Fréttablaðið - 26.07.2014, Síða 44
Grillmatur og gæðavín LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 20144
Masi Modello Rosso
3 lítrar
Ítalía/Veneto 6.650 kr.
Rúbínrautt. Létt fylling, þurrt,
fersk sýra, milt tannín. Dökk ber,
krydd, blómlegt.
Smellpassar með pasta, græn-
metisréttum og smáréttum.
Montalto Nero D’Avola
Merlot 3 lítrar
Ítalía/Sikiley 5.999 kr.
Vín sem hentar vel með
alifuglakjöti, pastaréttum,
einnig flott með reyktu kjöti.
Montalto Chardonnay
3 lítrar
Ítalía/Sikiley 5.599 kr.
Sítrónugult. Létt meðalfylling,
ósætt, mild sýra. Epli, pera,
hunang.
Flott vín sem fordrykkur, einnig
ljúft með fisk- og skelfiskréttum.
Montalto Syrah
Ítalía/Sikiley 5.999 kr.
Rúbínrautt. Meðalfylling,
þurrt, fersk sýra, lítið þurrkandi
tannín. Dökk ber, sólbakað.
Hentar vel með svínakjöti,
ostum, grillmat og pasta-
réttum.
Gato Nero Chardonnay
3 lítrar
Síle 5.799 kr.
Ljóssítrónugult. Létt fylling,
þurrt, fersk sýra. Epli, eplakjarni,
sítrus.
Þetta vín hentar sem fordrykkur,
einnig flott með fisk- og skel-
fiskréttum.
Talsverð vakning hefur orðið hjá vínframleið-endum varðandi kassavínin síðustu ár. Áður var enginn sérstakur stimpill á þessum kassa-
vínum en menn hafa gert sér grein fyrir að í þeim
liggja mikil markaðstækifæri og leggja því meiri
metnað í vínin en áður,“ segir Jóhann Marel Viðars-
son, þjónn og kennari hjá Vínskóla Ölgerðarinnar.
Hann segir hráefnið í kassavínunum ekki hafa verið
af miklum gæðum hér áður fyrr. „Þegar verið er að
pressa vínber, stilka og steina er ákveðinn djús sem
er ekki æskilegur í fínni vínum og þá var hann frekar
notaður í kassavínin. Í dag er hins vegar verið að
nota betri djús í kassavínin auk þess sem fleiri flott-
ir framleiðendur hafa farið inn á þennan markað,“
segir Jóhann og bætir við að einnig hafi orðið vakning
í umbúðahönnun. „Sumir kassanna sóma sér mjög
vel uppi á borði.“
Kassarnir hafa marga kosti fram yfir hinar hefð-
bundnu flöskur. „Í fyrsta lagi er mun hagkvæmara að
kaupa vín í kassa. Það má segja að fólk sé að fá fjórar
flöskur á verði þriggja. Þá geymist vínið mun lengur.
Gera má ráð fyrir að vín í kassa geymist í allt að fjórar
til sex vikur eftir opnun, við rétt geymsluskilyrði. Vín
í flösku lifir ekki lengur en þrjá, fjóra daga frá opnun,“
útskýrir Jóhann en ástæðan fyrir löngu geymsluþoli
kassavínanna er að pokarnir sem vínið er geymt í eru
lofttæmdir.
Hentug í ferðalagið
Inntur eftir því hvar kassavínin eigi best við svarar
Jóhann glaðlega: „Í raun við öll tækifæri þar sem á að
gleðja sálina. En vissulega eiga þau einna best við í
ferðalagið, til dæmis í bústaðinn eða tjaldferða lagið,“
segir Jóhann. Helstu kostir kassanna í ferðalaginu er
auðvitað sá að þeir brotna ekki og auðvelt er að stafla
þeim upp í bílnum. Jóhann nefnir einnig að kassa-
vínin séu hagkvæmur kostur í brúðkaup. „Þá mætti
til dæmis hella víninu yfir í karöflur.“
En á hann sér uppáhaldsvín? „Já, ég er mjög hrifinn
af Lindeman-vínunum. Svo eru Giacondi-vínin alveg
sérstaklega fersk. Ég tók þátt í að smakka þau þegar
þau komu fyrst til landsins og þau náðu mér strax í
byrjun, en það er ekki alltaf þannig með kassavínin.“
Kassavínin eru snilld í útileguna
og bústaðinn í sumar
Mikil framför hefur orðið í þróun kassavína undanfarin ár. Þau þykja nærri því að vera á pari við flöskuvínin en eru hagkvæmari
kostur auk þess sem þau smellpassa í útilegur og sumarbústaðaferðir.
Giacondi Pinot Grigio 3 lítrar
Ítalía/Veneto 5.999 kr.
Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt,
mild sýra. Ljós ávöxtur, stjörnu-
ávöxtur, krydd.
Vín sem passar sem fordrykkur, með
fiskréttum og einnig grænmetis-
réttum.
Jóhann Marel Viðarsson, þjónn og kennari í Vínskóla Ölgerðar-
innar, segir mikla framför hafa orðið í gæðum kassavína.
MYND/DANÍEL
Gato Negro Cabernet
Sauvignon 3 lítrar
Síle 5.600 kr.
Rúbínrautt. Létt fylling,
þurrt, mild sýra, milt tannín.
Sætkenndur rauður ávöxtur,
berjaríkt.
Vín sem flott er að neyta
með lambakjöti, grillréttum,
ostum og pastaréttum.
Lindemans Chardonnay
3 lítrar
Ástralía 6.799 kr.
Ljóssítrónugult. Létt meðalfyll-
ing, þurrt, fersk sýra. Suðrænn
ávöxtur, ferskja.
Flott vín sem hentar með fisk- og
skelfiskréttum, alifuglakjöti og
smáréttum.
Lindemans Shiraz
Cabernet 3 lítrar
Ástralía 6.799 kr.
Kirsuberjarautt. Meðalfylling,
hálfþurrt, fersk sýra, milt tannín.
Kirsuber, dökk ber, plóma,
minta.
Þetta vín hentar vel með ali-
fugla kjöti, svínakjöti og grillmat.
Mamma Piccini 3 lítrar
Ítalía/Toskana 5.560 kr.
Kirsuberjarautt. Meðalfylling,
þurrt, fersk sýra, miðlungstannín.
Dökk og rauð ber, lyng.
Vín sem passar með alifugla- og
svínakjöti, einnig með pasta-
réttum sem og smáréttum.
Giacondi Cabernet 3 lítrar
Ítalía 5.770 kr.
Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling,
ósætt, fersk sýra, miðlungstannín.
Kirsuber, plómur, laufkrydd, jörð.
Smellpassar með nauta- og svína-
kjöti sem og gott með ostum.
Piccini 2 lítrar
Lífrænt ræktað rauðvín
Ítalía/Toskana 4.499 kr.
Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, þurrt,
fersk sýra, milt tannín. Kirsuber, lauf-
krydd, sólbakað.
2 lítra pakkning, lífrænt ræktað vín,
passar vel með svína- og lambakjöti,
einnig flott með grillmat og smáréttum.