Fréttablaðið - 27.08.2014, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 27.08.2014, Blaðsíða 29
 5 | 27. ágúst 2014 | miðvikudagur „Félagið fékk nýverið inn erlenda fjár- mögnun sem gerir okkur kleift að stækka og auka áherslu á markaðssetningu til muna,“ segir María Rúnarsdóttir, einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins Mint Solutions, um 680 milljóna króna fjárfest- ingu hollenskra og franskra fjárfestingar- sjóða í fyrirtækinu fyrr í sumar. María stofnaði fyrirtækið árið 2010 ásamt þeim Ívari S. Helgasyni og Gauta Reynis- syni. Þau höfðu þá unnið að gerð framleiðslu- vöru þess, MedEye, frá 2008. MedEye er lyfjagreinir fyrir sjúkrahús og heilbrigðis- stofnanir sem tryggir að sjúklingar fái rétt lyf, í réttu magni og á réttum tíma. „MedEye skannar lyf myndrænt og greinir ólíkar tegundir í sundur og aðstoðar þannig hjúkrunarfræðinga við að gefa lyf og kemur í veg fyrir mistök. Það hefur verið mjög gefandi að vinna við þetta verkefni vitandi að það geti bjargað mannslífum,“ segir María. Hún segir eigendur Mint Solutions ætla að vinna áfram að því að búa til fyrirtækið sem alltaf var stefnt að. „Þar sem er gaman að vinna ganga hlut- irnir vel. Við erum að bæta við starfs- fólki hérna heima og ætlum okkur að verða alvöru hátæknifyrirtæki.“ Höfuðstöðvar Mint Solutions voru fl uttar til Hollands þegar erlendu fjárfestarnir komu til sögunnar en öll þróunarvinna verður áfram á Íslandi. „Vöxturinn verður hér að mestu leyti fyrir utan það sem við ætluðum alltaf að hafa erlendis eins og sölustarfsemina og slíkt.“ María lauk MBA-námi við MIT-háskól- ann í Boston vorið 2008. Eftir nám hóf hún störf sem fjármálastjóri SMI ehf. þar sem hún starfar enn. SMI fór í gegnum miklar breytingar á síðasta ári þegar fl estar inn- lendar og erlendar eignir þess, þar á meðal Turninn í Kópavogi og Glerártorg á Akur- eyri, voru seldar. „Við erum enn með Korputorgið og ég er enn þá að snúast í því.“ María segir að fjölskyldan sé númer eitt, tvö og þrjú þegar hún er spurð hvað hún geri í frítíma sínum. Hún er í sambúð með Ívari S. Helgasyni og eiga þau saman tvær dætur en Ívar á einnig tvær dætur úr fyrra sambandi. „Við eigum fjórar stelpur, einn hund og hest. Við erum í hestamennsku og svo stunda ég útivist eins og skíði og fjallgöngur. Ég lét nú draga mig á seglskútu námskeið um daginn og líkaði það vel sem er merkilegt fyrir manneskju sem verður alltaf sjóveik. En ég hef alltaf verið ævintýragjörn.“ Fjölskyldan hefur einnig haft mikil áhrif á starfsframa Maríu. Hún byrjaði ung að vinna hjá föður sínum, Rúnari Sigurðssyni, en hann rak lengi fyrirtækið Tæknival. „Hann hefur alltaf verið fyrirmyndin mín og við erum mjög náin í dag. Hann er stór partur af þessu öllu saman. Viðskipti hafa því alltaf verið í blóðinu.“ Hefur alltaf haft viðskiptin í blóðinu María Rúnarsdóttir er einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins Mint Solutions. Fyrirtækið framleiðir MedEye og fékk nýverið inn erlenda fjármögnun upp á 680 milljónir. Byrjaði ung að vinna hjá föður sínum í Tæknivali. NÓG AÐ GERA María er einnig stjórnar- formaður verðbréfa- fyrirtækisins Arctica Finance. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÁKVEÐIN OG FYLGIN SÉR „Ég kynntist Maríu fyrir nokkrum árum og við stofn- uðum fljótlega fyrirtæki saman við þriðja mann. Ég þekki ekki marga sem hafa jafn gott lag á að filtera út óþarfa og einbeita sér að aðalatriðunum – eitthvað sem hefur verið ómetanlegt við að koma Mint Solutions úr startholunum. Þegar maður vinnur með Maríu þá virðist allt auðvelt – það eru aldrei vandamál sem ekki er hægt að leysa eða finna út úr. Ég er ekki viss um að henni detti nokkurn tíma í hug að hlutir geti mis- heppnast – þeir taki bara misjafnlega langan tíma.” Gauti Reynisson, einn af stofnendum Mint Solutions. „Það hafa verið algjör forréttindi að fá að fylgjast með Maríu seinustu árin, sjá hana vaxa úr grasi frá unga aldri og verða metnaðarfulla, víðsýna og klára viðskiptakonu. Hún er mjög skýr og þekkir sitt fag 110 prósent. Hennar rök hafa vegið þungt í öllum samningaviðræðum, sem gerir hana að algerri lykil- manneskju í hverju fyrirtæki sem hún hefur starfað hjá. Einnig er hún mjög ákveðin og fylgin sér, en á sama tíma mjög hlý og manneskjuleg. María er algjör gullmoli að hafa í sínu liði.“ Kolbrún Huld Víðisdóttir, framkvæmdastjóri Heilsumiðstöðvarinnar. CRÉATIVE TECHNOLOGIE Citroën Nemo er með lægsta verðmiðann á markaðnum. Gerðu samanburð og veldu hagkvæman og lipran sendibíl sem uppfyllir allar þínar kröfur. Nemo er vel búinn og sparneytinn, hvort sem þú velur bensín eða dísil. Hliðarhurðir beggja vegna auðvelda hleðslu og hægt er að flytja lengri hluti með því að fella niður skilrúmið. Kauptu hagkvæman Citroën Nemo, við aðstoðum þig með fjármögnun. Komdu í reynsluakstur. CITROËN NEMO ER HAGKVÆMASTI KOSTURINN citroen.is Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. • LÆGSTA VERÐIÐ • HLIÐARHURÐIR BEGGJA VEGNA • FELLANLEGT SKILRÚM• SPARNEYTINN • CITROËN NEMO VAN 6 HURÐA VERÐ FRÁ: 1.984.063 KR. ÁN VSK VERÐ FRÁ: 2.490.000 KR. MEÐ VSK HAGKVÆMASTI KOSTURINN SVIPMYND Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.