Fréttablaðið - 14.08.2014, Page 66
14. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 46
MATHIEU
DEBUCHY
➜ Kom frá
Newcastle
29 ára
bakvörður
CALUM CHAMBERS
➜ Kom frá Southampton
19 ára varnarmaður
DAVID OSPINNA
➜ Kom frá Nice
25 ára markvörður
ALEXIS SÁNCHEZ spilaði
frábærlega fyrir Barcelona á síðustu
leiktíð eftir tvö ekki jafngóð ár þar
á undan. Hann skilaði 21 marki í
öllum keppnum og var á löngum
köflum besti maður liðsins.
Sánchez hélt áfram að heilla menn
á HM og virðist nokkuð augljóst að
hraði hans, kraftur og hlaupageta
séu sérsniðin að ensku úrvals-
deildinni. Með Sánchez og Theo
Walcott utan á Oliver Giroud frammi
og Mezut Özil fyrir aftan hann er
kominn vægast sagt beittur oddur á
sóknarspjót Arsenal-liðsins.
Fréttablaðið hefur að undanförnu birt spá sína fyrir
ensku úrvalsdeildina í fótbolta og nú er komið að
liðinu sem verður með í titilbaráttunni, en þarf á end-
anum að sætta sig við þriðja sætið í deildinni.
Arsenal var eins og svo oft áður líklegt til afreka
framan af síðasta tímabili, en eins og svo oft áður
klikkaði liðið eftir áramót. Aftur á móti vann liðið
fyrsta titilinn í níu ár og því fylgdi síðan sigur í Sam-
félagsskildinum um daginn. Það skal ekki vanmeta
hversu miklu máli það skiptir leikmenn að vinna
titla þegar illa hefur gengið. Annað sumarið í röð var
Wenger með veskið á lofti og pungaði út 35 milljónum
fyrir stjörnuframherja. Verði Aaron Ramsey í sama
formi og í fyrra og haldi Özil út heila leiktíð eru skytt-
urnar til alls líklegar. Nú finna þær loks blóðbragðið.
Í þriðja sætinu í deildinni verður Arsenal
ENSKA
ÚRVALS-
DEILDIN
HEFST
EFTIR
2 DAGA
SPÁ FRÉTTABLAÐSINS
Englandsmeistari Á morgun
2. Man. City 3. Arsenal
4. Man. United 5. Liverpool
6. Everton 7. Tottenham
8. Stoke 9. Swansea
10. Newcastle 11.Southampton
12. Aston Villa 13. C. Palace
14. Sunderland 15. West Ham
16. Hull 17. QPR
Þessi lið falla
18. WBA 19. Leicester
20. Burnley
Stjörnuleikmaðurinn
Finna má
meira um Ensku
úrvalsdeildina
á Vísi
visir.is
NÝJU ANDLITIN
SPORT
FÓTBOLTI Ný grein, sú sextánda, í
reglugerð KSÍ um aga- og úrskurð-
armál hefur heldur betur látið
á sig reyna á sínu fyrsta sumri í
knattspyrnunni. Í henni segir:
„Hver sá sem misbýður öðrum
einstaklingi eða hópi með fyrir-
litningu, mismunun eða niður-
lægingu í orði eða verki varðandi
kynhneigð, kynferði, trúarbrögð,
skoðanir, þjóðernisuppruna, kyn-
þátt, litarhátt og stöðu að öðru
leyti skal sæta leikbanni í að
minnsta kosti fimm leiki.“
Nýja ákvæðið er þýðing á
ákvæði í agareglugerð FIFA sem
öllum knattspyrnusamböndum
innan FIFA ber að taka upp, en
það felur í sér harðari viðurlög við
hvers kyns mismunun.
Samtals hafa þrjú íslensk félög
verið sektuð um 350.000 krónur,
en þetta er margföld hækkun á
sektum vegna mismununar sem
má á einfaldari hátt kalla kyn-
þáttaníð.
Fyrst var leikmaður Víðis í
Garði úrskurðaður í fimm leikja
bann í deildabikarnum fyrr í
sumar fyrir að beita mótherja sinn
kynþáttaníði og félagið sektað um
100.00 krónur. Sú tala meira en
tvöfaldaðist svo í gær.
Þá var ÍBV sektað um 150.000
krónur fyrir kynþáttaníð stuðn-
ingsmanns félagsins í garð Farids
Zato, leikmanns KR, og Víkingur í
Ólafsvík fékk 100.000 króna sekt
vegna framkomu Eyþórs Helga
Birgissonar í garð aðstoðardómara
í leik gegn Grindavík um síðustu
helgi. Sextánda greinin ætlar að
reynast erfið veskjum gjaldkera
sumra liða en að sama skapi mik-
ilvæg fyrir íþróttina.
Viðurlögin við kynþáttaníði
fyrir ekki meira en ári voru mun
vægari. Ber að nefna að Keflavík
fékk ekki nema 30.000 króna sekt
fyrir kynþáttaníð stuðningsmanns
liðsins í garð Tonnys Mawejje í
september á síðasta ári, en það
hefur lengi verið hámarkssekt
knattspyrnusambandsins.
Það var ekki í fyrsta skipti sem
leikmaður ÍBV varð fyrir barðinu
á kynþáttaníði, en sumarið 2007
fékk Fjölnir sekt fyrir hegðan
stuðningsmanna liðsins í garð
Andrew Mwesigwa í 1. deildinni..
ÍBV nýtti því tækifærið í gær í
yfirlýsingu sinni og fagnaði hversu
hart væri tekið á málum. - tom
Ákvæði um mismunun reynist sumum félögum rándýrt
Þrjú félög sektuð af Knattspyrnusambandi Íslands um samtals 350.000 krónur fyrir brot á nýrri reglu sambandsins um mismunun.
SEKT Eyjamenn voru sektaðir fyrir kynþáttaníð í garð Farids Zato. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Freyr Alexandersson
tilkynnti í gær íslenska hópinn
sem mætir Dönum í undankeppni
HM 2015 á Laugardalsvelli 21.
ágúst. Leikurinn er gríðarlega
mikilvægur upp á framhaldið,
en Ísland þarf að vinna alla þrjá
leikina sem eftir eru í 3. riðli
undankeppninnar til að eygja von
um að komast í umspil um sæti
á HM.
Guðbjörg Gunnarsdóttir og Sif
Atladóttir verða ekki með vegna
meiðsla, en 15 af 20 leikmönnum í
hópnum leika í Pepsi-deildinni.
Ísland og Danmörk skildu jöfn,
1-1, í fyrri leiknum en Freyr
segir að íslenska landsliðið eigi
erfitt verkefni fyrir höndum á
Laugardalsvellinum, en þetta
verður í fyrsta sinn sem þessar
þjóðir mætast á íslenskri grundu.
En hvað þarf Ísland að gera til að
vinna leikinn?
„Við þurfum að undirbúa okkur
vel og ná upp góðri stemmningu
innan liðsins og svo þurfum við
að fá fólk á völlinn,“ sagði Freyr
og bætti við: „Við þurfum að hafa
varnarleikinn í lagi, pressa á
réttum stöðum og reyna að vinna
boltann framarlega á vellinum
eins og oft og við getum,“ sagði
landsliðsþjálfarinn.
Leikur Stjörnunnar og Inter í
forkeppni Evrópudeildarinnar fer
fram daginn áður á Laugardals-
vellinum. Freyr segir að sá leikur
muni eflaust fá mikla athygli, en
vonast þó að áhorfendur muni
mæta vel á leikinn gegn Dönum:
„Við fáum risastóra leiki í Laug-
ardalnum tvo daga í röð. Það er
ekki mikið eftir af sumrinu og
ég vona að fólk nýti tækifærið og
sjái báða leikina.“ - iþs
Risaleikir tvo
daga í röð
LOKATÆKIFÆRIÐ Freyr Alexandersson
landsliðsþjálfari. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Júlímánuður var ekki
bjartur í Safamýrinni í sumar.
Framliðið tapaði fimm leikjum í
röð í Pepsi-deildinni og markatal-
an var 1-13. Með sama áframhaldi
blasti ekkert annað við en fall en
þegar Bjarni Guðjónsson mætti
hins vegar með lið sitt á Þórsvöll-
inn var hann með ás upp í erminni.
Denis Cardaklija, 26 ára sonur
vítabanans Hajrudins Cardaklija,
var búinn að taka hanskana niður
af hillunni og stóð á milli stang-
anna í þessum mikilvæga leik.
Denis var vissulega ekki ókunn-
ugur því að klæðast Framtreyj-
unni en var samt enn nýliði í efstu
deild þrátt fyrir þrjú tímabil sem
varamarkvörður Fram. Það efuð-
ust því margir um að reynslulaus
markvörður sem hafði ekki spilað
deildarleik í fjögur ár gæti hjálpað
til við að loka hriplekri vörninni.
Nú, tveimur leikjum síðar, eru
Framarar búnir að bæta við sig
sex stigum, komnir upp úr fall-
sæti og það sem meira er – Denis
er ekki enn búinn að fá á sig mark.
„Það kom pínu á óvart hvað það
gekk vel í þessum fyrstu leikjum,“
viðurkennir Denis. „Þegar Bjarni
heyrði í mér þá þurfti ég að hugsa
mig vel um hvort að það væri rétt
fyrir mig að fara inn í þetta svona
og hvort ég gæti virkilega hjálpað
liðinu að ná úrslitum. Bjarni bauð
mér á æfingu og svo byrjaði þetta
að ganga vel. Mér leið eins og ég
hefði aldrei farið,“ segir Denis.
Svo er pabbi þarna líka
„Margir höfðu efasemdir um mig,
enda ekkert eðlilegt að hoppa
inn á miðju tímabili eftir að hafa
verið frá í nánast eitt ár. Þegar
fólk hefur trú á þér, eins og Bjarni
þjálfari og strákarnir höfðu, þá
veistu að þetta er hægt. Svo er
pabbi þarna líka,“ sagði Denis.
„Kærastan mín og fjölskyld-
an mín sögðu alltaf við mig að
ég væri nægilega góður og að ég
gæti þetta alveg. Það hjálpaði mér
mikið en líka það að ég veit hvað
ég get og hvaða takmörk ég hef,“
segir Denis. Faðir hans, Hajrudin
Cardaklija, er markmannsþjálf-
ari liðsins. Hajrudin gerði garð-
inn frægan með Breiðabliki í efstu
deild og er enn í dag mesti vítaban-
inn í sögu deildarinnar.
„Um leið og gamli samningur-
inn minn rann út í desember þá
bauðst pabba fyrir tilviljun að taka
við kvennaliðinu og svo datt hann
inn í markmannsþjálfunina í fram-
haldinu. Svo er ég allt í einu kom-
inn inn í þetta og hann því orðinn
markmannsþjálfarinn minn. Þetta
er mjög skemmtilegt allt saman.
Hann hefur þjálfað mig áður bæði
í meistaraflokki og yngri flokk-
um,“ segir Denis.
Þrjú ár á bekknum
Denis var í herbúðum Fram frá
2011 til 2013 en fékk ekki að spila.
„Þegar ég samdi fyrst við Fram þá
kom ég inn í liðið sem varamark-
vörður. Þá var Ögmundur (Krist-
insson) að fá sitt tækifæri eftir
að Hannes (Þór Halldórsson) fór
í KR. Staðan var bara þannig að
Ögmundur var frábær þessi ár
sem hann var í Fram. Hann fékk
heldur aldrei brottvísun og meidd-
ist nánast aldrei. Hann var því að
sjálfsögðu markvörður númer eitt
á þessum tíma,“ segir Denis. Hann
fékk samt nóg á endanum.
„Ég fékk bara leiða á þessu. Ég
var búinn að vera á bekknum í
þrjú ár. Ég hafði líka í nógu öðru
að snúast í skólanum og var í fullu
starfi með honum. Þetta var orðið
of mikið af því góða. Svo er minna
að gera núna, það er lítið eftir af
náminu og boltinn passar betur
inn í þetta núna en á sama tíma í
fyrra,“ segir Denis sem er að klára
meistaranám í stjórnun og stefnu-
mótun í viðskiptafræðinni.
Unglingalandsliðsmarkvörður-
inn Hörður Fannar Björgvinsson
er nú í sömu stöðu og Denis var
í mörg ár. „Hann er mjög góður
markvörður og á mjög bjarta fram-
tíð fyrir sér. Hans tækifæri kemur
fyrr en síðar. Ég lærði mikið af
pabba á sínum tíma enda mikið að
æfa með honum einn og á mark-
mannsæfingum. Ég er ánægður
fyrir hönd Harðar að hann fái að
æfa með pabba því þó að hann sé
pabbi minn þá segi ég það hreint
út að hann er mjög góður mark-
mannsþjálfari. Hann á eftir að
hjálpa honum mjög mikið,“ segir
Denis. ooj@frettabladid.is
Enginn venjulegur nýliði
Denis Cardaklija svaraði kallinu og tók hanskana af hillunni. Hann var líka ekki lengi að eyða efasemda-
röddum og varð fyrsti markvörður Fram í sex ár sem heldur Frammarkinu hreinu í tveimur leikjum í röð.
CARDAKLIJA-
FEÐGARNIR
SAMAN Á NÝ
Denis Carda-
klija og faðir
hans, Hajrudin,
á Framvell-
inum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA