Fréttablaðið - 14.08.2014, Page 16

Fréttablaðið - 14.08.2014, Page 16
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16 Ófáir Íslendingar hafa fengið tölvupóst, símaskilaboð eða jafn- vel símhringingu þar sem þeim eru boðin hagstæð lán, kaup eða þeim tjáð þau tíðindi að þeim hafi hlotnast gríðarlegir fjármunir. Undantekningalaust hangir ljótur leikur á spýtunni svo best er að hunsa öll erindi af þessari gerð, segir upplýsingafulltrúi lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu en því miður hafa málefni nokkurra sem bitu á agnið lent þar. Oftast er þó ógjörningur að ná fé sem eitt sinn hefur verið sent á reikning erlendis. Svikahrapparnir beita ýmsum brögðum og hér verða tekin saman þau algengustu. Það nýjasta gæti verið nokkuð sannfærandi ef ekki væri fyrir textann sem svo oft er greinilega unninn af þýðinga- maskínu Google. jse@frettabladid.is Víða setið á svikráðum við saklausa Íslendinga Tækniframfarir heilla ekki einungis fólk sem vinnur í göfugum tilgangi. Óprúttnir menn eru lagnir við að nýta sér tæknina til að komast í álnir og skýla sér bak við órafjarlægð, fölsuð nöfn og svikaloforð. Fréttablaðið skoðaði málið og kannaði helstu brellurnar í bókinni. 1. Lottó eða happdrættisvinningur. Viðtakanda er tilkynnt að hann hafi unnið fyrsta vinning sem sé himinhá fjárhæð. Sendandinn segist nú þurfa upplýsingar til að koma peningunum til viðtakandans. Þannig komast óprúttnir yfir mikilvægar upplýsingar. Stundum er einnig farið fram á greiðslu sem sé nauðsynleg til að losa um vinninginn. 2. Aðstoð við tölvuvírusa. Með því að bjóða vírusvörn og þjónustu henni tengda geta óprúttnir komist yfir kortanúmer og auðvitað er vírusvörnin spuni frá rótum. 3. Arfur. Viðtakandi fær þær fregnir að fjarskyldur ættingi, sem ber jafnvel sama föðurnafn og hann, hafi látist. Nú verði viðtakandinn að gefa upplýsingar til að geta tekið við arfinum sem hans bíði og jafnvel reiða fram fé til að losa um hann. 4. Leiga á íbúðum. Flottar íbúðir eru boðnar til leigu á hlægilega lágu verði. Þegar búið er að borga staðfestingargjald kemur í ljós að þær voru aldrei til leigu. 5. Lán á kjarakjörum. Sömuleiðis getur viðtakanda borist auglýsing um lán á afar hagstæðum kjörum. Þegar hinn óprúttni hefur fengið fé og upplýsingar kemur svo í ljós að lánið stóð aldrei til boða. 6. Bíll til sölu. Sendandinn beitir allri sinni skáldagáfu til að prjóna ástæður fyrir því að hann geti ekki sýnt bílinn sem sé til sölu á afar hagstæðu verði. Sendand- inn er vissulega erlendis svo það þarf að senda honum peninginn. 7. Nýjasta bellibragðið. Nýverið hefur borið á því, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, að þrjótar brjótist inn í tölvur og sendi frá netfangi tölvueigandans póst á alla þá sem vistaðir eru í tenglaskránni. Pósturinn er oftast ákall um hjálp þar sem eigandi netfangsins segist hafa verið rændur og sé því strandaglópur á erlendum flugvelli. Hann þarf því aur til að komast heim. Viðtakandinn fær sem sagt póst frá einhverjum sem hann þekkir, með falskri hjálpar- beiðni þar sem hann er beðinn að senda pening á ákveðinn reikning sem síðan er í eigu svikahrappsins sem braust inn í tölvuna. Sjö algengustu bellibrögðin í bókinni VIÐ TÖLVUSKJÁINN Ef tíðindi, sem eru of góð til að trúa þeim, berast frá óþekkt- um aðila, jafnvel á tölvuþýddri íslensku, þá ber heldur ekki að trúa þeim. Eins getur verið gott að gjalda varhug við hjálparákalli þótt það komi frá kunnuglegu netfangi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM RúmGott · Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) · Kópavogi · Sími 544 2121 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is VIÐ FRAMLEIÐUM ÞITT RÚM EFTIR ÞÍNUM ÞÖRFUM Framleiðum dýnur og rúm fyrir hótel og gistiheimili FAGLEG RÁÐGJÖF OG FRÍ LEGUGREINING Komdu í heimsókn, prófaðu legugreininguna, og fáðu faglega ráðgjöf um val á heilsudýnum, án skuldbindinga! · SUMARÚTSALA · 30-50% AFSLÁT TUR Ítölsk hágæða sófasett Rým ing ars ala 65% afs látt ur a f sý nin gar sófu m MENNTUN Mímir – símenntun er fluttur í nýjar höfuðstöðvar að Höfðabakka 9 í Reykjavík. Hulda Ólafsdóttir framkvæmdastjóri segir að Mímir hafi verið opnað- ur í nýja húsnæðinu 5. ágúst. „Við höfum verið að leita okkur að framtíðarhúsnæði og núna erum við komin í það,“ segir Hulda. Mímir var síðast í Ofanleiti 2, en þar áður í Skeifunni 8. „Það er öll aðstaða til fyrirmyndar í fram- haldsfræðslunni. Það er eingöngu fullorðið fólk sem er hér í námi hjá okkur og aðstaðan er sniðin að þörfum þess,“ segir Hulda í samtali við Fréttablaðið. - jhh Mímir flytur á Höfðabakka: Fer í varanlegt húsnæði SAMGÖNGUR Fleiri ferðir voru farnar frá Íslandi til Kaupmanna- hafnar en nokkurrar annarr- ar borgar í júlí síðastliðnum. Þetta er nýmæli þar sem flestar ferðirnar eru yfirleitt farnar til Lundúna en næstflestar til Kaup- mannahafnar. Á ferðavefnum Túristi.is segir að yfir vetrar- mánuðina láti nærri að fjórða hver vél í Keflavík haldi til Lund- úna og er umferðin þangað mun meiri en til annarra borga. - jhh Flestir til Kaupmannahafnar: London ekki lengur vinsælust KAUPMANNAHÖFNN Íslendingar flykktust til Danmerkur í júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.