Fréttablaðið - 26.07.2014, Qupperneq 31
NAMMIDAGUR
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2014 Kynningarblað Rjómasalat, marengsbomba, brjóstsykursgerð, lakkrísnammi og heimagert gotterí.
Matar- og lífsstílsbloggarinn Guð-
rún Veiga Guðmunds dóttir verður
seint talin upptekin af heilsufæði
en á blogginu hennar gveiga85.
blogspot.com er að finna upp-
skriftir, uppfullar af nammi. Af
blogginu að dæma er hún sérstak-
lega hrifin af Oreo-kexi, súkkul-
aði og hnetusmjöri og bregður því
fyrir í alls kyns útgáfum.
„Ég held að lesendur mínir hafi
farið í gegnum á að giska fimm-
tíu til sextíu megranir með mér.
Ég byrja yfirleitt á mánudögum.
Síðast var það reyndar á sunnu-
dagskvöldi en þeirri tilraun lauk á
þriðjudag. Þá var ég komin í pitsur
og bingókúlur,“ upplýsir Guðrún
Veiga. „Þetta gengur bara engan
veginn hjá mér. Ég þarf bara
mitt Oreo. Annars verð ég bara
ómöguleg. Mér finnst líka voða
gaman að prófa mig áfram og fara
nýjar leiðir í að setja hluti saman;
þess vegna pylsur og hnetusmjör.
Ég hef þó einfaldleikann í fyrir-
rúmi og nenni engu brasi.“
Aðspurð hefur Guðrún Veiga
engan kokkabakgrunn. „Ég er
sennilega vonlausasti kokkur sem
hægt er að finna og fólkinu í kring-
um mig þykir mjög súrrealískt
að ég sé allt í einu orðin einhver
matgæðingur í blöðum og meira
að segja komin með eigin mat-
reiðsluþátt. Það gat ekki nokkur
maður séð fyrir,“ segir Guðrún, en
þátturinn, sem ber nafnið Nenni
ekki að elda, er sýndur á nýju sjón-
varpsstöðinni iSTV.
Guðrún Veiga er litríkur penni
og hefur blogginu, sem var opnað
fyrir einu og hálfu ári, verið afar
vel tekið. „Upphaflega var þetta
hugsað sem tískublogg. Ég var
að bugast yfir mastersritgerðar-
skrifum í mannfræði og henti inn
nokkrum myndum ásamt fimm,
sex orðum. Ég hafði keypt mér
svo glæsileg gul stígvél í Húsa-
smiðjunni á 500 kall og þurfti
bara endilega að koma þeim á
framfæri. Þessi hugmynd fór þó
fljótlega út um þúfur enda átti ég
ekkert meira nýtt til að sýna og
sá fljótt að ég hafði ekki efni á að
þrífast í þessum heimi. Í kjölfarið
þróaðist þetta út í allt og ekkert og
er í raun bara um það sem ég er að
bauka hverju sinni.“
Í framhaldi af blogginu hefur
Guðrún Veiga verið beðin um að
skrifa pistla fyrir hina ýmsu miðla
og nú síðast að taka að sér mat-
reiðsluþátt. „Hann er í mínum
anda og enginn að sjóða kræk-
ling. Við erum búin að taka upp
eina seríu og er önnur í bígerð. Við
leggjum upp með sem minnsta
yfir byggingu og er þátturinn
tekinn upp í eldhúsi í IKEA. Það
hefur gefist ótrúlega vel og fólk
sem á leið hjá er mjög forvitið.“
Guðrún gefur hér uppskrift
að rjómasalati með eplum og
Snickers. „Það er agalega gott og
súpereinfalt sem gæti ekki verið
meira í mínum anda. Ég borðaði
ellefu diska, því miður.“
Fer í megrun á mánudögum
Guðrún Veiga Guðmundsdóttir hefur getið sér gott orð fyrir skemmtilegt lífsstílsblogg. Þar er að finna uppskriftir sem innihalda
ósjaldan haug af nammi. Guðrún Veiga gengur fyrir Oreo-kexi og finnst gaman að fara óhefðbundnar leiðir í bakstri og matargerð.
Guðrún Veiga er lunkin við
að setja alls konar nammi í
nýjan búning. Hún hefur þó
einfaldleikann í fyrirrúmi
og nennir engu brasi.
MYND/DANÍEL
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
Rjómasalat með eplum og
Snickers
1 pakki vanillubúðingur (helst frá
Jello)
1 bolli köld mjólk
½ líter rjómi
6 stykki Snickers
3 rauð epli
Jarðaber eða kíví til skrauts.
Leysið upp búðingsduftið í mjólkinni.
Þeytið rjómann og blandið honum var-
lega saman við búðingsblönduna. Saxið
Snickers og epli og hrærið saman við.
Skreytið með ferskum ávöxtum.