Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 40
KYNNING − AUGLÝSINGSkólablaiðið FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 201410
Yfirleitt er ekki talið ráðlegt að borða yfir tölvunni eða við lestur. Fólk er til dæmis líklegra til að borða of mikið ef einbeitingin er á skjánum eða ofan í bókinni meðan borðað er. Þá má auðveldlega eyðileggja rándýran tækjabúnað og dýrmætar bækur með því að sulla niður drykkjum og sósu. Það gefst þó ekki
alltaf tími til að færa sig annað þegar hungrið sverfur að og þá er eins gott að á matseðlinum sé eitthvað sem
ekki molnar, sullast, smyrst eða lekur.
Matur sem hvorki
smyrst né lekur
Matur og drykkur eiga ekki samleið með rándýrum námsbókum og
verðmætum tölvum. Í tímaþröng er þó freistandi að maula hádegismatinn yfir
bókunum en þá þarf að hafa varann á.
Vefjur frekar en samlokur
Vefjur geta verið heppilegri en opnar samlokur til að
kjamsa á yfir tölvunni ef handlagni hefur verið beitt
við að búa þær til. Samlokur eiga það nefnilega til
að leka og eins molnar samlokubrauð frekar. Auð-
vitað mætti reyna að klæða samlokuna í poka.
Ekkert sósusull
Steik, kjúklingabringa eða skinka
gætu einnig verið heppilegur
tölvumatur, svo lengi sem bitunum
er ekki dýft í sósur. Notaðu gaffal
svo fingurnir verði ekki kámugir.
Ávextir og þurrt nasl
Ávextir og grænmeti er þægilegt að borða við
vinnuna. Þó þarf að passa að ekki leki yfir lykla-
borðið þegar bitið er í safaríka ávexti. Þurrkaðir
ávextir eru tilvaldir.
Gúrkur og kál
Salat sem ekki er löðrandi í dressingu er líka
heppilegt og auðvitað hollur kostur við kyrrset-
una. Ef þú missir eitthvað niður eru það yfirleitt
stórir bitar af salatblöðum eða gúrku sem má
auðveldlega taka upp án þess að sóða út.
Matur sem
er eins og lím
Matur sem hangir saman eins
og kartöflustappa er sneddí
yfir bókunum.
Ílátið getur skipt máli
Morgunkorn með mjólk sullast ekki ef það er
borðað upp úr bolla, segja sumir.
Varlega með
drykkina
Drykkir í ferðamál með loki, helst
gerðarlegt mál sem lokið skrúfast á því
ekki er alveg hægt að treysta einnota
pappamálum með þunnu plastloki.
Kennsla og þýðingar
Spænskunámskeið
eru að hefjast
Nánari upplýsingar á
optimo.is
eða í síma 7872152
- Samkvæmt 840.000
notendum GoodReads!
www.bjortutgafa.is
Framhald Divergent-
kvikmyndarinnar!
Önnur bókin í hinum geysivinsæla
Divergent-bókaflokki er nú komin út í kilju.
Fæst hjá öllum betri bóksölum!
Save the Children á Íslandi