Fréttablaðið - 14.08.2014, Page 58

Fréttablaðið - 14.08.2014, Page 58
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 38 „Við áttum tveggja ára afmæli í júní og þá fékk ég þessa skemmti- legu hugmynd,“ segir Alexander Schepsky, einn eigenda reiðhjóla- verslunarinnar Berlínar. Verslun- in lét framleiða fyrir sig tíu bæjar- hjól undir nafni Berlínar. „Þau eru framleidd nálægt heimabæ mínum, Düsseldorf í Þýskalandi, en þetta eru klassísk götuhjól,“ segir Alexander. „Þau eru með innbyggða gíra og hjólin koma með lás og pumpu.“ Alexander lýsir hjólinu sem hinu fullkomna bæjarhjóli en núna eftir að hafa selt átta af hjólunum tíu hefur hann ákveðið að láta gera tólf stykki í viðbót. „Núna eru hjólastígarnir að verða svo fínir í Reykjavík sem er frá- bær þróun,“ segir hann. „Þá er miklu þægilegra að fara á svona klassískum hjólum með mjóum dekkjum og sitja uppréttur til að geta fylgst með umferðinni.“ Á hjólinu er líka myndarlegur bögglaberi svo að hjólreiðamað- urinn þurfi ekki að bera neitt á bakinu. „Ég vildi prófa að koma með alvöru bæjarhjól til Reykjavík- ur, það er langbest að vera bara á hjóli,“ segir Alexander. „Við reynum að nota þetta sem farar- tæki frekar en íþrótt, þú vilt ekki beint fara í spandex á barinn, það er ekki kúl.“ - bþ Við reynum að nota þetta sem farartæki frekar en íþrótt, þú vilt ekki fara í spandex á barinn, það er ekki kúl Alexander Schepsky. ➜ Ekki í spandex á barinn Alexander Schepsky rekur hjólreiðaverslunina Berlín en hann lét framleiða sérstök hjól fyrir verslunina til þess að koma með alvöru bæjarhjól til Reykjavík. SÆLL OG SÁTTUR Alexander Schepsky er hrifinn af alvöru bæjarhjólum. MYND/DANÍEL Innihald U.þ.b. 18–20 stk. Innihald 250 ml kók, ekki sykurlaust 60 g dökkt kakó 60 g smjör við stofuhita 130 g sykur 60 g púðursykur 1 egg 125 g hveiti 1 tsk. matarsódi ½ tsk. salt Hnetusmjörskrem 230 g smjör við stofuhita 230 g hnetusmjör 500 g flórsykur 4 msk. rjómi ¼ tsk. Maldon-salt Toppur Sjávarsalt Súkkulaðikurl Skornar salthnetur Aðferð Hitið ofninn í 180°C og raðið bollakökuformum í bökunarmót og setjið á bökunarplötu. Setjið kók, kakó og smjör í pott og bræðið yfir meðalháum hita þar til smjörið hefur bráðnað. Bætið sykri saman við og hrærið þar til hann er uppleystur. Takið pottinn af hellunni og látið kólna. Setjið egg í skál og hrærið, bætið því saman við blönd- una og hrærið vel saman. Blandið hveiti, matarsóda og salti saman í skál og svo saman við blönduna. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Setjið deigið í bollaköku- formin og passið ykkur að fylla þau ekki meira en að 2/3, eða u.þ.b. 2 msk. af deigi í hvert form. Bakið í 20-25 mínútur eða þar til tann- stöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar. Kælið kökurnar alveg áður en kremið er sett á. Hnetusmjörskrem Hrærið smjörið og hnetusmjörið þar til það hefur blandast vel saman. Bætið flórsykri saman við, litlu í einu og hrærið vel á milli. Bætið því næst rjóma út í ásamt salti og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Setjið kremið í sprautupoka og sprautið á kökurnar. Skreytið með súkkulaðikurli, salti og skornum salt- hnetum. Kókbollakökur Uppskrift að ljúff engum bollakökum með kók, hnetu- smjöri og súkkulaði frá Thelmu Þorbergsdóttur sem heldur úti matarbloggi á síðunni Gottimatinn.is. GIRNILEGAR Thelma segir kókið koma í staðinn fyrir sykur og að það geri kökurnar einstaklega mjúkar. LANVIN- KJÓLL Þær Erin Andrews og Lupita Nyong’o féllu báðar fyrir sama hvíta kjólnum frá Lanvin með slaufunni. Flottur kjóll og setur vasinn á hann skemmtilegan svip. Féllu fyrir sömu fl íkinni Stjörnurnar lenda oft í því að klæðast sams konar fötum og eru þau augnablik oft ar en ekki fest á fi lmu. Hér má sjá nokkrar sem klæðast sömu fötu- num en þó hver með sínu lagi. THREE FLOOR-KJÓLL Þessi áberandi kjóll með bert á milli hefur verið vinsæll meðal stjarnanna. Hér eru þær Jamie Chung og Crystal Reed í honum og bera hann báðar afbragðsvel. ROKSANDA ILINCIC-PILS Þetta pils frá Roksöndu Ilincic er hægt að klæða bæði upp og niður með ólíkri útkom. Hér er Spice Girls-stjarnan Mel B í hlýralausum topp við en leikkonan Lizzy Caplan klæðist pilsinu við svartan síðerma topp með allt annarri útkomu. Árið 1990 óskaði fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdót- tir eft ir pennavini í Barna-DV en á meðal áhugamála hennar voru sætir strákar og vildi hún helst skrifast á við krakka úti á landi. Ásdís Rán fæddist 12. ágúst árið 1979 og á þar af leiðandi sama afmælisdag og lögfræðingurinn Sveinn Andri Sveinsson en hann var einmitt kosinn formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands árið 1988. Tveimur árum síðar fæðist barnsmóðir Sveins Andra, Kristrún Ösp Barkardóttir en sonur þeirra fæddist árið 2012. Margt annað gleðilegt gerðist árið 2012 og gekk Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, að eiga unnustu sína, Írisi Ösp Bergþórs- dótt ur sama ár. Sveppi var í Breiðholtsskóla á sínum tíma en Ásdís Rán var einmitt líka í Breiðholtsskóla. HÖLL MINNINGANNA FRÁ ÁSDÍSI RÁN TIL ÁSDÍSAR RÁNAR LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.