Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Fréttablaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 26.07.2014, Blaðsíða 66
26. júlí 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 38 Tekjur íslenskra liða af Evrópukeppnum FÓTBOLTI Kvennalið Selfoss braut blað í sögu félagsins á fimmtudags- kvöldið þegar það tryggði sér sæti í úrslitaleik Borgunarbikarsins eftir sigur á Fylki, en Selfoss hefur aldrei áður átt lið í úrslitaleik bikarkeppn- innar í knattspyrnu, hvorki kvenna- né karlalið. Sigurinn var þó allt annað en auð- sóttur. Staðan var jöfn, 2-2, að lokn- um venjulegum leiktíma og fram- lengingu. Alexa Gaul var svo hetja Selfyssinga í vítakeppninni þar sem hún varði öll þrjú víti Fylkiskvenna og skoraði sjálf úr sinni spyrnu. „Þetta var ótrúlega sætt og ótrú- lega skemmtilegur leikur að spila,“ sagði fyrirliðinn Guðmunda Brynja Óladóttir sem fannst Selfyssingar vera með undirtökin stóran hluta leiksins. „Mér fannst við vera betri aðilinn fyrsta hálftímann í báðum hálfleikjum, en svo duttum við niður og þær refsuðu okkur. Þetta var bar- áttuleikur tveggja liða sem vildu svo sannarlega komast í úrslitaleikinn. En Alexa er frábær í vítum og það var meiri ró yfir okkur en Fylkis- liðinu í vítaspyrnukeppninni,“ bætti Guðmunda við, en hún hefur verið lengi að þrátt fyrir ungan aldur. Guðmunda hefur skorað 25 mörk í 45 leikjum fyrir Selfoss í efstu deild. Guðmunda segir sigurinn á fimmtudaginn stærstu stundina á ferlinum til þessa: „Já, ég held það. Þetta toppaði það þegar við fórum upp um deild fyrir þremur árum. Við erum allar mjög spenntar. Þetta er náttúrulega fyrsti bikarúrslita- leikurinn hjá flestum okkar og verður ótrúlega spennandi,“ sagði Guðmunda sem bar lof á Dagnýju Brynjarsdóttur og Thelmu Björk Einarsdóttur, sem komu til Selfoss fyrir tímabilið, og sagði þær eiga stóran þátt í góðu gengi liðsins á tímabilinu. Bikarúrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli þann 30. ágúst næstkomandi. - iþs Allar mjög spenntar fyrir úrslitaleiknum Selfoss komst í fyrsta sinn í sögu félagsins í úrslitaleik bikarkeppninnar eft ir sigur á Fylki á fi mmtudaginn. EINBEITT Guðmunda Brynja Óladóttir er fyrirliði Selfoss. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Annað árið í röð hafa íslensk félög góðar tekjur af þátt- töku sinni í Evrópukeppnunum en árangur FH og Stjörnunnar í Evrópudeildinni í ár þýðir að þau fjögur íslensku lið sem tóku þátt í Evrópukeppnunum hafa nú þegar tryggt sér 196 milljónir króna. Íslensku liðin hafa þó ekki enn náð tekjum síðasta árs, sem fóru yfir 200 milljónir. Mestu munaði um árangur FH sem komst áfram í þriðju umferð forkeppni Meist- aradeildar Evrópu og tryggði sér þannig 112 milljónir frá Knatt- spyrnusambandi Evrópu, UEFA. FH og Stjarnan eru nú þegar hvort komið með samtals 60 millj- ónir í öruggar tekjur fyrir að komast í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar en 23 millj- ónir bætast við fyrir sigur í næstu umferð. Fram féll úr leik í fyrstu umferð keppninnar í ár og fékk tæpar nítján milljónir frá UEFA. Verðmætast er þó að komast í Meistaradeildina en Íslandsmeist- arar KR fóru beint í 2. umferð for- keppninnar. Þó svo að liðið hafi þar lotið í lægra haldi fyrir Celtic fær KR engu að síður 58 milljónir frá UEFA fyrir þátttöku sína í keppninni. KR hafði einnig vænar tekjur af því að selja BBC Scotland sjónvarpsrétt leiksins en Krist- inn Kjærnested, formaður knatt- spyrnudeildar KR, segir að það hafi reynst mikill happafengur. „Það var annar heimur en við höfum áður upplifað í þessum málum. Þetta var væn upphæð,“ segir Kristinn en vildi þó ekki gefa upp hversu mikið hafi fengist fyrir réttinn. „Það var þó ekki jafnhá upphæð og við fengum frá UEFA og nokkuð undir því. En væn engu að síður.“ Rándýrt ferðalag til Kasakstan Tekjurnar frá UEFA segja þó aðeins hálfa söguna því oft getur gríðarmikill ferðakostnaður fylgt þátttöku í Evrópukeppni. Eitt besta dæmið um það er ferð Breiðabliks til Kasakstan eftir að liðið dróst gegn Aktobe í fyrra. „Sú umferð kom út í 2-3 millj- óna tapi fyrir okkur,“ sagði Borg- hildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, við Fréttablaðið en félagið fékk um 20 milljónir króna fyrir þátttöku sína í þriðju umferð, líkt og FH og Stjarnan nú. Borghildur sagði að félagið hefði bæði þurft að gista í München á leiðinni heim og að fara með leiguflugi þaðan til Kasakstan og til baka. FH slapp því vel þegar ljóst var að liðið myndi mæta Elfsborg frá Svíþjóð í næstu umferð en ekki liði frá Bakú í Aserbaídsjan. „Það munaði heilmiklu fyrir okkur, ekki síst fjárhagslega,“ sagði Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH. Fleiri kostnaðarliðir Stjarnan er nú að taka þátt í Evr- ópukeppni í fyrsta sinn en hingað til hafa ferðalög liðsins verið hag- stæð – til Wales og Skotlands. Næst heldur liðið til Póllands. Almar Guðmundsson, for maður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, segir þó að ýmsir aðrir kostnaðar- liðir falli til, sérstaklega fyrir lið sem eru að taka þátt í Evr- ópukeppni í fyrsta sinn eins og Stjarnan gerir nú. „Til dæmis eru gerðar kröfur um ákveðnar læknisskoðanir sem kosta um eina og hálfa milljón. Það er heilmikið sem tínist til,“ sagði Almar en þess má geta að fleiri tekjuliðir bætast sömuleiðis við, eins og sala aðgangsmiða. Formennirnir eru sammála um að tekjur af þátttöku í Evrópu- keppni skipti íslensku liðin miklu máli og Almar bendir á tekjur af Evrópukeppni geti skapað ójöfnuð á milli íslensku liðanna. „Það reyndist okkur alltaf mjög erfitt að halda í við þau lið sem tóku reglulega þátt í Evrópukeppninni,“ segir Almar. „Tekjur sem þessar hjálpa verulega til við rekstur deildarinnar og uppbyggingu til framtíðar. Því hafa þær svo mikið að segja.“ eirikur@fretttabladid.is Hafa tryggt sér 196 milljónir Íslensku félögin sem komust í Evrópukeppnina í ár hafa nú þegar tryggt sér rétt tæpar 200 milljónir króna í tekjur frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA. FH og Stjarnan eiga möguleika á að afl a sér enn frekari tekna. EVRÓPA Stjörnumenn halda Evrópuævintýri sínu áfram eftir magnaðan sigur á Motherwell. Næsti mótherji er pólska liðið Lech Poznan. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Evrópudeildin Meistaradeildin 1. umferð 18,5 m. kr. 2. umferð 20,0 m. kr. 58,0 m. kr. * 3. umferð 21,6 m. kr. * Þar af fær KR 30,9 m. kr. frá UEFA fyrir að komast ekki í riðlakeppnina. STJARNAN – ÍBV Sunnudag 27. júlí kl. 17.00 PEPSI–DEILDIN Allir á völlinn! EINN AF LYKIL LEIKJUM ÁRSINS! Nj óttu með v eitingum frá Aal to Bi str o GOLF Ólafía Þórunn Kristins- dóttir og Ragnhildur Kristins- dóttir, báðar úr GR, eru efstar og jafnar eftir tvo hringi á Íslands- mótinu í höggleik. Ólafía lék á einu höggi undir pari í gær og Ragnhildur á parinu, en þær eru báðar á fjórum höggum yfir pari. Birgir Leifur Hafþórsson er í forystu á sínum heimavelli í karlaflokknum. Hann spilaði á þremur höggum undir pari í gær og er samtals á átta höggum undir pari, fjórum höggum á undan næsta manni. - tom Mikil spenna í kvennafl okki ANNAR TITILL? Ólafía Þórunn varð meistari árið 2011. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.