Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Fréttablaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 50
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 20144 MARGT Í BOÐI Á AKUREYRI Fjölskylduhátíðin Ein með öllu fer fram á Akureyri um verslunar- mannahelgina. Mikið verður um dýrðir í bænum og fjölbreytt dag- skrá í gangi fyrir allan aldur. Á sunnudagskvöld verður glæsileg flugeldasýning en hátíðin hefst á útitónleikum á fimmtudagskvöldið í Skátagilinu. Karamellurigning verður í göngugötunni á föstudag og Sirkus Íslands sýnir valin atriði. Kirkjutröppuhlaup verður kl. 16 og leikhópurinn Lotta verður með skemmtun. Boðið er upp á andlits- málun. Á föstudagskvöldið verður mikið stuð á Ráðhústorginu en þar koma fram Hafdís Huld, Dúndur- fréttir, Freyr Scheving, Rúnar Eff, Blaz Roca og Steindi jr. og Bent. Dans- leikir verða víða um bæinn. Á laugardaginn er fjöl- skylduskemmtun í bænum með glæsilegri dagskrá og margir þekktir tónlistarmenn koma síðan fram um kvöldið. Ítarlega dagskrá má skoða á heimasíðunni einmedollu.is. Vert er að benda á markaðsstemningu á Ráðhústorginu á sunnudag kl. 12 þar sem ýmsir fallegir listmunir verða í boði. ALLT Í DRULLU Á ÍSAFIRÐI Eins og undanfarin ár verður mýrar boltamót á Ísafirði um versl un- ar mannahelgina. Á mótinu er hefð fyrir því að þátttakendur mæti til leiks í metnaðarfullum búningum. Sagt er að flottustu búningarnir fái meiri athygli en boltinn sjálfur. Leikið er í Tunguskógi í Skutulsfirði en leikurinn fer fram á laugardags- morgun. Skráning fer fram degi fyrr. Mikið stuð verður á Ísafirði í tilefni mýrarboltans, dúndurball í Edin- borgarhúsinu á laugardagskvöld en ekki verður síður fjör á sunnudags- kvöldið þar sem Mammút, Jón Jóns- son, Frikki Dór og Kiriyama Family koma fram í íþróttahúsinu Torfnesi. Oft taka vinahópar sig til og setja saman lið til að keppa á mótinu og skapast oft mikil stemning. Aldurstakmark til þátt- töku er 18 ár. Vellirnir eru átta og er reynt að hafa næga drullu á hverjum þeirra. Mýrarboltafélag Íslands er áhugamannafélag Ísfirðinga en það hefur staðið fyrir drulluboltanum frá upphafi. Mýrarboltinn 2014 er á Facebook. Tónlistarhátíðin Innipúkinn verður haldin þrettánda árið í röð í Reykjavík um versl- unar mannahelgina. Hátíðin var fyrst hald- in árið 2002 og hafa margar vinsælustu hljómsveitir og listamenn landsins komið þar fram auk nokkurra erlendra sveita. Hátíðin fer í ár fram samtímis á tveimur stöðum í miðbænum sem standa hlið við hlið; Gauknum og Húrra. Á meðal listamanna sem koma fram um helgina eru Snorri Helga- son, dj flugvél og geimskip, Borko & Futuregrapher, Ojba Rasta, Sísí Ey, Benni Hemm Hemm, Amaba Dama, Kött Grá Pje, Reykjavíkurdætur, Ólöf Arnalds og Megas + Grísalappalísa. Það var Gunnar Lárus Hjálmars- son, betur þekktur sem Dr. Gunni, sem átti frumkvæði að fyrstu hátíðinni sem sett var á fót fyrir þá innipúka sem vildu eyða verslunar- mannahelginni í Reykjavík í stað þess að fara á útihátíð eða dvelja í tjaldi úti á landi. Á meðal listamanna sem spilað hafa undanfarin ár eru Dikta, FM Belfast, Trabant, Mínus, Mugison, Hjaltalín og Raggi Bjarna auk erlendu sveitanna Blonde Redhead og Raveonettes. Hátíðin stendur yfir alla þrjá dagana og hefst dagskráin klukkan 21 öll kvöldin. Lokahljómsveit kvöldsins stígur á svið um kl. 1 eftir miðnætti. Allar upplýsingar um listamenn og dagskrá hátíðarinnar er að vinna á innipukinn.is og á Facebook. INNIPÚKINN HALDINN Í ÞRETTÁNDA SINN EX PO • w w w .e xp o. is VIÐ SKUTLUM ÞÉR! *Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka á: 3.500 kr. 1.750 kr.* FYRIR AÐEINS Frí þráðlaus internet - tenging í öllum bílum Ferðatími u.þ.b. 45 mínútur Alltaf laus sæti Alltaf ferðir Hagkvæmur kostur Umhverfisvænt BSÍ - Umferðarmiðstöðin 101 Reykjavík 580 5400 main@re.is • www.re.is OR Skannaðu strikamerkið með snjallsímanum og kynntu þér áætlunina. Kauptu miða núna á www.flugrutan.is Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.