Fréttablaðið - 14.08.2014, Page 6

Fréttablaðið - 14.08.2014, Page 6
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvaða menntaskóli mun ekki starfa í vetur? 2. Hversu mikið hefur nautahakk hækkað síðustu átján mánuði? 3. Hvaða þjóðarbrot er á hrakhólum í norðurhluta Íraks? SVÖR 1. Menntaskólinn Hraðbraut. 2. Um 15 prósent. 3. Jasídar. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Amerískir með klakavél án klakavélar kr. 179.900 með klakavél kr. 399.900 KYNNINGARVERÐ SJÁVARÚTVEGUR Ef Rússar standa við innflutningsbann sitt á mat- vöru frá Evrópusambandslönd- um, Bandaríkjunum, Ástralíu og Noregi gæti það gefið tækifæri til að kynna nýjar sjávarafurð- ir á þessum risastóra markaði. Lengra verður vart gengið í sölu upp sjávar tegunda. „Ef Rússar byrja að kaupa þorskflök frá Íslandi á samkeppn- ishæfu verði þá mun að sjálfsögðu skapast algjörlega ný staða. Það er ef til vill smá tækifæri núna á að kynna betur fyrir rússneskum kaupendum hvaða aðrar tegundir við getum boðið og í hvaða fram- leiðsluformi,“ segir Friðleifur Friðleifsson, framkvæmdastjóri sölumála hjá Iceland Seafood. Fréttablaðið greindi frá því í gær að árið 2003 fluttu Íslending- ar út sjávarafurðir fyrir 600 millj- ónir til Rússlands. Í fyrra voru útflutningsverðmætin 18,6 millj- arðar króna. Aukningin er 32-föld. Þetta kemur fram í nýrri grein- ingu Íslenska sjávarklasans. Þessi aukning kemur fyrst og fremst til af sölu uppsjávarafurða, og þá makríls sem skýrir tæpa níu millj- arða af heildartölunni. Á síðasta ári skapaði heilfrystur uppsjávar- fiskur útflutningsvirði upp á 38 milljarða, en þar af skilar Rúss- landsmarkaður 14 milljörðum, eða ríflega 37 prósentum. Friðleifur segir að Rússlands- markaður hafi vaxið samfara aukinni framleiðslu á Íslandi á uppsjávartegundum t.d. síld og makríl, og sé undirstaðan í við- skiptum þangað ásamt loðnu- afurðum. Þá hafi sala á karfa aukist verulega sem sé merki um aukinn kaupmátt í Rússlandi. En eru einhverjar matarholur til viðbótar við þann útflutning sem þegar fer á Rússlandsmarkað? „Ég tel að markaður fyrir makr- íl frá Íslandi inn á Rússlandsmark- að sé nokkurn veginn í toppi. Rúss- ar eru einnig með eigin veiðar á makríl og eru sjálfum sér nógir með ákveðinn hluta af markaðn- um. Það gætu hins vegar skap- ast tækifæri í sölu á öðrum afurð- um og öðrum fisktegundum inn á þennan markað og þá horfir maður aðallega á þorsk og ufsa,“ segir Friðleifur. Þessar tegundir sem Friðleifur nefnir eru Rússar vanir að kaupa hausaðar, þ.e. ekki flök. Íslensk fyrirtæki framleiða nánast bara flök í þessum tegundum og selja á hærra verði en hausaðan fisk á markaði í Frakklandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. svavar@frettabladid.is Gæti gefið tækifæri í sölu nýrra afurða Lítið svigrúm er til sölu á meiri makríl á Rússlandsmarkað. Innflutningsbann rúss- neskra stjórnvalda gæti gefið nýtt tækifæri til að kynna nýjar sjávarafurðir á rúss- neska markaðnum. Þær tegundir sem koma til greina eru flök af þorski og ufsa. ÚTSKIPUN Ekki er loku fyrir það skotið að innflutningsbann Rússa skapi tækifæri til að kynna þeim nýjar tegundir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SVISS, AP Ellefu manns slösuðust þegar farþegalest varð fyrir aur- skriðu um hádegið í gær í djúpum dal milli Tiefencastel og Solis í Sviss. Þrír lestarvagnar fóru út af sporinu, en lögregla segir að um 140 manns hafi verið í lestinni. Einn vagnanna hefði hrapað niður í djúpt gil ef hann hefði ekki stöðvast á trjám í fjallshlíðinni. Miklar rigningar hafa verið á þessum slóðum síðustu daga. Fimm farþeganna voru sagðir alvarlega slasaðir en hinir sex hlutu minniháttar meiðsli. - gb Aurskriða féll á járnbrautarlest og ellefu manns slösuðust: Lestarvagn stöðvaðist á trjám SLÖSUÐUM BJARGAÐ Nota þurfti þyrlur til björgunarstarfa þar sem enginn akveg- ur er nálægt slysstaðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VÍSINDI Jóhann Páll Hreins- son ver doktors- ritgerð sína í læknavísindum frá Læknadeild Háskóla Íslands. Hann er sá yngsti sem hefur lokið doktorsprófi frá Heilbrigðisvísindasviði HÍ, verður 27 ára í september. Ritgerð Jóhanns Páls ber heitið Blæðingar frá meltingarvegi: nýgengi, orsakir, tengsl lyfja og horfur. - jhh Yngstur til að ljúka prófi: 27 ára gamall doktor EFNAHAGSMÁL Staða ríkissjóðs er grafalvarleg, skuldir eru miklar og vaxtakostnaður verulegur, segir í Hagsjá Landsbankans í gær. Þá bíði fleiri stór vandamál handan við hornið eins og staða Íbúðalánasjóðs og ófjármagnað- ar lífeyrisskuldbindingar. „Það er augljóslega eitt af brýnustu verkefnum íslensks efnahagslífs að tökum verði náð á ríkisfjár- málunum og skuldahalinn stytt- ur,“ segir í Hagsjánni. Þar segir jafnframt að þörf sé á meiri aga í ríkisfjármálum. - jhh Fjármál brýnasta verkefnið: Grafalvarleg staða ríkisins HEILSA „Ég bjóst ekki við þessu enda er best að búast ekki við svona,“ segir Ólöf Nordal. Illkynja æxli var fjarlægt úr líkama hennar á dögunum. Ólöf Nordal, formaður bankaráðs Seðlabankans og fyrr- verandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, fékk óvænt tíðindi er hún brá sér til Íslands fyrir nokkr- um vikum til að vera viðstödd brúðkaup. Stórvin- kona hennar, Ásthildur Sturludóttir, sveitarstjóri á Patreksfirði, gekk í það heilaga. Ólöfu fannst hún vera orðin svo mikil um sig miðja auk þess sem hún fann að hún var ekki söm. Ákvað hún því að leita til læknis. „Á örskotsstundu skiptu fyrri plön engu máli, hversdagslegu verk- efnin víkja núna fyrir þeirri stærstu áskorun sem ég hef staðið frammi fyrir. Óboðinn gestur hafði nefnilega sest að innra með mér,“ segir Ólöf í skila- boðum til lesenda heimasíðu hennar í dag. Ólöf hefur búið í Genf í Sviss með fjölskyldu sinni en fram undan voru flutningar til New York-borgar. „Praktísku atriðin voru komin á gott skrið, skóla- mál, íbúðarmál – allt hefðbundin verkefni sem fylgja því að flytja milli landa. Alpalandið var kvatt með söknuði í bili og við hlökkuðum til að takast á við nýjar áskoranir.“ Ólöf gekkst undir uppskurð á dögunum þar sem illkynja æxlið var fjarlægt. Læknar telja aðgerðina hafa gengið vel. - ktd Ólöf Nordal, formaður bankaráðs Seðlabankans, gekkst undir uppskurð: Greindist með illkynja æxli Í SEÐLABANKANUM Ólöf er formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. FRÉTTABLAÐIIÐ/VALLI STJÓRNMÁL „Fulltrúar fjármála- ráðuneytisins komu á fund fjár- laganefndar Alþingis í gær. Þeir sögðu að fjármálaráðuneytið myndi leita skýringa á því hvers vegna farið var að úthluta 380 milljónum úr Framkvæmda- sjóði ferðamannastaða í vor án þess að Alþingi hafi veitt heim- ild fyrir því,“ segir Vigdís Hauks- dóttir formaður Fjárlaganefndar Alþingis. Vigdís segir að fulltrúar fjár- málaráðuneytisins ætli að krefja atvinnu- og nýsköpunar- ráðuneytið svara. Sjá lf segist hún vilja fá svör við því hvort það sé ætlunin að pen- ingarnir komi á fjáraukalög- um eða hvort þeir hafi verið teknir af óráðstöfuðu fé ráðu- neytisins. Vigdís segist hafa verið ánægð með viðbrögð fjármála- ráðuneytisins í málinu. Næsti fundur fjárlaganefnd- ar verður 25. þessa mánaðar. Þá koma á fund nefndarinnar starfs- menn innanríkisráðuneytisins og velferðarráðuneytisins. Nokkrar undirstofnanir þess- ara ráðuneyta fóru langt fram úr fjárheimildum á fyrri hluta ársins. Má þar nefna Landspítal- ann, Sjúkratryggingar Íslands og Vegagerðina. - jme Úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vekur spurningar formanns: Vill fá að vita hver veitti heimild VIGDÍS HAUKSDÓTTIR BRASILÍA, AP Eduardo Campos, forsetaframbjóðandi brasilíska Sósíalistaflokksins, fórst í flug- slysi í gær ásamt sex manna föru- neyti sínu, þar á meðal fjölmiðla- ráðgjafa sínum, ljósmyndara, myndatökumanni og tveimur flug- mönnum. Campos hafði verið í þriðja sæti samkvæmt skoðanakönnunum, en Dilma Rousseff, sem setið hefur á forsetastóli síðan 2011, þykir eiga mesta möguleika á sigri. Kosið verður þann 5. október. - gb Flugslys í Brasilíu: Forsetaefni sósíalista fórst Ef Rússar byrja að kaupa þorskflök frá Íslandi á samkeppnishæfu verði þá mun að sjálfsögðu skapast algjörlega ný staða. Friðleifur Friðleifsson, Iceland Seafood.JÓHANN PÁLL HREINSSON VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.