Fréttablaðið - 27.08.2014, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 27. ágúst 2014 | FRÉTTIR LEKAMÁLIÐ | 11
Í bréfi Tryggva Gunnarssonar,
umboðsmanns Alþingis, til Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur vísar hann
í samtal sem hann átti við Stefán
Eiríksson, lögreglustjóra á höfuð-
borgarsvæðinu. Í umfjöllun sinni
vísar Tryggvi oft í lögreglustjór-
ann sem L......................
„Ég tel ástæðu til að minna á að
það er ekki síst hlutverk eftir-
litsaðila eins og umboðsmanns
Alþingis að gæta að því að
traust og trúnaður ríki um mál-
efni stjórnsýslunnar og í sam-
skiptum innan hennar og við
borgarana.“.....................
„Þar greindi lögreglustjórinn frá
því að hann hefði, auk þess að
gera ríkissaksóknara grein fyrir
umræddum samskiptum við
yður í tilefni af þessari tilteknu
lögreglurannsókn, einnig greint
þeim aðstoðarlögreglustjóra
við embætti hans sem fór með
stjórn rannsóknarinnar frá sím-
tölum við yður og fundum þar
sem rætt hefði verið um málið.“.....................
„L tók fram að það hefði ítrekað
komið fram í samtölum hans við
yður að allt sem þér sögðuð við
hann og rædduð væri í fyllsta
trúnaði og hann héldi þann
trúnað. Aftur á móti liti hann
svo á að með hliðsjón af lögum
um umboðsmann Alþingis gæti
hann ekki annað en svarað
öllum spurningum mínum um
málið og annað sem því tengd-
ist.“.....................
„Í máli L kom fram að í sam-
tölum hans við yður og aðstoðar-
manninn, bæði í síma og síðan
á fundi eða fundum í ráðuneyt-
inu í janúar sl., hefði komið fram
að þér væruð mjög ósáttar og
gerðar hefðu verið athugasemd-
ir vegna þess að lögreglan hefði
ekki upplýst yður um að kæra
væri komin fram og gerðar hefðu
verið athugasemdir við þá fram-
göngu yfirlögregluþjónsins að
upplýsa þetta í fjölmiðlum.“.....................
„L segir að það hafi frá hans
bæjardyrum séð sett ýmis mál í
annað samhengi gagnvart ráðu-
neytinu þegar kom að þeim
tímapunkti að embætti hans
hafi verið falin umrædd rann-
sókn af hálfu ríkissaksóknara.
Sjálfur hefði hann hugað að hæfi
sínu til að koma að málinu.“.....................
L: „og ég kom því á framfæri við
ríkissaksóknara að hún hefði
sagt í þessu samtali við mig að
þegar þessu máli yrði lokið þá
væri alveg ljóst í hennar huga
að það þyrfti að rannsaka rann-
sókn lögreglu og ríkissaksókn-
ara.“
STIKLUR ÚR BRÉFI
UMBOÐS MANNS
Nánari upplýsingar á www.rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
gÁrsreiknin askrá RSK
Ársreikningaskrá RSK skorar
á þau félög sem ekki hafa
skilað ársreikningi sínum fyrir
árið 2013 að gera það nú
þegar eða í síðasta lagi fyrir
1. september n.k.
Skil á ársreikningi 2013
Skorað er á stjórnir félaga að senda nú þegar
til ársreikningaskrár RSK, rafrænt eða á pappír,
ársreikning félagsins og samstæðureikning,
ef það á við, fyrir árið 2013. Eigi félag eftir að
skila eldri ársreikningum er skorað á það
að skila þeim líka.
Breytingar á skilaskyldu
Athygli er vakin á því að nú þurfa samlagsfélög
þar sem ábyrgðaraðili er ehf., hf., slhf. eða svf.
að skila inn ársreikningi til ársreikningaskrár til
opinberrar birtingar.
Viðurlög
Félög sem ekki skila ársreikningi kunna
að sæta sektarmeðferð.
Ert þú í skilum?
Unnt er að sjá hvort félag hafi skilað ársreikningi
á heimasíðu ríkisskattstjóra.
Athugaðu hvort þitt félag stendur í skilum og
bættu strax úr ef svo er ekki.
https://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/leit
Mörg fordæmi eru fyrir því að
umboðsmaður Alþingis hefji
frumkvæðisathugun á starfi ráð-
herra eða starfsemi framkvæmd-
arvaldsins.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er það aftur á móti eins-
dæmi að í slíkum aðstæðum vísi
umboðsmaður í annan málslið 12.
greinar laga um umboðsmann
Alþingis.
Þar segir að ef umboðsmaður
Alþingis verði áskynja stórvægi-
legra mistaka eða afbrota stjórn-
valds getur hann gefið Alþingi
eða hlutaðeigandi ráðherra sér-
staka skýrslu um málið.
Í bréfi sem Tryggvi Gunnars-
son sendi innanríkisráðherra í
gær segir hann að á grundvelli
þeirra upplýsinga sem hann hafi
aflað um þetta mál og þeirra
laga og reglna sem kunni að hafa
reynt á vegna samskipta Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur við Stefán
Eiríksson, lögreglustjóra á höf-
uðborgarsvæðinu, meðan emb-
ætti hans fór að beiðni ríkis-
saksóknara með rannsókn máls
sem beindist að meðferð til-
tekinna trúnaðarupplýsinga og
meðal annars hugsanlegum þætti
starfsmanna innanríkisráðuneyt-
isins í málinu, hafi hann ákveðið
að óska eftir frekari skýringum
frá ráðherra.
„Ég vek jafnframt athygli á því
að þessi athugun mín á málinu er
liður í því að ganga úr skugga um
hvort mál þetta sé af því tagi að
tilefni sé til þess að fara þá leið
sem mælt er fyrir um í 2. mgr.
12. gr. laga nr. 85/1997,“ segir
Tryggvi jafnframt.
- jhh
Fordæmalaust bréf umboðsmanns Alþingis til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra:
Ákvæði sem hefur aldrei verið beitt áður
UMBOÐSMAÐUR ALÞINGIS Tryggvi
telur mögulegt að innanríkisráðherra
hafi brotið lög með samskiptum við lög-
reglustjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA