Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið - 26.07.2014, Page 26

Fréttablaðið - 26.07.2014, Page 26
FÓLK|HELGARSPJALL FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Uppselt er á Bræðsluna en 800 miðar seldust upp á 20 mínútum. „Við byrjum nú yfirleitt að plana Bræðsluna daginn eftir að henni lýkur ár hvert. Þetta er mjög úthugsað fyrirbæri. Á næsta ári eigum við tíu ára afmæli og þá verður örugglega meira í lagt. Við tökum þó alltaf eina Bræðslu í einu,“ sagði Magni þegar blaða- maður náði tali af honum í blíð- viðrinu á Egilsstöðum. Hann var að keyra fólk sem þurfti að komast í verslun og vínbúð en engin slík er á Borgarfirði eystri. „Fyrsta ár Bræðslunnar var mun minna í sniðum en núna, enda bara tilraun. Ári seinna fjölgaði gestum um helming en síðan hefur þetta sprungið út,“ segir Magni. „Við höfum verið með tónleikana í sama formi frá árinu 2007. Þetta árið erum við eingöngu með íslenska tónlistar menn. Emilíana Torrini kemur en hún býr í London. Á síðasta ári vorum við með John Grant sem er útlendingur en býr á Íslandi þannig að hér ræður fjölbreytileikinn,“ segir hann enn fremur. Í HEYSKAP „Við höfum reyndar fengið óvenjumargar upphringingar frá útlendingum undanfarið sem spyrja hvar sé hægt að fá miða. Bræðslan fer fram í gamalli síldarverksmiðju sem tekur ekki fleira fólk samkvæmt reglum um eldvarnir og við hlýðum því,“ útskýrir Magni. Veðrið hefur leikið við gesti á Austurlandi í sumar og Magni segir að fólk sé léttklætt og í góðu skapi. „Hér hefur verið rúmlega tuttugu stiga hiti undanfarnar vikur en búist er við rigningu í dag. Það er eigin- lega bara fínt að fá smá vætu eftir Ibiza-veðrið í sumar,“ segir hann kampakátur. Magni hefur dvalið í föður- húsum allan júlímánuð ásamt eiginkonu sinni, Eyrúnu Har- aldsdóttur, og þremur sonum, 9 ára, 2 ára og fimm mánaða. „Borgarfjörður er paradís fyrir börn þótt engin sé sundlaugin. Við höfum ströndina og fallega náttúru. Börnin hlaupa hér frjáls og ég á bara góðar minn- ingar frá bernsku minni hér. Hér þekkjast íbúar vel og nágranna- varslan er góð. Mér líður alltaf best í sveitinni.“ FLUTTUR TIL AKUREYRAR „Ég bjó á Borgarfirði eystri til fimmtán ára aldurs þegar ég fór í heimavistarskóla. Faðir minn er bóndi en móðir mín lést fyrir tveimur árum. Pabbi er með 500 kindur. Ég dvel yfirleitt á sumrin á æskuslóðum og hjálpa til við heyskap og önnur sveita- störf. Síðan er mikil vinna hjá mér fram undan. Næsta helgi er verslunarmanna helgin og þá mun ég þvælast um landið. Verð að skemmta með Skonrokk- hópnum á Þjóðhátíð í Eyjum, síðan á Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki og á Akur eyri. Hér einu sinni var verslunarmanna- helgin vertíð hjá mér en nú er þetta orðið svona um hverja helgi. Það eru bæjarhátíðir í gangi allt sumarið. Ég hef komið á hvert krummaskuð á landinu og tel ekkert eftir mér að ferðast hingað og þangað. Um síðustu helgi ók ég til Þórshafnar sem voru um 300 kílómetrar hvor leið.“ Magni og fjölskylda hans fluttu til Akureyrar síðastliðið sumar og hann er ánægður með þá ákvörðun. „Þar er unaðs- legt að búa,“ segir hann. „Ég er mikið á ferðalögum og það skiptir ekki miklu máli hvar á landinu maður býr.“ TILHLÖKKUN „Fyrir utan Bræðsluna hafa verið tónleikar hér um hverja helgi í sumar þannig að það er mikið um að vera á Borgar- firði eystri. Hér koma fjölmargir ferðamenn og mikið af fjöl- skyldufólki. Margir eru brott- fluttir Borgfirðingar en einnig er mikið um göngufólk. Miðað við fjöldann hér fyrir austan undan- farið mætti ætla að allir Íslend- ingar væru komnir hingað. Það er þakkarvert að fólk ferðist um eigið land,“ segir Magni og viður- kennir að hann hlakki mikið til helgarinnar. ■ elin@365.is MÉR LÍÐUR ALLTAF BEST Í SVEITINNI NÓG AÐ GERA Magni Ásgeirsson hefur staðið vaktina undanfarið við að undir búa tíundu Bræðsluna sem fram fer á Borgarfirði eystri í kvöld. Á morgun verður slakað á og verslunarmannahelgin undirbúin. FJÖR Á BRÆÐSLUNNI Mikill mannfjöldi safnast saman á Borgarfirði eystri þegar Bræðslan fer fram. Þessi mynd var tekin í fyrra og er í eigu Bræðslunnar. MYND/ITORFA Á FERÐINNI Magni hefur verið mikið á ferðinni í sumar vegna tónleika- halds. Sumar 24 6. - 18. september Vínarborg - Búdapest - Prag Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Sp ör e hf . Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir Glæsileg ferð til þriggja fallegra borga í Evrópu. Í Vínarborg eru merkar byggingar sem skreyta alla borgina, Búdapest þykir ein fallegasta borg í heimi og ekki má gleyma gullborginni Prag. Sigling á hinu rómaða Balaton vatni og ungverskt sveitabrúðkaup. Verð: 277.700 kr. á mann í tvíbýli. Örfá sæti laus Mjög mikið innifalið! Póstdreifing býður upp á fjölbreytta og örugga dreifingu á blöðum og tímaritum. Við komum sendingunni í réttar hendur. Örugglega til þín. Birtingur treystir okkur fyrir öruggri dreifingu á Séð og heyrt Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is B ra nd en bu rg Við berum út sögur af frægu fólki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.