Fréttablaðið - 14.08.2014, Síða 18

Fréttablaðið - 14.08.2014, Síða 18
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18 „Ásýndin sem er verið að reyna að skapa er sú að eitthvað sé að í Seðlabankanum. Ég kannast ekki við það. Ég þekki þennan leik,“ segir viðmælandi Fréttablaðs- ins hjá Seðlabankanum sem vill ekki koma fram undir nafni vegna umræðu um stöðu lífeyristrygging- arsamninga. Seðlabankinn ákvað fyrr í sumar að stöðva gjaldeyrisvið- skipti umboðsaðila erlendra tryggingafélaga hér á landi á grundvelli samninga um meðal annars viðbótartryggingavernd, söfnunartryggingar og sparnað. Málið er risavaxið því það snert- ir beina hagsmuni 35.000 Íslend- inga sem gerðu samninga um líf- eyristryggingar fyrir milligöngu íslenskra miðlara hjá fyrirtækj- unum Bayern, Allianz og Friends Provident eftir að gjaldeyrishöft- in voru lögfest. Um það bil 22.000 Íslendingar voru með slíka samn- inga sem voru gerðir fyrir höft og vegna meginreglu íslensks réttar um bann við afturvirkni laga geta höftin ekki náð yfir slíka samn- inga. Hefur veitt fresti og undanþágur Það er mat stjórnenda Seðlabank- ans að samningar sem hafi falið í sér sparnað, en ekki bara trygg- ingar, hafi alltaf verið ólögleg- ir, alveg frá fyrsta degi, þ.e. þeir samningar sem voru gerðir eftir 28. nóvember 2008 þegar höftin voru lögfest. Það sem er undirorp- ið óvissu er hvort Seðlabankinn hafi gripið of seint til úrræða, þ.e. leyft þessum sparnaði að vaxa of lengi á skjön við gjaldeyrishöftin eða hvort Seðlabankinn hafi fengið rangar eða misvísandi upplýsingar hjá söluaðilum þessara trygginga eða miðlurum þeirra. Starfsmenn Seðlabankans sem Fréttablað- ið hefur rætt við segja að Seðla- bankinn hafi ekki fengið réttar upplýsingar um þessa trygging- arsamninga á árunum 2010-2011. Forsvarsmenn miðlara og lögmenn þeirra hafi gefið til kynna að verið væri að bjóða upp á tryggingar, en ekki sparnað, sem er undanþeginn höftum. „Ég ætla ekki að fullyrða að Seðlabankinn hafi fengið rangar upplýsingar en bankinn sagði allt- af að seljendur trygginganna yrðu að bera ábyrgð á því að starfsem- in væri í samræmi við lög. Þegar um er að ræða sparnað þá er hann undir höftunum. Það skiptir máli í þessu að þessi starfsemi var ekki eins umfangsmikil á þeim tíma,“ segir Már Guðmundsson seðla- bankastjóri. En lögmæti starfsemi getur varla ráðist af umfangi hennar? „Nei, enda breyttist svar okkar ekkert. Smám saman fórum við að athuga þetta og þá virðist bank- anum ljóst að eitthvað af þessu virðist ekki falla að gjaldeyris- lögunum. Svo leiðir eitt af öðru í stigmögnun þar til að við kom- umst að þeirri niðurstöðu sem við komumst að í júní. Það hafa verið veittir frestir og ákveðnar varan- legar undanþágur,“ segir Már. Ef Seðlabankinn hefði farið í það að kalla eftir þessum samningum og lesa þá, hefði ekki mátt afstýra þessari stöðu? „Það er það sem hefur gerst. Það tekur tíma að vinna svona mál. Í öðru lagi voru ákveðin túlkunarat- riði sem þurftu að komast á hreint. Við erum að glíma við mörg flókin mál með fámennu starfsliði.“ Már áréttar að það sé undanþága í gildi til halda samningunum óbreyttum fram í síðari hluta október. Örvænting hjá Seðlabankanum? Upplifun gjaldeyrismiðlaranna sem hafa selt þessa samninga er að örvænting hafi gripið um sig hjá Seðlabankanum. Fyrir liggur tölvupóstur sendur af þáverandi settum (ad hoc) yfirmanni gjald- eyriseftirlits Seðlabankans til starfsmanna Trygginga og ráð- gjafar frá árinu 2010 þar sem segir að það sé alveg skýrt að samningarnir sem fyrirtækið sé að selja séu undanþegnir höftum þar sem um sé að ræða vöru- og þjónustuviðskipti. „Ég held að þetta snúist í prins- ippinu um jafnræði. Við erum með gjaldeyrishöft og það þarf að fylgja þeim grundvallarreglum sem fylgja höftunum. Þá er mjög skrítið að leyfa þá einhverjum öðrum að gera það ekki,“ segir við- mælandi blaðsins hjá Seðlabank- anum. Stjórnendur íslenskra líf- eyrissjóða hafa talið að það skjóti skökku við að menn hafi safnað sparnaði erlendis í erlendum gjald- eyri á meðan sjóðunum er meinað að fjárfesta erlendis. Aðeins 22,4 prósent af eignasafni lífeyris- sjóða er í erlendum gjaldeyri sem er ósjálfbær staða til framtíðar því neysla framtíðar lífeyrisþega verður í gjaldeyri. En hvers vegna er Seðlabanki Íslands að vakna upp við vondan draum árið 2014 meðan vandamálið, ef vandamál má kalla, hefur graf- ið um sig eins og mein árum saman? Um er að ræða 35.000 samninga á sex árum. Viðmæl- endur Frétta- blaðsins benda á að í raun hafi Seðlabankinn viljað aðhafast árið 2011 til að stöðva það sem bank- inn taldi ólögmætan sparnað en þá hafi bankinn verið „stöðvaður“ af Árna Pála Árnasyni, þáverandi efnahags- og viðskiptaráðherra. Spurning um lögskýringu „Seðlabankinn verður að skýra það hvernig stjórnendur hans mátu stöðuna. Ég taldi að það væri alltaf mjög tvíbent hvort höftin gætu átt við um sölu á þjónustuvið- skiptum eins og samsettum trygg- ingum. Ég er enn þeirrar skoð- unar að rangt sé að teygja höftin yfir svona samninga. Þetta er ekki beinn sparnaður,“ segir Árni Páll í samtali við Fréttablaðið. „Þetta er alltaf spurning um lögskýringu en líka skilgreiningu á höftunum. Þau áttu ekki að hefta vöru- og þjón- ustuviðskipti,“ bætir hann við. Hætti Seðlabankinn við vegna andstöðu þinnar? „Ég þekki það ekki. Þeir verða að svara því hvernig ákvörðun þeir tóku en ráðherra málaflokksins fór með höftin sem slík og löggjöfina þar í kring. Þetta var túlkunin sem við töldum eðlilega. Að hafa þessa þröngu túlkun á höftunum. Þá væru þau minnst truflandi fyrir við- skiptalífið.“ Vegna lögbundins sjálfstæðis Seðlabankans skipti þessi afstaða ráðherrans í raun ekki máli nema til að tryggja vinsamleg sam- skipti fagráðherra málaflokksins við Seðlabankann. Bankinn hefði í krafti lögbundins hlutverks síns og sjálfstæðis getað stöðvað söfn- un sparnaðarins í samræmi við lög um gjaldeyrismál en ákvað að gera það ekki fyrr en þrem- ur árum síðar, í júní 2014. Velta má fyrir sér hvers vegna það tók Seðlabankann allan þennan tíma að komast að niðurstöðu og hvort viðskiptavinir Allianz, Friends Provident og Bayern-Versicher- ung hafi í krafti réttmætra vænt- inga öðlast rétt til að viðhalda viðskiptasambandi við þessi fyr- irtæki. Eins og Már Guðmunds- son nefndi, þá áttaði Seðlabankinn sig betur á eðli þessara samninga við nánari skoðun. Í fyllingu tím- ans fór bankanum að verða þessi mynd skýr. Viðræður standa enn yfir við erlendu tryggingarfélög- in en stjórnendur Seðlabankans hafa lagt áherslu á lausn sem raski ekki hagsmunum þeirra þúsunda Íslendinga sem eru í viðskiptum við þessi félög. „Viðræður standa enn yfir en það er ekki komin nið- urstaða,“ segir Már Guðmunds- son. Samningarnir voru alltaf ólöglegir Stjórnendur Seðlabankans meta það svo að lífeyristryggingarsamningar umboðsaðila erlendra tryggingafélaga hér á landi hafi alltaf verið ólöglegir. Seðlabankastjóri vill ekki fullyrða að bankinn hafi fengið rangar upplýsingar frá forsvarsmönnum miðlara og lögmönnum þeirra. SEÐLABANKASTJÓRI Már Guðmundsson segir bankann þurfa að glíma við mörg flókin mál með fámennu starfsfólki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sími: +45 39 40 11 22 dimex@dimex.dk // Mikilvægasta sölusýning seinni hluta ársins. Ómissandi vettvangur fyrir pantanir vetrar- og jólaverslunarinnar. Fáðu innsýn í strauma og stefnur vorsins. Alþjóðlegur fjölbreytileiki innan heimilis- og gjafavara. Perfect date // Perfect time // myfavourite- tendence.com Sjáðu hvað mun gera Tendence að þínu eftirlæti: 30.8. – 2. 9. 2014 Laugardag – þriðjudags // Saturday – Tuesday Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@365.is ➜ Fjöldi lífeyristryggingar- samninga hjá erlendum tryggingarfélögum: 57.000 (áætlað) ➜ Fjöldi samninga sem eru gerðir eftir 28. nóvember 2008: 35.000 ÁRNI PÁLL ÁRNASON Um er að ræða samning um kaup á tryggingu um lífeyri þar sem seljandi tryggingarinnar skuldbindur sig til að greiða tiltekna fjárhæð mánaðarlega eftir töku lífeyris. Ólíkt hefðbundnum lífeyrissparnaði þar sem lífeyrisþegi þarf að sæta skerðingu í samræmi við rekstur viðkomandi lífeyrissjóðs skuldbindur hið erlenda tryggingarfélag sig til að greiða tiltekna fjárhæð eftir töku lífeyris. Þetta er í raun bæði sparnaður og trygging. Hvað er lífeyristryggingarsamningur?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.