Fréttablaðið - 14.08.2014, Síða 1
FRÉTTIR
A llir sem hyggja á þátttöku í Reykja-víkurmaraþoninu ættu að búa sig vel undir hlaupið, sama hversu langt þeir ætla að hlaupa. Það er mikilvægt að líkaminn sé í toppstandi svo að upplifunin sem fylgir því að hlaupa verði sem allra best. Þar kemur Nutrilenk Active að góðum notum. Áralöng reynsla og rannsóknir gefa til kynna að það hjálpi til við að auka heil-brigði liðanna, minnki verki, brak og stirð-leika og auki þar með hreyfigetu og færni. SMURNING FYRIR LIÐINANutrilenk Active er unnið úr vatnsmeð-höndluðum hanakambi sem inniheldur hátt hlutfall af náttúrulega efninu hýalúronsýru sem getur aukið liðleika og séð til þess að liðirnir séu vel smurðir. Því hafa margir læknar mælt með Nutrilenk Active og sjúkraþjálfarar, kírópraktorar og einkaþjálf-arar greint frá góðri reynslu sinna skjól-stæðinga.
Friðleifur Friðleifsson er mikill íþrótta-
maður og hefur hlaupið frá árinu 2008.
Hann hefur tekið þátt í öllum helstu hlaupum sem boðið er upp á á Íslandi, jafnt
götuhlaupum sem utanvegahlaupum. Einnig
hefur Friðleifur tekið þátt í 100 kílómetra
hlaupi í Ölpunum við Mont Blanc og sigrað í
Esja Ultra-hlaupinu tvö ár í röð. „Sem hlaupari er ik
ÞOLI BETUR LANG-VARANDI ÁLAGGENGUR VEL KYNNIR Nutrilenk Active er frábært efni fyrir þá sem stunda
mikla hreyfingu og/eða þjást af stirðleika og verkjum í liðum. Einstakt smur-
efni fyrir liðina.
LÍKAMINN ÞO
VERNDA AUGUNSólgleraugu eru notuð til að deyfa sterkt sólarljós. Þótt flestir líti á þau sem tísku-fyrirbæri vernda þau mörg hver augun fyrir útfjólublárri geislun sólarinnar sem getur skaðað sjónhimnuna. Leitist því við að kaupa sólgleraugu með vörn.TÆKIFÆRISGJAFIRTILBOÐ
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
pHnífa aratöskur – 12 manna
14 tegundirVerð frá kr. 24.990
ÚTSÖLULOK
0
Nú
Grensávegi 46, ReykjavíkOpið mán – fös 9-18 sími 511 3388
Stækkunarglerslampar
SKÓLABL ÐIÐFIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2014 Kynni garblað Bóknám, verknám, öngnám, ökunám og námsráðgjöf.
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Fimmtudagur
20
2 SÉRBLÖÐ
Skólablaðið | Fólk
Sími: 512 5000
14. ágúst 2014
189. tölublað 14. árgangur
SKOÐUN Brynhildur Péturs-
dóttir segir að konur vilji
víst gerast sendiherrar. 20
LÍFIÐ Alexander Schepsky
lét útbúa bæjarhjól sem
passa ekki við spandex. 38
SPORT Denis Cardaklija er
enginn venjulegur nýliði í
Pepsi-deildinni. 46
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
#GOTT
iMATI
NN
Matarmyndaleikur
Gott í matinn
NÝR RISA
BÆKLINGUR
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
ALLAR HEITUSTU FARTÖLVUNAR Í SKÓLANN
Nýttu þér
námsstyrkinn!
MENNING Þýddi ástríðu-
fullar sögur eftir Alice
Munro. 50
NÁTTÚRA Fiskistofa telur að veiði-
bann vegna laxleysis í einstökum
ám sé svo íþyngjandi leið að hún
sé vart fær. Áhugamenn um lax-
veiði óttast að veiðifyrirkomulag
í Langá geti ógnað laxastofninum
í ánni og kallað er eftir aðgerð-
um. 250 laxar hafa veiðst í Langá
í sumar. Á sama tíma í fyrra
höfðu veiðst tæplega 1.700 laxar.
- shá / sjá síðu 10
Áhyggjur af laxastofnum:
Veiðibann talið
nær ófær leið
SJÁVARÚTVEGUR Ef Rússar standa
við innflutningsbann sitt á mat-
vöru gæti það gefið tækifæri til
að kynna nýjar sjávarafurðir frá
Íslandi á þessum risastóra mark-
aði.„Ef Rússar byrja að kaupa
þorskflök frá Íslandi á samkeppn-
ishæfu verði þá mun að sjálfsögðu
skapast algjörlega ný staða,“ segir
Friðleifur Friðleifsson, fram-
kvæmdastjóri sölumála hjá Ice-
land Seafood. - shá / sjá síðu 6
Ný staða með banni Rússa:
Gæti auðveldað
ný viðskipti
ATVINNUMÁL „Hér á Bíldudal ætl-
uðum við að vera í fullri vinnslu
núna en Landsnet tekur af okkur
rafmagnið yfir daginn vegna þess
að þeir eru að sinna viðhaldi á
línu,“ segir Einar Sveinn Ólafsson,
framkvæmdastjóri Íslenska kalk-
þörungafélagsins, sem er ósáttur
við vinnubrögð Landsnets.
„Þetta er svona eins og að kaup-
maðurinn skellti á þig þegar þú
ætlaðir að fara að kaupa í matinn,“
bætir hann við. Hann fékk vitn-
eskju um þetta fyrir rúmum tveim-
ur vikum en rafmagnsskömmtun-
in tók gildi í gær og mun standa
að minnsta kosti næstu níu daga.
Þurrkarar verksmiðjunnar verði
því ekki nýttir frá átta að morgni
til sjö að kvöldi.
Hann segir ekki hægt að meta
þessar búsifjar til fjár. „Ætli þetta
séu ekki um þrettán eða fjórtán
hundruð tonn af framleiðslu,“
segir hann. Ragnheiður Elín Árna-
dóttir iðnaðarráðherra átti í gær
fund með forsvarsmönnum fyrir-
tækisins, en hún er á ferð um Vest-
firði, og var rafmagnsskerðingin á
meðal umræðuefna. Ráðherrann
segist skilja að það skipti máli að
menn tali saman í svona tilvikum.
„Það er gott að menn láti vita af
svona atvikum með fyrirvara ef
það er hægt,“ segir Ragnheiður
Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra.
Að öðru leyti vísaði hún á Lands-
net, en Fréttablaðið náði ekki tali
af forstjóra Landsnets.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins kveður samningur Lands-
nets og fyrirtækisins á um skerð-
anlegan flutning á raforku og
samkvæmt honum er Landsneti
heimilt að skerða flutning meðal
annars vegna viðhalds á flutnings-
kerfinu.
Einar Sveinn segist vissulega
fagna því að verið sé að bæta
aðstöðuna fyrir rafmagnsflutn-
ingana og segist hafa skilning á
því að svona verði að bregðast við
þegar á þeim stendur en hann hefði
þó óskað þess að haft hefði verið
meira samráð við félagið. „Ef þetta
hefði legið fyrir mánuðum fyrr þá
hefðum við getað aðlagað okkur
að þessu og gefið starfsfólkinu frí
þennan tíma,“ segir hann.
Vélar verksmiðjunnar á Bíldudal
þurfa um þrjú og hálft megavatt en
það er um tíu prósent af allri raf-
magnsnotkun á sunnanverðum
Vestfjörðum. - jse
Verksmiðju kippt úr sambandi
Íslenska kalkþörungafélagið fékk að vita með tveggja vikna fyrirvara að verksmiðjan yrði rafmagnslaus yfir dag-
inn næstu daga. Framkvæmdastjórinn telur afköstin munu dragast saman um fjórtán hundruð tonn á meðan.
Þetta er svona eins og
að kaupmaðurinn skellti
á þig þegar þú ætlaðir að
fara að kaupa í matinn.
Einar Sveinn Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Íslenska kalkþörungafélagsins.
Á LEIÐ TIL FUNDAR Sigmundur Davíð fræddi Anders Fogh Rasmussen um sögu Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu áður en
þeir gengu til fundar síðdegis í gær. Rasmussen fundaði með forsætisráðherra og utanríkisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bolungarvík 10° SV 6
Akureyri 13° S 5
Egilsstaðir 14° SV 3
Kirkjubæjarkl. 14° SV 3
Reykjavík 12° SV 6
Bjart í fyrstu um allt land en dregur
svo fyrir, fyrst NV-til. Dálítil súld við
V-ströndina síðdegis. Milt í veðri, hiti
10-17 stig. 4
STJÓRNMÁL Framkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins, Anders Fogh
Rasmussen, segir að breytt staða
í Evrópu af völdum Rússa sé ein
ástæða þess að mikilvægi hnatt-
rænnar stöðu Íslands hafi aukist
á ný. „Við sjáum enga yfirvofandi
hættu fyrir Ísland en við höfum
tækifæri til að auka mjög gæslu
í lofthelgi Íslands með skömmum
fyrirvara ef nauðsyn krefur,“ sagði
Fogh Rasmussen á blaðamanna-
fundi í Ráðherrabústaðnum í gær.
„Ég held að megi með sanni segja
að hnattræn staða Íslands sé orðin
mikilvægari. Ekki einungis vegna
ástandsins í Evrópu, sem er til
orðið vegna ólöglegra hernaðarað-
gerða Rússlands í Úkraínu, heldur
líka af völdum loftslagsbreytinga.“
Á fundi með Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni forsætisráðherra í
gær ræddi framkvæmdastjórinn
meðal annars um þátttöku Íslands
í erjum Atlantshafsbandalagsins
við Rússland. - ssb / sjá síðu 8
Breytingar á stjórnmálaástandinu í Evrópu og loftslagsbreytingar hafa áhrif:
Mikilvægi hnattstöðu Íslands eykst
Ég treysti á stuðning
Íslands til að skýra línurn-
ar og gera bandalagið
traustara og sveigjanlegra.
Anders Fogh Rasmussen.
Fimmtungur innfluttur
Innflutningur á helstu kjöttegundum
hefur aukist frá 2013. 4
Bænalestri hætt Dagskrárstjóri
Rásar 1 segir litla hlustun á bænir.
Nýr þáttur leysir þær af hólmi. 2
Nemendur uppgötvi eigin hæfi-
leika Finninn Pasi Sahlber vill að
Finnar og Íslendingar leggi meiri
áherslu á að virkja hæfileika hvers
nemanda fyrir sig. 12
Sjö sortir af svindli Tækniframfarir
veita óprúttnum mönnum færi á
að komast í álnir með svikum og
prettum. 16