgjast með.
Ester segir hátíðarhöldin hjá
fjölskyldunni annars í nokkuð
föstum skorðum en hún heldur
sérstaklega upp á setningarhátíð-
ina á föstudeginum. „Við mætum
í sparifötunum og erum svo með
hátíðarkaffi í tjaldinu. Svo förum
við heim að klæða okkur betur
og smyrja nesti. Um kvöldið er
svo skemmtun í brekkunni og
brenna.“
Á laugardeginum er farið á
barnaskemmtun í dalnum en um
kvöldið segir Ester hefð fyrir því
að fjölskyldan borði saman í tjald-
inu. „Yfirleitt kaupum við kjúkling
í veitingatjaldinu en að borðhaldi
loknu eru það skemmtiatriði og
flugeldasýning.“
Brekkusöngurinn og blysin á
sunnudeginum eru svo órjúfan-
legur hluti hátíðarinnar en blys-
in í ár verða 140 talsins, enda bæt-
ist alltaf eitt blys við fyrir hvert ár
sem hátíðin er haldin. Þar sem
hátíðin á stórafmæli í ár verður
dagskráin með veglegra móti en
eins og margir vita eru John Grant
og Quarashi á meðal þeirra sem
troða upp. Ingó Veðurguð mun
svo stýra brekkusöngnum eins
og í fyrra.
Ester segir hátíðina yfirleitt fara
mjög vel fram og langflesta gesti
vera til fyrirmyndar. „Mér finnst
oft svolítið leiðinlegt hvað það er
einblínt á neikvæðar fréttir því
langflestir eru til friðs. Svo finnst
mér f lestir mjög meðvitaðir um
náungann og fólk yfirleitt passa
hvert upp á annað. Ég er með
tjaldstæðið alveg í túnfætinum
heima hjá mér og verð aldrei fyrir
miklu ónæði.“
Ester er þegar byrjuð að baka fyrir
hátíðina. „Það er nauðsynlegt að
eiga vel með kaffinu alla dagana.
„Ég geri gjarnan hjónabandssælu
og súkkulaðiköku og svo er alltaf
rjómaterta.“ Ester segir langtíma-
veðurspána góða. „Við liggjum
hérna á öllum veðurmiðlum því
auðvitað verður allt miklu skemmti-
legra í sól og þær hátíðir þar sem
hefur verið gott veður standa vissu-
lega upp úr. Við hljótum að eiga það
inni eftir þetta sumar en hvernig
sem fer er undirbúningur í fullum
gangi og hugur í fólki.“
Aldrei komið til tals að sleppa hátíð
Ester Sigríður Helgadóttir, kennari við Grunnskóla Vestmannaeyja, lætur sig aldrei vanta á Þjóðhátíð. Hún flutti til Eyja með
eiginmanni sínum, Magnúsi Sigurðssyni, árið 1999 og hefur ekki misst af hátíð síðan. Áður hafði hún farið þrisvar sinnum og því
átjánda Þjóðhátíðin fram undan. Í hennar huga standa setningarhátíðin, brekkusöngurinn og blysin upp úr.
Fjölskyldan í brekkunni.
Ester og Magnús láta sig aldrei vanta á Þjóðhátíð. Þau sækja hátíðina með börnunum sínum þremur, fjölskyldu og vinum. Á myndina vantar elsta soninn.
FLJÚGÐU Á FESTIVAL
MEÐ FLUGFÉLAGI ÍSLANDS
BÓKAÐU
TÍMANL
EGA Á
FLUGFE
LAG.IS
ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM
Vestmannaeyjum (1. - 4. ágúst)
NEISTAFLUG
Neskaupstað (1. - 4. ágúst)
MÝRARBOLTI
Ísafirði (1. - 4. ágúst)
EIN MEÐ ÖLLU
Akureyri (31. júlí - 4. ágúst)
ORMSTEITI
Egilsstöðum (15. - 24. ágúst)
BRÆÐSLAN
Borgarfirði eystri (26. - 28. júlí)