Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 30
FÓLK|TÍSKA
Gott bragð af
alvöru hnetum
www.ricedream.eu
Við erum á Facebook Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Ný
buxnasending
Str. 34-46
kr. 14.900.-
Litir: galla,svart,
blátt,brúnt
tvær síddir
fleiri snið
Ég þurfti að taka til í geymslunni. Það er líka nauðsynlegt að endurnýja fataskápinn sinn öðru hvoru og þá eru svona markaðir mjög
sniðugir. Ég versla stundum sjálfur á flóamörk-
uðum,“ segir Arnar Tómasson, hársnyrtir á Salon
Reykjavík, en hann ætlar að selja út úr fataskápun-
um á útimarkaði Íbúasamtaka Laugardals á laugar-
daginn ásamt systur sinni, Guðlaugu Tómasdóttur.
Við tiltektina í geymslunni komu ýmsir dýrgripir
í ljós sem Arnar mun láta frá sér á markaðnum.
„Ég fann fullt af fötum, bæði ódýrum fötum
og dýrum merkjavörum. Ég fór með mikið af því
ódýrasta í Rauða krossinn en svo voru dýrgripir
innan um sem ég ákvað að selja frekar. Ég fann
meðal annars forláta mokkajakka frá Donna Karan,
Prada-dúnúlpu sem orðin er of stór á mig, peysur
og fleira,“ segir Arnar.
„Ég fann líka gamaldags plötuspilara í geymsl-
unni og fullt af vínilplötum, kassettum og vídeó-
spólum. Meira að segja plötu með Tríói Guð-
mundar Ingólfssonar, áritaða af Björk. Hún er alveg
sérstök og í raun safngripur. Hún verður ekki gef-
ins,“ segir hann kankvís en segir þó að hægt verði
að gera hjá honum góð kaup annars, jafnvel prútta.
Beðinn um að lýsa fatastíl sínum vefst Arnari
tunga um tönn. „Ætli ég sé ekki sæmilega „mod-
ern“, kannski litríkur en um leið klassískur. Ég tel
mig hafa vit á tísku, þykist allavega fylgjast með en
ég var með tískupistla á Rás 2 í gamla daga,“ segir
Arnar. Spurður hvort hann hafi einhvern tíma gert
slæm kaup viðurkennir hann að hafa eitt sinn eytt
mánaðarlaunum í skó sem reyndust síðan ekki
passa.
„Ég kaupi nú ekki oft föt án þess að máta. Það
kom kannski frekar fyrir þegar ég var yngri en
ég hef þroskast í fatainnkaupum, langt genginn í
fimmtugt,“ segir hann kankvís.
Þetta árið mun útimarkaðurinn spretta upp
við ósa Elliðaáa, á plani við Snarfarahöfnina rétt
við nýju hjólabrúna. Þegar líður að kvöldi verður
haldin kvöldvaka með götugrilli og lifandi tónlist.
Þetta er í tólfta sinn sem útimarkaður Íbúasamtaka
Laugardals er haldinn og fer hann stækkandi með
hverju árinu að sögn markaðshaldara. Í fyrra er
talið að vel á áttunda þúsund manns hafi heimsótt
markaðinn. ■ heida@365.is
DONNA KARAN OG
PRADA Á MARKAÐI
TÍSKA Arnar Tómasson, hársnyrtir á Salon Reykjavík og tískuviti, hreinsar út
úr fataskápunum á útimarkaði Íbúasamtaka Laugardals um helgina.
SMEKKMAÐUR Arnar Tómasson er annálaður tískuviti. Hann ætlar að selja bæði flott fatamerki og dót úr geymslunni um helgina á
útimarkaði. Í tiltekt fann hann forláta plötuspilara og fleira forvitnilegt sem hann ætlar að losa sig við.
MYND/DANÍEL