Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2014, Qupperneq 43

Fréttablaðið - 26.07.2014, Qupperneq 43
KYNNING − AUGLÝSING Grillmatur og gæðavín26. JÚLÍ 2014 LAUGARDAGUR 3 SAH afurðir ehf. var stofnað árið 2006 og hefur markmið fyrirtækisins alla tíð verið að veita bændum úrvals þjónustu á samkeppnishæfu verði þegar kemur að slátrun og sölu kjötaf- urða hérlendis. Að sögn Gunnars Tr ygg va Hall- dórssonar, fram- kvæmdastjóra SAH afurða, er fyrirtækið fyrst og fremst slátur- hús og k jöt- vinnsla án þess þó að stunda hefðbundna smá sölu í verslunum landsins. „Við erum fyrst og fremst að selja kjöt til kjötvinnsla sem síðan vinna það áfram í neytendapakkningar. Við erum einnig að reykja talsvert af hangikjöti, eða um 50 tonn á ári. Við bjóðum til dæmis upp á lífrænt lambakjöt en við höfum eina líf- ræna vottaða sláturhúsið hérlendis. Þegar neytendur kaupa lífrænt kjöt þarf það að fara í gegnum lífrænt vottað sláturhús og kjötvinnslu til að það standist allar kröfur um líf- ræna vörur.“ Lífrænar afurðir þarf að aðskilja alveg frá öðru kjöti í slátrun og vinnslu. Þar sem SAH afurðir er með eina slátur- húsið sem hefur gengið frá vottun fyrir lífræna slátrun og vinnslu á lífrænu kjöti ætti allt lífrænt kjöt að fara í gegnum vinnslu þeirra. „Ég vona að framleiðend- ur séu ekki að blekkja neytendur á lífrænu kjöti með því selja lífrænt vottað kjöt sem er slátr- að í húsum sem hafa ekki vottun. Við höfum fengið um 1-3.000 lífræn lömb til slátrunar á ári og fyrir það höfum við greitt aukalega til framleiðanda, auk þess sem lífræn vottun kostar sitt.“ Folaldakjöt vinsælt SAH afurðir bjóða einnig upp á mikið úrval af alls kyns lamba- kjöti, hrossakjöti og nautakjöti og síðan nýtur folaldakjötið allt- af vinsælda hjá ákveðnum hópi viðskiptavina. „Við höfum svar- að kalli neytenda um að koma folaldakjöti á markað um miðjan september. Þannig erum við að slátra folöldum sam- hliða sauðfé á há- annatíma. Í slátur- tíð er ekki óalgengt að við slátrum 2.800 fjár og 80 stórgripum dag- lega. Það hefur heldur verið aukning í folalda- slátrun hjá okkur þar sem við borgum hærra verð en nágrannar okkar á Norður- landi vestra.“ Hjá SAH afurðum er hægt að kaupa heila og hálfa skrokka og þannig birgja sig upp á hagstæðu verði. „Algengt er að fólk kaupi lamb, naut eða folald og láti kjöt- iðnaðarmenn úrbeina og pakka. Viðskiptavinir ákveða í samráði við fagmenn okkar hvernig kjöt- ið er unnið og pakkað. Það er mikil vægur þáttur að framleiðsl- an passi kaupandanum sem best. Sumir taka 300 gr. pakkn ingar sem eru með smærri heimili en stærri barnafjölskyldur velja oft 900 gr. pakka sem passar þeim betur.“ Besta grillkjötið Aðeins er notað hreint íslensk t kjöt án allra auka- efna svo það er vissulega hægt að tala um gæðavöru í þessu samhengi. Kjötið er ýmist selt frosið eða ferskt en einnig bjóða SAH af- urðir upp á reykingu, söltun, kryddun og fleiri vinnslu- möguleika. „Núna er grillkjötið vinsælt og SAH afurðir selja mikið af grillpökkum úr heilum skrokk- um. Þá er einnig lambaskrokkur unninn í grillsneiðar og mariner- ingu. Þetta er vinsæll pakki fyrir þá sem grilla mikið og svo er þetta einfaldlega besta grillkjötið.“ Fyrirtækið selur mikið af smá- söluvörum á Blönduósi, bæði í Samkaupum og í verslun SAH afurða. „Heimamenn vilja hafa möguleika á að kaupa kjöt úr héraði. Eins er boðið upp á gjafa körfur og gjafapakka fyrir jólin en við erum með stóran og góðan viðskiptavina- hóp sem kaupir gjafa- pakka af okkur ár eftir ár.“ Eina smásöluvara SAH afurða á landsvísu er Kosta sviðasulta sem marg- oft hefur fengið viðurkenn- ingar fyrir gæði og bragð í Fag- keppni kjötiðnaðarmanna. Allar nánari upplýsingar um SAH afurðir og vörur þess má finna á sahun.is. Einfaldlega besta grillkjötið Slátrun og vinnsla ýmissa kjötafurða hefur verið stunduð á Blönduósi í rúmlega öld. SAH afurðir eru eitt lykilfyrirtækja bæjarins og bjóða upp á fjölbreytt úrval kjötvara sem selt er til kjötvinnsla, fyrirtækja og einstaklinga um land allt. Kosta sviðasultan hefur margoft fengið viðurkenningar fyrir gæði og bragð. Grillpakkarnir frá SAH afurðum innihalda gæðakjöt og hafa notið mikilla vinsælda um land allt. Glæsilegur jólagjafapakki SAH afurða frá síðustu jólum. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI Gunnar Tryggvi Halldórsson Húsnæði SAH afurða á Blönduósi. Glæsilegt úrval kjöts í verslun SAH afurða á Blönduósi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.