Fréttablaðið - 26.07.2014, Síða 54
26. júlí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 26
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is.
Heilabrot
Að venju efna Borgarbókasafn og Reykjavík Bókmenntaborg til sumarlesturs á meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá les-
endur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og skila í kassa sem eru í öllum söfnum Borgarbókasafns. Vikulega
er dregið eitt nafn úr kassanum og Lestrarhestur vikunnar útnefndur, sem hlýtur bók að launum frá Forlaginu.
Lestrarhestur vikunnar
Hvað heitir þú fullu nafni og
hversu gamall ertu? „Ég heiti
Bjartur Jörfi Ingvason og ég er
alveg að verða 12 ára.
Hvernig tengist þú Skoppu
og Skrítlu? Skrítla er mamma
mín. Þegar ég var tveggja ára
þá bjó mamma til Skoppu og
Skrítlu með Lindu Ásgeirs-
dóttur bara til að gleðja mig.“
Hvenær byrjaðir þú að leika
með þeim? „Ég lék með þeim
í fyrstu myndinni, Skoppa og
Skrítla í Húsdýragarðinum, og
þá var ég minnstur, bara alveg
að verða tveggja ára.“
Hvaða hlutverk hefur þú
leikið? „Ég hef leikið mörg
hlutverk með Skoppu og
Skrítlu og svo hef ég líka leikið
í mörgum stuttmyndum og í
einni kvikmynd sem er ekki
komin út enn þá.“
Hvaða hlutverk ertu að leika
með þeim núna og hvernig
persóna er það? „Ég leik
Zúmma. Hann er vinur Skoppu
og Skrítlu og er alltaf eitthvað
að stríða þeim og prakkarast.“
Syngur þú á sviðinu? „Já,
nokkur lög. Zúmmi á til dæmis
lag sem fjallar um hann sjálfan
og hversu mikill fjörkálfur
hann er.“
Hefurðu lært mikið af Skoppu
og Skrítlu? „Já, mjög mikið.
Mamma lætur okkur systkinin
alltaf fara í prufur eins og alla
hina krakkana sem leika með
þeim. Hún vill ekki að við séum
að leika með þeim bara af því
við erum börnin hennar heldur
þurfum við að sýna hvað við
getum og vinna fyrir því.“
Gætir þú hugsað þér að verða
leikari í framtíðinni? „Já, mig
langar mikið að verða leikari.
Mér finnst samt skemmtilegra
að leika fyrir myndavélina en
á sviðinu, þó að það sé hvort
tveggja mjög skemmtilegt.“
Hver eru annars helstu áhuga-
málin þín? „Ég æfi handbolta
og fótbolta með Val.“
Hefurðu gert eitthvað
skemmtilegt í sumar annað
en að æfa í leikhúsinu? „Já,
fullt. Ég er búinn að spila mjög
mikinn fótbolta og svo fór ég í
Vatnaskóg og í sumarbústað og
í ágúst fer ég til Tyrklands með
fjölskyldunni minni og vinum
okkar.“
Alltaf eitthvað að
stríða og prakkarast
Bjartur Jörfi Ingvason leikur í afmælissýningu Skoppu og Skrítlu sem
eru einmitt tíu ára í dag. Hann lék líka í fyrstu myndinni þeirra, þá að
verða tveggja ára.
LANGAR AÐ VERÐA LEIKARI Skoppa og Skrítla voru búnar til fyrir hann fyrir tíu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
1. Hvað er það sem er minna en mús, hærra en hús, dýrara en öll
Danmörk ef það fengist ekki?
2. Hver eru þau fjögur mannanöfn sem þú sérð út um gluggann?
3. Tvo fætur hef ég, en aðeins þegar ég hvíli mig snerta þeir grund.
Hver er ég?
4. Hvað er það sem Guð gefur þér tvisvar, en í þriðja sinn þarft þú að
borga fyrir það?
5. Hvað getur svarað öllum spurningum, og það á öllum tungu-
málum?
Svör:
1. Eldur. 2. Loftur, Stígur, Steinn, Máni. 3. Hjólbörur. 4. Tennur.
5. Bergmál.
Bragi Halldórsson
106
„Er þetta ekki talnavölundarhúsið þar sem við eigum að byrja
á bláu tölunni neðst og með því að fylgja bara sléttum tölum
lárétt og lóðrétt en ekki á ská, finna leið upp á topp
teningsins, bláu tölunnar sex?,“ spurði Kata. „Jú,“ sagði
Lísaloppa. „Við eigum að fylgja sléttu tölunum 2, 4, 6, og 8.“
„Mig minnti það,“ sagði Kata. „Mér gekk nú ekkert of vel síðast
þegar við glímdum við svona þraut en nú skal það ganga betur,“
sagði hún ákveðin og keppnisskapið leyndi sér ekki.
Getur þú fundið leiðina í gegnum teninginn með því að fylgja
sléttu tölunum lárétt og lóðrétt?
8 6 2 5 3 7 8 6 2 5 7 9
2 5 2 4 1 8 4 3 7 8 3 2
6 8 5 6 4 2 5 4 2 6 7 6
5 4 8 1 7 4 5 9 3 8 2 4
2 5 2 2 6 5 2 3 6 3 5 6
3 4 2 3 5 1 2 6 4 2 8 4
4 6 4 2 5 2 9 1 3 6 2 9
7 6 7 3 1 3 7 3 2 8 7 8
5 8 9 4 8 4 2 5 4 3 9 2
6 8 5 2 1 3 6 8 6 4 2 6
2 1 6 4 3 7 3 2 8 2 7 2
2 6 4 7 8 6 8 4 5 1 5 6
Hvað er skemmtilegast við
bækur? Það er að detta inn
í söguna eins og þegar ég
horfi á bíómyndir. Hvaða bók
lastu síðast og um hvað var
hún? Það var Harry Potter
og Fönixreglan og er um það
þegar Fönixreglan heimsækir
Harry Potter. Manstu eftir
fyrstu bókinni sem var í upp-
áhaldi hjá þér? Fyrstu bæk-
urnar sem voru í uppáhaldi
hjá mér voru bækur eftir Ast-
rid Lindgren, ein af þeim var
Ég vil líka eignast systkini.
Hvers lags bækur þykir
þér skemmtilegastar? Mér
finnst spennandi ævin-
týrabækur eins og Harry
Potter og svo er Grimms-
systur-serían eftir Michael
Buckley (búið að þýða tvær)
æðislega skemmtileg. Það
er spennandi þegar brotin
byrja að raðast saman og
heila myndin birtist í lokin.
Í hvaða skóla gengur þú?
Langholtsskóla. Ferðu oft á
bókasafnið? Já, ég fer bæði í
Sólheimasafn og skólasafnið
í Langholtsskóla og svo kaupi
ég mér bækur. Hver eru þín
helstu áhugamál? Ég æfi
söng, leiklist og dans.
Kolbrún Sara Haraldsdóttir
12 ára