Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 12
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 12 MENNTUN Ísland gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári. Af því tilefni hófst í gær á Hilton Nordica Hóteli tveggja daga ráðstefna um starfsþróun kennara frá leikskóla til háskóla. Einn þriggja aðalfyrirlesaranna, Pasi Sahlberg, skólamaður frá Harv ard-háskóla, stígur í pontu í dag. Hann er höfundur bókarinnar Finnish Lessons, sem hefur notið vinsælda bæði hjá stjórnmálamönn- um og fólki innan skólakerfisins. Námsárangur finnskra skóla- barna hefur vakið athygli og hafa alþjóðlegar mælingar sýnt fram á að menntakerfið þar í landi virki vel. „Nemendur hafa staðið sig vel á mörgum sviðum og kennur- um líður almennt mjög vel í starfi sínu,“ segir Sahlberg. „Marg- ir halda að Finnland sé einhver kraftaverkastaður og það er að vissu leyti rétt en við glímum samt við okkar vandamál.“ Valdið er mikilvægt Niðurstöður alþjóðlegrar PISA- rannsóknar sýndu í fyrra að Ísland og Svíþjóð voru með lakasta árang- ur allra Norðurlandanna og að íslenskum nemendum hefði farið aftur í stærðfræðikunnáttu, les- skilningi og náttúrulæsi. Spurð- ur hvort hann telji að kennsluað- ferðunum sé um að kenna segir Sahlberg að þær eigi vafalítið ein- hvern þátt í niðurstöðunum. Frekar eigi samt að horfa til skipulagsins innan skólanna. „Finnsku kennsluaðferðirnar eru ekkert endilega árangursríkari en til dæmis í Svíþjóð og á Íslandi. Ég held að það sem er frábrugðið sé að við höfum enn þá stefnu í finnsku skólunum að skólastjórarnir hafa vald yfir kennurunum og geta skip- að þeim að gera eitthvað ef þeim sýnist svo. Í skólastofunum gegna kennararnir sama hlutverki. Það er litið á kennarana sem leiðtoga sem hafa vald til að segja hvernig hlut- irnir eiga að vera,“ greinir Sahlberg frá. „Í sumum löndum innan Skand- inavíu sem ég hef heimsótt segjast skólastjórarnir ekki hafa þetta vald. Þeir geta ekki farið til kennaranna og sagt þeim hvað þeir eiga að gera og í mörgum löndum geta kennar- arnir ekki sýnt vald sitt yfir nem- endunum af því að það er ekkert hlustað á þá.“ Þarf fólk sem hugsar öðru vísi Hvað ætli sé það mikilvægasta þegar kemur að menntun í dag? „Það er að skilja hvert markmið menntunar er. Robin Williams, sem lést fyrr í vikunni, lék aðalhlutverk- ið í Dead Poets Society, sem er ein besta mynd sem gerð hefur verið um kennslu. Þar sagði hann að það mikilvægasta í námi væri að læra að hugsa sjálfstætt,“ segir hann. „Maður heyrir svo víða að vegna alþjóðlegrar samkeppni og fleira þurfi að mennta alla eins. Þetta er röng aðferð að mínu mati. Ég tel að megintilgangur kennslu sé að mennta alla þannig að þeir verði öðru vísi en náunginn við hliðina. Í Finnlandi hef ég talað fyrir því að við fylgjum ekki þessum alþjóð- lega straumi. Við þurfum að virkja þessa mismunandi hæfileika sem fólk hefur í stað þess að steypa alla í sama mót. Lítil lönd eins og Finn- land, Ísland og hin Norðurlöndin þurfa á fólki að halda sem hugsar öðru vísi,“ bætir hann við. „Mér finnst að í kennslu eigi að hjálpa nemendum að uppgötva eigin hæfileika, eigin sköpunargáfu og eigin ástríðu. Við þurfum á því að halda að fleiri nemendur sem ljúka við skóla viti í hverju þeir eru góðir og geti notað það til að breyta lífi sínu og þjóð sinni. Í stað þess að menn metist um hvor sé betri í vís- indum vil ég hjálpa öllum að vera eins og þeir vilja vera í raun og veru.“ freyr@frettabladid.is Nemendur uppgötvi hæfileika sína Finninn Pasi Sahlberg frá Harvard-háskóla er einn þriggja fyrirlesara á ráðstefnu um starfsþróun kennara sem er haldin í Reykjavík. Hann vill að Finnar leggi meiri áherslu á að virkja hæfileika hvers nemanda fyrir sig og hvetur íslensk stjórnvöld til að gera slíkt hið sama. PASI SAHLBERG Finninn heldur fyrirlestur á Hilton Nordica Hóteli í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Robin Williams, sem lést fyrr í vikunni, lék aðalhlutverkið í Dead Poets Society, sem er ein besta mynd sem gerð hefur verið um kennslu. Þar sagði hann að það mikilvægasta í námi væri að læra að hugsa sjálfstætt Pasi Sahlber skólamaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.