Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 24
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 24 Mansal, misnotkun á ódýru vinnuafli og kynferðisleg áreitni. Norðurlöndin verða að vinna saman til að bjarga Au pair-kerfinu. Upprunalegi tilgangurinn með Au pair-kerfinu voru menning- arsamskipti. Að ungt fólk fengi tækifæri til að halda út í hinn stóra heim til að vinna í stuttan tíma. Yfirleitt við að gæta barna eða sjá um heimilisstörf. Þann- ig gæti viðkomandi lært nýtt tungumál og kynnst nýrri menn- ingu og hið sama gæti átt við móttökufjölskylduna. Au pair er franska og þýðir „jafnfætis“ eða „jöfn“. Með öðrum orðum þá er þeim sem ræður sig sem au pair og þeim sem ræður viðkomandi ætlað að mætast á jafnréttis- grundvelli til að vinna saman, deila reynslu sinni og ekki síst njóta ánægjulegra og lærdóms- ríkra samskipta þvert á menn- ingarheima. Nú um stundir eru þess fjöl- mörg dæmi að konur frá fátæk- um heimshlutum yfirgefa fjöl- skyldur sínar og heimalönd til að vinna í láglaunastörfum á Vesturlöndum, meðal annars við að gæta bús og barna. Þessar konur hafna í sér- staklega viðkvæmri stöðu, þegar þær ráða sig sem au pair í ókunnu landi, þúsundir kíló- metra frá heimalandi sínu og fjölskyldu. Þær hafa ekkert tengslanet, kunna ekki tungu- málið, þekkja ekki lög og siði samfélagsins og eru í raun og veru algerlega upp á náð og mis- kunn móttökufjölskyldunnar komnar. Góðu reynslusögurnar færri Rétt er að undirstrika að auðvit- að upplifa ekki allar konur sem ráða sig sem au pair illa meðferð eða misnotkun. Sem betur fer eru einnig til góðar reynslusög- ur. En á Norðurlöndunum bendir ýmislegt til að góðu reynslu- sögurnar af au pair-ráðningum verði færri og færri með hverju árinu. Upprunalega forsendan um jafnstöðu, eðlilegt vinnu- og launasamband og uppfræðslu á menningarheimum hvort annars hefur í dag vikið fyrir misnotk- un á ódýru vinnuafli, kynferð- islegri áreitni og móttökufjöl- skyldum sem reyna að misnota Au pair-kerfið eins og mögulegt er. „Jafnfætis“ hefur breyst í herra- og þrælasamband. Einföld leit á Google með „au pair“ og „seksuel undnyttelse“ sýnir svo ekki verður um villst, að við þurfum skýrari lög og samræmdar reglur á Norður- löndunum um Au pair-kerf- ið til að tryggja stöðu þeirra sem þar starfa. Hvert tilfellið á fætur öðru birtist okkur þar sem ungum au pair-stúlkum er nauðgað eða þær misnotaðar kynferðislega af „karlinum á heimilinu“. Leita ekki til lögreglu Á síðustu árum hefur au pair- stúlkum, sem venjulega vinna hjá barnafjölskyldum, fjölgað gríðarlega á Norðurlöndunum. Í allt of mörgum tilfellum eru launin afar lág og vinnuskilyrð- in ekki í samræmi við reglur viðkomandi lands. Au pair- stúlkurnar lenda í því að þurfa að vinna mun fleiri tíma en samningur þeirra segir til um og réttindi þeirra eru ekki virt af móttökufjölskyldunni. Sama mynstur á sér stað á öllum Norð- urlöndunum og verður sífellt algengara. Í Au pair-miðstöð Norsk Folk- hjelp í Noregi fjölgar til að mynda stöðugt þeim au pair- stúlkum sem leita eftir hjálp og ráðgjöf. Yfirleitt snúast málin um vanefndir á vinnusamning- um eða kynferðislega misnotk- un. Í miðstöðinni verða menn varir við að au pair-stúlkurnar þora ekki að leita til lögreglunn- ar eða réttra yfirvalda, m.a. af ótta við brottvísun úr landinu. Til bjargar Au pair-kerfinu Jafnaðarmenn í Norðurlanda- ráði vilja ekki og munu ekki sætta sig við að einstaklingar sem koma frá fátækum löndum og úr erfiðum aðstæðum verði misnotaðir með þessum hætti. Við eigum ekki að láta það við- gangast að það finnist móttöku- fjölskyldur sem leita allra leiða til að misnota Au pair-kerfið til eigin hagsbóta. Að au pair- stúlkur séu látnar vinna meira en þær fá greitt fyrir og að þær í verstu tilfellum séu misnotaðar kynferðislega. Að „jafnfætis“ og „menningarsamskiptum“ verði árið 2014 breytt í mansal og skipulagða glæpastarfsemi. Nú skulum við á Norðurlönd- unum gera það sem við erum þekkt fyrir og sem við erum góð í; að vinna saman og vera fána- berar fyrir góð, heilbrigð og nyt- samleg verkefni sem gagnast öllum. Í því skyni höfum við lagt fram tillögu um að Norðurlöndin bregðist þegar við og taki hönd- um saman um að bjarga Au pair- kerfinu. Þannig tryggjum við að þar geti enginn misnotað veika stöðu annars – hvorki efnahags- lega, andlega né kynferðislega. Þannig að við mætumst öll á jafnræðisgrunni – jafnfætis! Au pair – „jafnfætis“? Eins og svo oft áður hefur okkur tekist að þvæla umræðu um afar mikil og fyrirsjáanleg vandamál út um allar grundir, jafnvel þótt allir séu sammála um að skelfileg niðurstaða blasi við verði ekkert að gert. Sameiginleg söluvara ferðaþjónustunnar á Íslandi er óspillt og víðfeðm nátt- úra og menning fámenns og vingjarnlegs samfélags sem veitir góða þjónustu á sérkennilegri eyju langt norður í höfum og nýtir til þess alla nýjustu tækni og þekkingu. Þetta er mjög viðkvæm vara, sem er við það að skemmast. Og það erum við sjálf sem látum hana liggja undir skemmdum. Við verðum að grípa til aðgerða og það strax. Og við þurfum alls ekki að finna upp hjólið í þeim efnum, heldur nota verkfæri sem þekkt eru um allan heim og er beitt. Eitt af þeim sem vert er að kanna alvarlega, eru komugjöld. Komugjald sem hluti af fargjaldi Nítján flugfélög, útgerðir skemmti- ferðaskipa og Norræna flytja hundruð þúsunda ferðamanna til landsins. Þau eru að svara eftir- spurn. Kynning á söluvörunni hefur gengið framar vonum, en til þess að vernda hana og skapa íslensku sam- félagi raunverulegar tekjur eigum við að hefja innheimtu komugjalds af hverjum einasta erlendum ferða- manni sem hingað kemur. Komu- gjaldið er hluti af fargjaldi og gæti til dæmis verið þrjú þúsund krón- ur. Svo geta menn reiknað. Komu- gjald gæti einnig verið lægra utan háannatíma og einnig stýritæki fyrir þá flugvelli á landsbyggð- inni sem freista þess að laða til sín umferð og dreifa hringakst- ursferðamönnum sem geta auðvit- að byrjað hringinn á Akureyri eða Egilsstöðum. Tekjum af komugjaldi á að verja til að ráða fullnægjandi fjölda fólks í heilsársstörf sem landverði, full- trúa samfélagsins sem gæta náttúrunnar – sölu- vörunnar og öryggis, sinna upplýsingamálum á vett- vangi og leiðbeina gestum. Þetta er gert víða um heim. Hluti af þessu komu- gjaldi rynni til Lands- bjargar. Kostnaður björgunarsveit- anna eykst og eykst. Til þess að beina gestum á fleiri svæði á landinu en gert hefur verið til þessa, með hnitmiðaðri vegagerð og betri grunngerð þjónustu sem einkaaðilar og landeigendur geta svo bætt við. Þetta segir sig sjálft. Taka með sér „skókassa“ Til þess að stórefla nám og rann- sóknir í ferðamálum og fjölga leið- sögumönnum. Við eigum að taka algjörlega fyrir að hópar fari hér um landið í skipulögðum ferð- um án íslenskra leiðsögumanna. Það er búið að gera í fjölmörgum nágrannalöndum okkar. Höfum líka í huga að það fer mjög vaxandi að farþegar skemmtiferðaskipa séu útbúnir „skókassa“ – mat og drykk sem þeir taka með sér í dagsferð- ir. Kaupa sem minnst. Enda er það keppikefli skipafélaganna sjálfra að hafa tekjur af farþegunum, deila því sem minnst í landi. Tekjur sam- félagsins af þessum mengunar- drekum eru allt of litlar. Munum líka að orðspor er fljótt að breytast. Við erum komin að þol- mörkum, raunar að mörgum þol- mörkum – náttúrunnar, Íslendinga sjálfra og gestanna. Og munum líka að þegar eftir- spurnin hverfur fara flest flug- félögin, skipafélögin og ferðamenn á eigin vegum einfaldlega eitthvert annað. Það eru til fjölmörg dæmi um það allt í kringum okkur. Komugjöld strax – 100 landverði strax 25-60% afsláttur ÚTSALA ➜ Komugjaldið er hluti af fargjaldi og gæti til dæmis verið þrjú þúsund krónur. Svo geta menn reiknað. SAMFÉLAG Karen J. Klint (Danmörku), Sonja Mandt (Noregi), Christer Adelsbo (Svíþjóð) og Christian Beijar (Álandi). Jafnaðarmenn í velferðarnefnd Norður- landaráðs, ➜ Þessar konur hafna í sér- staklega viðkvæmri stöðu, þegar þær ráða sig sem au pair í ókunnu landi, þúsund- ir kílómetra frá heimalandi sínu og fjölskyldu. Þær hafa ekkert tengslanet, kunna ekki tungumálið, þekkja ekki lög og siði samfélagsins og eru í raun og veru alger- lega upp á náð og miskunn móttökufjölskyldunnar komnar. FERÐA- ÞJÓNUSTA Helgi Pétursson Höfundur hefur langa reynslu af starfi og stefnumótun í ferðaþjónustu. Laugardaginn 9. ágúst sl. birtist grein í Fréttablaðinu þar sem framkvæmdastjóri Heyrnarhjálpar talar um verulegan skort á þjónustu við heyrnarskerta, þrátt fyrir að um stóran hóp sé að ræða, eða um fimmtíu þúsund manns. Þetta eru sannarlega orð í tíma töluð. Samtökin Heyrnarhjálp fögnuðu sjötíu og fimm ára afmæli haustið 2012 svo þau eru síður en svo ný af nálinni og hafa alla tíð barist fyrir hagsmunum heyrnarskertra. Eitt af bar- áttumálum félagsins er að rittúlkun verði viðurkennd sem aðgengisleið heyrnarskertra og að sjónvarps- efni sé rittúlkað (textað), sjá www. heyrnarhjalp.is. Eins og réttilega er bent á í greininni nýtist rittúlkun mjög stórum hópi fólks, öllum þeim sem eru heyrnarskertir en einnig þeim sem eru að ná tökum á íslensku máli. Heyrnarlausir geta auk þess nýtt sér rittúlkun, þrátt fyrir að íslenska táknmálið sé þeirra við- urkennda aðgengisleið að samfé- laginu. Rittúlkun fer þannig fram að rittúlkurinn situr (yfirleitt) við hlið þess sem er heyrnarskertur og ritar allt sem fram fer og er sagt. Sá sem er heyrnarskertur les þess- ar upplýsingar jafnóðum og er því alltaf meðvitaður um það sem rætt er um. Hann þarf því ekki að leggja sig allan fram um að reyna að heyra eitthvað eða eiga á hættu að missa samhengið sem gerist svo oft þegar margir tala saman. Ef fleiri en einn þurfa rittúlkun, eða um fund eða ráðstefnu er að ræða, er algengt að rittúlkuninni sé varpað á tjald. Ég hef sjálf verið á fundum þar sem notast er við rittúlkun, og ætla ekki að hafa mörg orð um það hversu þægilegra það er að sjá textann sífellt á tjaldinu og ná hverju einasta orði. Þó er ég svo heppin að hafa fulla heyrn en get ímyndað mér hvernig það er fyrir þá sem eru heyrnarskertir. Rittúlkun er skilvirk og tiltölulega auðveld leið til að miðla sjálfsögðum upplýsingum til heyrnar- skertra og fjölmargra ann- arra. Það er hins vegar skortur á fjármagni frá hinu opinbera sem orsakar það að hún er ekki eins algeng og hún ætti að vera. Greitt er fyrir rittúlkun í menntakerfinu, heilbrigðiskerfinu og dómskerfinu, en við aðrar aðstæður þarf fólk sjálft að borga fyrir starf rittúlks- ins (sbr. grein um rittúlkun eftir Þórnýju Björk Jakobsdóttur sem birtist í Heyrnarhjálp, 1. tbl. 17. árg., desember 2013). Best þekki ég til rittúlkunar í skólakerfinu, sem hefur gert heyrnarskertum einstaklingum mögulegt að stunda háskólanám. Okkur verður tíðrætt um aðgengi, en hvað er aðgengi? Í víðum skiln- ingi er það möguleiki okkar til að upplifa, njóta, sjá og hlusta á það sem fram fer í umhverfinu. Eng- inn vill vera lokaður af og missa af því sem gefur lífinu gildi og við telj- um mikilvægt. Textun er aðgengi að lífinu og rittúlkun er málið. Notum hana meira en nú er gert og gerum þannig sem flestum kleift að „heyra“ og vera með. Rittúlkun er málið SAMFÉLAG Klara Matthíasdóttir Höfundur er móðir og áhugamanneskja um rittúlkun og aðgengi í víðum skilningi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.