Fréttablaðið - 27.08.2014, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 27.08.2014, Blaðsíða 17
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 27. ágúst 2014 | 20. tölublað | 10. árgangur Burger King fl ytur til Kanada Bandaríski skyndibitarisinn Burger King hefur keypt kanadísku kaffihúsakeðjuna Tim Hortons fyrir ellefu milljarða Banda- ríkjadala, jafnvirði 1.285 millj- arða króna. Kaupin á Tim Hortons gera Burger King að þriðju stærstu skyndibitakeðju í heiminum með 18 þúsund veitingastaði í 100 löndum. Höfuðstöðvar sam- einaðs fyrirtækis verða í Kan- ada en landið er nú stærsti markaður Burger King. Daglegur rekstur risanna tveggja verður þó aðskil- inn þar sem Burger King mun áfram reka starf- semina frá Miami á Flórída en Tim Hortons í borg- inni Oakville í Ontario. - hg Erlend velta aldrei meiri Greiðslukortavelta erlendra ferðamanna hér á landi í júlí var 18,3 milljarðar króna og hefur erlend kortavelta aldrei verið meiri í einum mánuði. Þetta segir í úttekt Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst. Erlend kortavelta í sama mánuði í fyrra var tæplega 15,4 milljarðar og jókst því um nítján pró- sent á milli ára. Hæstu upphæðina greiddu erlendir ferðamenn í júlí fyrir gistingu. Erlend kortavelta gististaða nam 3,7 milljörðum sem er um sautján prósentum hærri upphæð en í júlí í fyrra. Þá greiddu erlendir ferða- menn með kortum sínum 3,2 milljarða í verslunum í júlí sem er sextán prósentum hærri upphæð en í júlí í fyrra. - bá F I N G R A F Ö R I N O K K A R E R U A L L S S TA ÐA R ! OYSTER PERPETUAL LADY-DATEJUST PEARLMASTER Tryggðu þér besta verðið á Haustráðstefnu Advania Advania heldur sína árlegu haustráðstefnu í tuugasta sinn í Hörpu föstudaginn 12. september. Kynntu þér glæsilega dagskrá og skráðu þig á advania.is/haustradstefna Ef þú skráir þig fyrir 1. september IGS segir upp 40 manns IGS Ground Services, dótturfélag Icelandair Group, hefur sagt upp um 20 manns sem vinna við veitingarekstur í Leifsstöð. Þeim sem eftir eru, eða um 20 til viðbótar, verður sagt upp síðar. Gunnar S. Olsen, framkvæmdastjóri IGS, segir ástæðu uppsagnanna þá að IGS mun ekki halda áfram að starfrækja veitinga- og verslanarekst- ur í flugstöðinni. „Niðurstaðan hjá Isavia var sú að leita samninga við annan aðila,“ segir Gunnar. Hann vonast til þess að þeir sem taki við horfi til þeirra sem sagt hefur verið upp. „Þetta er gott fólk með mikla reynslu og þekkingu á veitingahúsa- rekstri.“ - fbj SEGIR EKKI KOMA TIL GREINA AÐ LEYSA HS ORKU UNDAN SAMNINGNUM ➜ Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir stjórnendur fyrirtækisins ákveðna í að reisa allt að 360 þúsund tonna álver í Helguvík. ➜ Hann segir það ekki koma til greina að leysa HS Orku undan samningi frá árinu 2007 um orkusölu til álversins. ➜ Rekstur álversins á Grundartanga skilaði 3,2 milljarða króna hagnaði árið 2013 og dróst þá saman um tæpt 41% milli ára. SÍÐA 4

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.