Fréttablaðið - 27.08.2014, Blaðsíða 1
www.visir.is
Sími: 512 5000 |
Miðvikudagur 27. ágúst 2014 | 20. tölublað | 10. árgangur
Burger King fl ytur til KanadaBandaríski skyndibitarisinn Burger King hefur keypt kanadísku kaffihúsakeðjuna Tim Hortons fyrir ellefu milljarða Banda-ríkjadala, jafnvirði 1.285 millj-arða króna.
Kaupin á Tim Hortons gera Burger King að þriðju stærstu skyndibitakeðju í heiminum með 18 þúsund veitingastaði í 100 löndum. Höfuðstöðvar sam-einaðs fyrirtækis verða í Kan-ada en landið er nú stærsti markaður Burger King.
Daglegur rekstur risanna tveggja verður þó aðskil-
inn þar sem Burger King mun áfram reka starf-
semina frá Miami á Flórída en Tim Hortons í borg-
inni Oakville í Ontario.
- hg Erlend velta aldrei meiriGreiðslukortavelta erlendra ferðamanna hér á landi
í júlí var 18,3 milljarðar króna og hefur erlend
kortavelta aldrei verið meiri í einum mánuði. Þetta
segir í úttekt Rannsóknaseturs verslunarinnar á
Bifröst. Erlend kortavelta í sama mánuði í fyrra var
tæplega 15,4 milljarðar og jókst því um nítjá
sent á milli ára
F I N G R A F Ö R I N
O K K A R E R U
A L L S S TA ÐA R !
OYSTER PERPETUAL LADY-DATEJUST PEARLMASTER
SEGIR EKKI KOMA TIL GREINA AÐ LEYSAHS ORKU
ÓDÝRT EN VIRKARGÓÐ HEILSA KYNNIR Swanson: Ultimate 16 Strain Probiotic er frábær blandaaf gerlum sem hjál il ið
MÆLIR MEÐ
„Viðbrögðin hjá við-
skiptavinum okkar
eru mjög jákvæð. Ég
hef sjálfur notað Pro-
biotic 16 og það er eina
Probiotic-blandan þar
sem ég hef fundið mun á
mér eftir notkun,“ segir
Ólafur Stefánsson.
MYND/GVA
KJÚKLINGAHÁTÍÐ
Stærstu kjúklingaframleiðendur landsins koma saman á Kjúklingafestivali við Varmá í Mosfellsbæ á laugardaginn. Kjúklingafestival er hluti af bæjar-hátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, sem verður haldin næstu helgi, dagana 29.-31. ágúst.
Nýtt námskeið
hefst 31. ágúst 0. 17. jan arefst 29 ágúst.
Nýtt ná s i
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara Amerísk
gæðavara
HEIMILISÞRIF
MIÐVIKUDAGUR 2
7. ÁGÚST 2014
Kynningarblað
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Miðvikudagur
12
2 SÉRBLÖÐ
Markaður | Heimilisþrif | Fólk
MARKAÐURINN
FRÉTTIR
Sími: 512 5000
27. ágúst 2014
200. tölublað 14. árgangur
SKOÐUN Guðríður Arnardóttir skrifar
um nauðsyn á auknu fjármagni til allra
skólastiga. 12
LÍFIÐ Kvikmyndahátíðinni RIFF verð-
ur ekki breytt í KIFF við það að flytja
í Kópavog. 30
SPORT Íslenska körfuboltalandsliðið
getur tryggt sig inn á EM fyrir framan
troðfulla Laugardalshöll í kvöld. 26
FLJÓTLEGT OG ÞÆGILEGT
Íbúfen®
400 mg, 30 stk og 400 mg, 50 stk
STUNDVÍSASTA FLUGFÉLAG Á ÍSLANDI
STÓRIÐJA Hagnaður af rekstri
álversins á Grundartanga nam
rúmum 3,2 milljörðum króna árið
2013 og dróst þá saman um tæpt 41
prósent milli ára.
„Við erum stolt af rekstri álvers-
ins og heilt á litið er uppgjörið
ágætt miðað við aðstæður. Við
höfum rekið álverið með hagnaði
síðustu árin og náð miklum árangri
í rekstrinum,“ segir Ragnar Guð-
mundsson, forstjóri Norðuráls.
Ragnar segir stjórnendur fyrir-
tækisins ákveðna í að reisa allt að
360 þúsund tonna álver í Helgu-
vík. Stefnt hefur verið að byggingu
þess frá árinu 2005.
„Ástæðan fyrir því að álverinu
var valinn staður í Helguvík er
að sveitarfélögin á svæðinu buðu
orku frá HS Orku í verkefnið. Það
kemur því ekki til greina að ætla
að leyfa HS að labba frá samningn-
um,“ segir Ragnar. - hg / sjá Markaðinn
Forstjóri Norðuráls segir ekki koma til greina að leysa HS Orku undan samningi:
Afkoma álversins er 41% lakari
FORSTJÓRINN Verkefnið í Helguvík
hefur þegar kostað um 17 milljarða
króna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bolungarvík 12° SA 6
Akureyri 17° S 4
Egilsstaðir 17° SV 4
Kirkjubæjarkl. 12° SA 4
Reykjavík 14° SA 8
Væta V-til fyrrihluta dags en dregur svo
úr. Bjart A- og NA-til. Fremur hæg S-læg
átt N- og A-til en strekkingur með S- og
V-stöndinni. Hiti 10-20 stig. 4
NÁTTÚRA Berggangurinn undir
Vatnajökli hefur að meðaltali
lengst um fjóra kílómetra á dag
frá upphafi jarðhræringanna.
Mörg hundruð skjálftar mælast
dag hvern.
„Þetta er afar stór atburður,“
segir Ágúst Guðmundsson, pró-
fessor við jarðvísindadeild Lund-
únaháskóla, Royal Holloway.
Ágúst telur að jarðskjálfta-
hrinan og framrás bergganganna
í jöklinum sé einn markverðasti
jarðvísindalegi atburður sem
vísindamenn og almenningur á
Íslandi hafa orðið vitni að. Aldrei
áður hafi neitt viðlíka verið
skráð með nútímatækni.
Ágúst bætir við að það mark-
verðasta við stöðu mála í augna-
blikinu sé greinileg framrás
berggangsins í átt til megineld-
stöðvarinnar Öskju/Dyngju-
fjalla.
- shá / sjá síðu 6
Hundruð skjálfta á dag:
Berggangurinn
nálgast Öskju
Þriðjungur bíður 250 börn eru enn
á biðlista eftir plássi á frístunda-
heimili í Hafnarfirði þrátt fyrir að
skólastarf sé hafið. Æskulýðsfulltrúi
segir að erfitt sé að manna stöður
á heimilunum þrátt fyrir ítrekaðar
auglýsingar. 2
Ósamið um flest Ísraelar ætla að
létta eitthvað á einangrun Palestínu-
manna á Gasasvæðinu en enn er
ósamið um flest í deilu þjóðanna. 4
RÁÐHERRA Á TÍMAMÓTUM Forsætisráðherra tók í gær við hluta af skyldum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Ráðherra neitar að
hafa haft óeðlileg afskipti af rannsókn lögreglu á leka á trúnaðargögnum úr ráðuneyti hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNSÝSLA Hanna Birna Krist-
jánsdóttir aftekur með öllu að eini
leikurinn í stöðunni fyrir hana
núna sé að segja af sér embætti
ráðherra.
„Eiginlega á það aldrei að vera
þannig að stjórnmálamaður velti
fyrir sér að segja af sér embætti
ef hann hefur ekki gert neitt rangt.
Og ég hef ekki gert neitt rangt,“
sagði Hanna Birna á Stöð 2 í gær-
kvöldi.
Tryggvi Gunnarsson, umboðs-
maður Alþingis, sendi Hönnu Birnu
bréf í gær þar sem hann tilkynnir
henni að embætti hans mun hefja
frumkvæðisathugun á samskiptum
hennar við Stefán Eiríksson lög-
reglustjóra á höfuðborgarsvæðinu
á meðan rannsókn lögreglunnar á
lekamálinu fór fram. Gísli Freyr
Valdórsson, aðstoðarmaður Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur, hefur verið
ákærður vegna lekans.
Með frumkvæðisathugun sinni
vill Tryggvi Gunnarsson komast
að niðurstöðu um hvort samskipti
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur inn-
anríkisráðherra og Stefáns Eiríks-
sonar, lögreglustjóra á höfuð-
borgarsvæðinu, feli í sér svo
stórvægileg mistök eða afbrot af
hálfu hennar að tilefni sé til þess
að hann geri sérstaka skýrslu sem
send verði Alþingi eða ráðuneyt-
inu sjálfu. Þetta kemur fram í bréfi
Tryggva til Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur í gær.
Í tólftu grein laga um umboðs-
mann Alþingis er kveðið á um
að umboðsmaður geti gert þessa
skýrslu en þessu lagaákvæði hefur
aldrei verið beitt. Í bréfi Tryggva
til Hönnu Birnu greinir hann frá
samtali sínu við Stefán. Í því sam-
tali lýsir Stefán því að Hanna Birna
hafi beitt hann miklum þrýstingi.
Meðal annars hafi Hanna Birna
sagt að þegar málinu væri lokið
væri ljóst í hennar huga að það
þyrfti að rannsaka rannsókn lög-
reglu og ríkissaksóknara.
Hanna Birna sagði að Stefán
hefði aldrei gert athugasemdir
við samskipti þeirra. „Hann sagði
opinberlega að ég hefði aldrei beitt
hann þrýstingi og það hefðu engin
óeðlileg afskipti verið af þessari
rannsókn. Hann sagði það mörg-
um sinnum.“
Stefán vildi ekkert segja þegar
hann var spurður út í málið í gær.
- jhh / sjá síðu 8, 10 og 11
Grunur um stórvægileg
mistök eða afbrot ráðherra
Stefán Eiríksson lögreglustjóri lýsti fyrir umboðsmanni Alþingis ítrekuðum afskiptum Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur innanríkisráðherra af rannsókn á lekamálinu. Hafin er formleg athugun á þessum meintu afskiptum.
Eiginlega á það aldrei
að vera þannig að stjórn-
málamaður velti fyrir sér að
segja af sér embætti ef hann
hefur ekki gert neitt rangt.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra
Verðtryggingardómur í dag
EFTA-dómstóllinn kveður í dag upp
dóm þar sem tekist er á um það hvort
verðtrygging fasteignalána sé lögmæt.
Heildarupphæð verðtryggðra lána á
Íslandi eru 1.500 milljarðar króna.