Fréttablaðið - 27.08.2014, Blaðsíða 16
27. ágúst 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN ÞÓRÐARSON
fv. framleiðslustjóri á Reykjalundi,
Skipholti 49, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 23. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Pétur Jónsson Margrét Valdimarsdóttir
Sigrún Jónsdóttir
Guðrún Jónsdóttir Úlfar Herbertsson
Ægir Þór Jónsson Jan Dodge Jónsson
og fjölskyldur.
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
FRÍMANN ÁRNASON
Heiðargerði 9,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
fimmtudaginn 21. ágúst. Útförin fer
fram frá Grensáskirkju föstudaginn
29. ágúst kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hjartavernd.
Grétar Árnason Elísabet Jónsdóttir
Steinunn Erla Árnadóttir Hermann Lúðvíksson
Hulda Árnadóttir
Margrét Ásgeirsdóttir Steinar Sigurgeirsson
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓNAS PÁLSSON
fyrrverandi rektor KHÍ,
lést laugardaginn 23. ágúst á
Landakotsspítala.
Björn Jónasson
Gunnar Börkur Jónasson I. Dóra Hansen
Hermann Páll Jónasson
Kristín Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
STEINARS HAGALÍNSSONAR
frá Hvammi í Dýrafirði,
Stekkjarholti 24, Akranesi.
Ragnheiður Ásgrímsdóttir
Ásbjörn Hagalín Steinarsson Jóhanna Sigríður Gylfadóttir
Þórunn Úrsúla Steinarsdóttir Stefán Jónsson
Berglind Steinarsdóttir Þórólfur Hilbert Jóhannesson
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar,
STEFÁN Þ. ÞORLÁKSSON
fv. menntaskólakennari,
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
lést föstudaginn 22. ágúst. Útförin fer fram
í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir
færum við starfsfólki Hlíðar fyrir einstaka
umönnun.
Aðalbjörg Anna, Sigríður, Suzanne og Sofia Stefánsdætur.
50 ára afmæli
Ólafur M. Magnússon
frá Eyjum í Kjós
er 50 ára þann 27. ágúst 2014.
Í tilefni afmælisins taka Ólafur og fjölskylda hans á móti
gestum að Stóru-Skál í Kjós næstkomandi laugardag
kl. 20.00. Eru allir velkomnir sem vilja samgleðjast þeim á
þessum tímamótum.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
MARÍA ÓLÖF KJARTANSDÓTTIR
Laufbrekku 20, Kópavogi,
lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn 24.
ágúst. Útförin fer fram frá Digraneskirkju
þriðjudaginn 2. september kl. 13. Blóm og kransar eru
vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
FAAS eða Hollvinasamtök Droplaugarstaða.
Einar Guðmundsson
Elín Einarsdóttir
Guðmundur Einarsson Anna Karlsdóttir
Kjartan Einarsson Claudia Spagnol
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir mín, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
KRISTÍN ÁGÚSTA ÞORVALDSDÓTTIR
Njarðargötu 27, Reykjavík,
lést á öldrunardeild LSH 22. ágúst. Útförin
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
1. september kl. 15,
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Yngvi Ástráðsson Sjöfn Jónsdóttir
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
FJÓLA SIGURÐARDÓTTIR
Laufási, Þingeyri við Dýrafjörð,
Breiðvangi 4, Hafnarfirði,
lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði
þann 16. ágúst. Útför hennar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 29. ágúst kl. 13.00.
Hrönn Steingrímsdóttir Sigurður Kristinsson
Þórir Einar Steingrímsson Áslaug Bjarnadóttir
Steinunn Fjóla, Matthías Sævar, Rannveig Björk,
Sigurður Gunnar og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINN RAFN EIÐSSON
frá Fáskrúðsfirði,
Gullsmára 5, Kópavogi,
lést á Landakoti 22. ágúst. Útför hans fer
fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 29. ágúst
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Karitas hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustu.
Gyða Ingólfsdóttir
Ingólfur Sveinsson Anna Björg Pálsdóttir
Eiður Sveinsson Rut Gunnþórsdóttir
Sveinn Kr. Sveinsson Margrét Káradóttir
Agnar Sveinsson Andrea Sigurðardóttir
Klara Sveinsdóttir Þorlákur Á. Helgason
Skúli Þór Sveinsson Hjördís Lilja Reynisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær systir okkar, mágkona og frænka,
AÐALHEIÐUR BJÖRK INDRIÐADÓTTIR
lést í Sunnuhlíð í Kópavogi þann 23. ágúst.
Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristján Jónsson
Björn Indriðason Elsa Gunnarsdóttir
Einar Bragi Indriðason Þóra Elín Helgadóttir
og fjölskyldur.
MERKISATBURÐIR
1729 Hraun rann út í Mývatn umhverfis kirkjuna í Reykjahlíð í
Mývatnseldum.
1867 Eldgos hófst í Vatnajökli, talið eiga upptök nálægt Gríms-
vötnum.
1914 Fjórir menn af sautján manna áhöfn togarans Skúla
fógeta fórust er togarinn sigldi á tundurdufl og sökk.
1946 Fyrsti bíllinn komst til Siglufjarðar eftir að unnið hafði
verið að vegagerð um Siglufjarðarskarð í ellefu ár.
1994 Bíódagar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, hlaut
Amanda-kvikmyndaverðlaunin.
„Á undanförnum árum höfum við jafnan
frumsýnt íslensk leikverk og látið þau mæta
erlendum verkum en nú ákváðum við að
einblína eingöngu á íslenskar sýningar. Þær
eru sjö talsins, þar af fimm frumsýningar,“
segir Ragnheiður Skúladóttir um Lókal -
leiklistarhátíðina sem hefst í kvöld.
Ragnheiður hefur verið framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar frá upphafi en hún og
Bjarni Jónsson maður hennar eru einnig
listrænir stjórnendur. „Þetta er hátíð okkar
hjóna,“ segir hún glaðlega en tekur fram að
ríki og borg hafi styrkt Lókal frá byrjun.
Svo fer hún nokkrum orðum um efni sýn-
inganna í ár.
„Í verkinu Blind Spotting verðum við
vitni að ögrandi danslist Margrétar Söru, í
Petru kynnumst við ömmunni sem arfleiddi
fjölskyldu sína að nokkrum tonnum af
grjóti og í Guddu fylgjumst við með sjeik-
spírskum sálfræðihernaði samleigjenda
í Vesturbænum. Einnig fáum við aðgang
að furðulegum heimi Bláskjás, í Flækjum
tökum við þátt í líknandi dagskrá Kviss,
Búmm Bang, við göngum um borg leyndar-
dóma í verkinu Ég elska Reykjavík og upp-
lifum óvæntar uppákomur í Haraldinum.“
Sýningarnar eru í Tjarnarbíói, Smiðj-
unni á Sölvhólsgötu 13, Borgarleikhúsinu og
við Hörpu. Nánar á www.lokal.is.
gun@frettabladid.is
Frumsýna fi mm verk
Leiklistarhátíðin Lókal hefst í dag. Þetta árið er áherslan á íslensk verk. Ragnheiður
Skúladóttir stýrir hátíðinni ásamt Bjarna Jónssyni og Guðrúnu J. Guðmundsdóttur.
FRAMKVÆMDASTJÓRINN „Þetta er hátíð okkar hjóna,“ segir Ragnheiður en tekur
fram að styrkir komi frá borg og ríki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA