Fréttablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 62
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 42
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
Benediktssonar
Væntingastjórnun er nýjasta tísku-orðið. Þegar stjórnendur búa fólk
undir það versta og ná þannig að halda
því ánægðu þótt ekki sé boðið upp á það
besta. Hamingjan snýst víst ekki um
hvað þú færð heldur hvað þú færð miðað
við hvað þú taldir þig eiga rétt á að fá.
NÝLEGA var gerð könnun á vegum Uni-
versity College í London með það að
markmiði að búa til jöfnu fyrir hamingj-
una. Þátttakendur voru látnir svara
spurningunni „hversu hamingju-
samur ertu núna“ á meðan þeir
undirgengust veðmál með mis-
munandi forsendum. Til að sann-
reyna svörin voru höfuð þátttak-
enda tengd við tölvu þar sem lesið
var í rafboð sem heili þeirra gaf
frá sér þegar svör voru gefin.
Í ljós kom að það er ekki
raunverulegur ávinning-
ur sem stjórnar ham-
ingjunni heldur hlut-
fallsleg útkoma miðað
við væntingar. Að koma
út á núlli í veðmáli með
slæmum líkum veitir
fólki hlutfallslega jafn
mikla hamingju og að
græða á veðmáli þar sem taplíkur eru
litlar.
Á mannamáli þýðir þetta að það getur veitt
heilsulitlum manni jafn mikla hamingju
að labba upp Öskjuhlíðina eins og atvinnu-
fjallagarpi að klífa á tind Everest. Um
þetta hafa skáldin ort og óþarfi að fjölyrða
um það. Miðað við þetta er „væntingastjór-
nun“ klókt bragð hvort sem því er beitt af
stjórnmálamönnum eða foreldrum. En svo
er einnig spurning hvort „hamingja“ sé
aðeins of stórt hugtak til að rúmast innan
þessara hugsana.
„ÞEIR segja að ef maður vísi burt voninni,
þá veitist manni allt,“ söng Megas og það
geta vísindamennirnir frá University Col-
lege tekið undir. En í línunni er undirliggj-
andi hryggð. Fylgi maður þessari hugsun
til enda þá er alltaf best að gera sjálfan sig
eins vonlítinn og mögulegt er. Samkvæmt
því ætti leiðin að hamingjunni að vera
að rífa sjálfan sig niður, útiloka vonir og
væntingar, krefjast og vænta einskis – en
það er leið ógæfunnar.
VÆNTINGASTJÓRNUN er vandmeðfarin.
Hún virkar lógísk en hamingjan er þrátt
fyrir allt ekki bundin rökum.
Væntingastjórnun
„Ég vissi að þessar upptökur væru
til en hafði ekki heyrt þetta í þrett-
án ár,“ segir Sölvi Blöndal, for-
sprakki hljómsveitarinnar Quar-
ashi, en upptökur frá tónleikum
sveitarinnar ásamt Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands eru komnar á netið,
án þess þó að liðsmenn Quarashi
hafi haft hugmynd um það. Á aðdá-
endasíðu Quarashi verður sett inn
eitt lag á dag í sjö daga en lögin á
tónleikunum voru einmitt sjö. Þrjú
lög eru þegar komin inn á síðuna.
Tónleikarnir sem um ræðir fóru
fram árið 2001 og vöktu mikla
athygli á sínum tíma. „Þetta var
mjög áhugavert því það hafði eng-
inn gert þetta áður, rapphljóm-
sveit og sinfóníuhljómsveit að spila
saman er eitthvað sem hafði ekki
verið gert áður,“ bætir Sölvi við
léttur í lundu.
Hann minnist þess þó að lítið
hafi verið æft fyrir tónleikana.
„Við spiluðum prógrammið í
fyrsta sinn með Sinfó á tónleik-
unum og æfðum aldrei nema bara
hver í sínu lagi. Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson útsetti þetta frábær-
lega og þetta gekk ótrúlega vel,
við vissum ekki hvernig þetta
myndi takast,“ útskýrir Sölvi.
Sölvi og Þorvaldur Bjarni unnu
einnig saman að laginu Til ham-
ingju Ísland sem fór í Eurovision
á sínum tíma.
Upptökurnar af tónleikunum
fóru þó í útvarpsspilun á sínum
tíma. „Það er líklegast að upptök-
urnar hafi lekið á netið í gegnum
útvarpsspilunina en mér finnst
samt bara fínt að þetta komi á
netið. Ég held samt að þessar upp-
tökur komi ekki til með vera gefn-
ar út nema bara svona á netinu,“
segir Sölvi.
Liðsmenn Quarashi eru þessa
dagana að jafna sig eftir vel
heppnaða tónleika á Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum. „Núna erum
við bara að slaka á, við vorum
mjög ánægðir með þessa tónleika.
Ég veit ekki alveg hvað gerist næst
hjá Quarashi.“ - glp
Afar sjaldgæfar
upptökur á netið
Upptökur frá tónleikum Quarashi og Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu
2001 hafa litið dagsins ljós á netinu. Um afar sjaldgæfar upptökur er að ræða.
SÁTTIR VIÐ UPPTÖKURNAR Liðsmenn Quarashi eru ekkert pirraðir yfir því að upptökur af tónleikum þeirra með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands hafi ratað á netið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LUCY
LUCY LÚXUS
GUARDIAN OF THE GALAXY 3D
GUARDIAN OF THE GALAXY 3DLÚXUS
SEX TAPE
DAWN _PLANET OF THE APES 3D
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL2D
VONARSTRÆTI
KL.. 3.10 - 5.40 - 8 - 10.10
KL. 10.40
KL. 3.10 - 5 - 8 - 10.40
KL. 5 - 8
KL. 8 - 10.10
KL. 8 - 10.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 5.20
LUCY
NIKULÁS Í FRÍI
SEX TAPE
DAWN_PLANET OF THE APES 3D
22 JUMP STREET
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI
VONARSTRÆTI
KL. 5.50 - 8(GÆÐAS) -10.10
KL. 5.45 - 8
KL. 5.40 - 8 - 10.10
KL. 10.15
KL. 10.40
KL. 5.20
8KL.
Miðasala á:
EIN ÓVÆNTASTA SPENNUMYND ÁRSINS
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SAN FRANCISCO CHRONICLE
MOVIEPILOT.COM
HITFIX WASHINGTON POST NEW YORK DAILY NEWS
LUCY 6, 8, 10:35(P)
NIKULÁS LITLI 3:50
HERCULES 10
THE PURGE: ANARCHY 10:20
TEMJA DREKANN SINN 2D 5
22 JUMP STREET 5, 8
ÍSL TAL
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
BEINT Á TOPPINN Í USA!
MONTY PYTHON LIVE (mostly) 7 - 12 ÁGÚST: 20.00
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas