Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2014, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 26.07.2014, Qupperneq 44
Grillmatur og gæðavín LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 20144 Masi Modello Rosso 3 lítrar Ítalía/Veneto 6.650 kr. Rúbínrautt. Létt fylling, þurrt, fersk sýra, milt tannín. Dökk ber, krydd, blómlegt. Smellpassar með pasta, græn- metisréttum og smáréttum. Montalto Nero D’Avola Merlot 3 lítrar Ítalía/Sikiley 5.999 kr. Vín sem hentar vel með alifuglakjöti, pastaréttum, einnig flott með reyktu kjöti. Montalto Chardonnay 3 lítrar Ítalía/Sikiley 5.599 kr. Sítrónugult. Létt meðalfylling, ósætt, mild sýra. Epli, pera, hunang. Flott vín sem fordrykkur, einnig ljúft með fisk- og skelfiskréttum. Montalto Syrah Ítalía/Sikiley 5.999 kr. Rúbínrautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, lítið þurrkandi tannín. Dökk ber, sólbakað. Hentar vel með svínakjöti, ostum, grillmat og pasta- réttum. Gato Nero Chardonnay 3 lítrar Síle 5.799 kr. Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, fersk sýra. Epli, eplakjarni, sítrus. Þetta vín hentar sem fordrykkur, einnig flott með fisk- og skel- fiskréttum. Talsverð vakning hefur orðið hjá vínframleið-endum varðandi kassavínin síðustu ár. Áður var enginn sérstakur stimpill á þessum kassa- vínum en menn hafa gert sér grein fyrir að í þeim liggja mikil markaðstækifæri og leggja því meiri metnað í vínin en áður,“ segir Jóhann Marel Viðars- son, þjónn og kennari hjá Vínskóla Ölgerðarinnar. Hann segir hráefnið í kassavínunum ekki hafa verið af miklum gæðum hér áður fyrr. „Þegar verið er að pressa vínber, stilka og steina er ákveðinn djús sem er ekki æskilegur í fínni vínum og þá var hann frekar notaður í kassavínin. Í dag er hins vegar verið að nota betri djús í kassavínin auk þess sem fleiri flott- ir framleiðendur hafa farið inn á þennan markað,“ segir Jóhann og bætir við að einnig hafi orðið vakning í umbúðahönnun. „Sumir kassanna sóma sér mjög vel uppi á borði.“ Kassarnir hafa marga kosti fram yfir hinar hefð- bundnu flöskur. „Í fyrsta lagi er mun hagkvæmara að kaupa vín í kassa. Það má segja að fólk sé að fá fjórar flöskur á verði þriggja. Þá geymist vínið mun lengur. Gera má ráð fyrir að vín í kassa geymist í allt að fjórar til sex vikur eftir opnun, við rétt geymsluskilyrði. Vín í flösku lifir ekki lengur en þrjá, fjóra daga frá opnun,“ útskýrir Jóhann en ástæðan fyrir löngu geymsluþoli kassavínanna er að pokarnir sem vínið er geymt í eru lofttæmdir. Hentug í ferðalagið Inntur eftir því hvar kassavínin eigi best við svarar Jóhann glaðlega: „Í raun við öll tækifæri þar sem á að gleðja sálina. En vissulega eiga þau einna best við í ferðalagið, til dæmis í bústaðinn eða tjaldferða lagið,“ segir Jóhann. Helstu kostir kassanna í ferðalaginu er auðvitað sá að þeir brotna ekki og auðvelt er að stafla þeim upp í bílnum. Jóhann nefnir einnig að kassa- vínin séu hagkvæmur kostur í brúðkaup. „Þá mætti til dæmis hella víninu yfir í karöflur.“ En á hann sér uppáhaldsvín? „Já, ég er mjög hrifinn af Lindeman-vínunum. Svo eru Giacondi-vínin alveg sérstaklega fersk. Ég tók þátt í að smakka þau þegar þau komu fyrst til landsins og þau náðu mér strax í byrjun, en það er ekki alltaf þannig með kassavínin.“ Kassavínin eru snilld í útileguna og bústaðinn í sumar Mikil framför hefur orðið í þróun kassavína undanfarin ár. Þau þykja nærri því að vera á pari við flöskuvínin en eru hagkvæmari kostur auk þess sem þau smellpassa í útilegur og sumarbústaðaferðir. Giacondi Pinot Grigio 3 lítrar Ítalía/Veneto 5.999 kr. Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, mild sýra. Ljós ávöxtur, stjörnu- ávöxtur, krydd. Vín sem passar sem fordrykkur, með fiskréttum og einnig grænmetis- réttum. Jóhann Marel Viðarsson, þjónn og kennari í Vínskóla Ölgerðar- innar, segir mikla framför hafa orðið í gæðum kassavína. MYND/DANÍEL Gato Negro Cabernet Sauvignon 3 lítrar Síle 5.600 kr. Rúbínrautt. Létt fylling, þurrt, mild sýra, milt tannín. Sætkenndur rauður ávöxtur, berjaríkt. Vín sem flott er að neyta með lambakjöti, grillréttum, ostum og pastaréttum. Lindemans Chardonnay 3 lítrar Ástralía 6.799 kr. Ljóssítrónugult. Létt meðalfyll- ing, þurrt, fersk sýra. Suðrænn ávöxtur, ferskja. Flott vín sem hentar með fisk- og skelfiskréttum, alifuglakjöti og smáréttum. Lindemans Shiraz Cabernet 3 lítrar Ástralía 6.799 kr. Kirsuberjarautt. Meðalfylling, hálfþurrt, fersk sýra, milt tannín. Kirsuber, dökk ber, plóma, minta. Þetta vín hentar vel með ali- fugla kjöti, svínakjöti og grillmat. Mamma Piccini 3 lítrar Ítalía/Toskana 5.560 kr. Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, miðlungstannín. Dökk og rauð ber, lyng. Vín sem passar með alifugla- og svínakjöti, einnig með pasta- réttum sem og smáréttum. Giacondi Cabernet 3 lítrar Ítalía 5.770 kr. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Kirsuber, plómur, laufkrydd, jörð. Smellpassar með nauta- og svína- kjöti sem og gott með ostum. Piccini 2 lítrar Lífrænt ræktað rauðvín Ítalía/Toskana 4.499 kr. Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, þurrt, fersk sýra, milt tannín. Kirsuber, lauf- krydd, sólbakað. 2 lítra pakkning, lífrænt ræktað vín, passar vel með svína- og lambakjöti, einnig flott með grillmat og smáréttum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.