Fréttablaðið - 27.08.2014, Blaðsíða 42
27. ágúst 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26
FH - FYLKIR 1-3
0-1 Anna Björg Björnsdóttir (9.), 0-2 Anna Björg
Björnsdóttir (28.), 1-2 Erna Guðrún Magnúsdótt-
ir (43.), 1-3 Anna Björg Björnsdóttir (90.+3).
ÍBV - AFTURELDING 8-0
1-0 Kristín Erna Sigurlásdóttir (7.), 2-0 Þórhildur
Ólafsdóttir (20.), 3-0 Vesna Elísa Smiljkovic
(39.), 4-0 Bryndís Hrönn Kristinsdóttir (42.), 5-0
Sjálfsmark (47.), 6-0 Vesna Elísa Smiljkovic (64.),
7-0 Díana Dögg Magnúsdóttir (84.), 8-0 Díana
Dögg Magnúsdóttir (89.).
SELFOSS - BREIÐABLIK 1-2
0-1 Fanndís Friðriksdóttir (19.), 0-2 Telma
Hjaltalín Þrastardóttir (46.), 1-2 Eva Lind Elías-
dóttir (90.).
VALUR - STJARNAN 0-0
Stjörnukonur voru búnar að vinn tólf deildar-
leiki í röð fyrir leikinn á Hlíðarenda í gærkvöldi.
ÞÓR/KA - ÍA 1-0
1-0 Anna Rakel Pétursdóttir (61.). Skoraði sigur-
markið í sínum fyrsta leik í byrjunarliði en hún
er aðeins sextán ára gömul.
STAÐAN Í DEILDINNI:
Stjarnan 14 12 1 1 48-8 37
Breiðablik 14 10 1 3 40-11 31
Þór/KA 14 8 3 3 18-16 27
Fylkir 14 8 2 4 16-13 26
Selfoss 14 7 2 5 29-21 23
Valur 14 6 4 4 25-19 22
ÍBV 14 6 0 8 31-24 18
FH 14 2 3 9 12-49 9
Afturelding 14 2 1 11 9-41 7
ÍA 14 0 1 13 8-34 10
MARKAHÆSTAR
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni 23
Shaneka Jodian Gordon, ÍBV 8
Aldís Kara Lúðvíksdóttir, Breiðabliki 8
Fanndís Friðriksdóttir, Breiðabliki 8
Guðmunda Brynja Óladóttir, Selfossi 8
Telma Hjaltalín Þrastardóttir, Breiðabliki 8
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
getur ekki aðeins hjálpað íslenska
körfuboltalandsliðinu inn á EM í
fyrsta sinn í Laugardalshöllinni í
kvöld því hann getur einnig bætt
stigamet Guðmundar Bragasonar
í leiknum á móti Bosníu.
Jón Arnór verður stigahæsti
leikmaður Íslands frá
upphafi í leikjum
í Evrópukeppni
takist honum
að skora sjö
stig eða fleiri
í le i k nu m .
Guðmundur
Bragason skor-
aði 576 stig í 45
Evrópuleikjum
á sínum tíma en
Jón Arnór er kom-
inn með 569 stig
eftir 23 stiga leikinn
sinn á móti Bretum í síðustu viku.
Guðmundur skoraði 13,1 stig að
meðaltali í sínum leikjum en Jón
Arnór er með 14,6 stig að meðaltali
í 39 Evrópuleikjum sínum.
Jón Arnór náði einnig söguleg-
um áfanga þegar hann sneri til
baka á móti Bretum í London en
hann varð þá fyrstur íslenskra
körfuboltamanna til að skora 20
stig eða meira í tíu Evrópuleikj-
um. - óój
Vantar sjö stig í metið
Jón Arnór Stefánsson getur bætt íslenska stigametið
í Evrópukeppni á móti Bosníumönnum í kvöld.
HÉLDU HREINU Mist Edvardsdóttir og
félagar í Val stöðvuðu 15 leikja sigur-
göngu Stjörnunnar í deild og bikar.
FRÉTTABLAÐIÐANDRI MARIN
PEPSI KVENNA 2014
FLEST STIG FYRIR ÍSLAND Í EM:
Guðmundur Bragason 576 (13,1 í leik)
Jón Arnór Stefánsson 569 (14,6)
Herbert Arnarson 500 (10,6)
Teitur Örlygsson 461 (12,8)
Logi Gunnarsson 437 (9,7)
Valur Ingimundarson 360 (11,2)
Helgi Jónas Guðfinnsson 345 (11,5)
Jakob Örn Sigurðarson 320 (11,0)
HERRA HEIMAEY
GLENN Á
HEIMAEY:
13 leikir - 12 mörk
(9 mörk í 9 leikjum
í Pepsi-deild)
995 mínútur spil-
aðar.
Mark á 76,5 mín
fresti.
GLENN UPP Á
LANDI:
9 leikir - 1 mark
(1 mark í 8 leikjum
í Pepsi-deild)
801 mínúta spil-
aðar.
FÓTBOLTI Jonathan Glenn, Trínidadinn í liði ÍBV, heldur áfram að fara á
kostum í Pepsi-deild karla í fótbolta, en hann skoraði bæði mörk liðsins í
2-0 sigri á Þór á sunnudagskvöldið og er leikmaður 17. umferðar hjá Frétta-
blaðinu. „Það er auðvitað alltaf gott að vinna. Þetta var ekki fallegur sigur, en
við fögnum þremur stigum og vonandi heldur þetta áfram,“ sagði Glenn þegar
blaðamaður náði loks tali af honum í gegnum þriðja aðila. Glenn er nefnilega
eins og Magnús og Eyjólfur í skaupinu 1985; ekki með neinn síma.
Glenn er búinn að skora tíu mörk í Pepsi-deildinni og er sá fyrsti sem skorar
tug marka fyrir 1. september í þrjú ár. „Þetta byrjaði erfiðlega, en strákarnir
í liðinu hafa hjálpað mér mikið að aðlagast. Gengi liðsins hefur verið upp og
niður, en mér hefur gengið í heildina mjög vel og fyrir það er ég þakklátur.“
Níu af tíu mörkum Glenns skoraði hann á Hásteinsvelli, en í heildina hefur
hann skorað tólf af þrettán mörkum sínum í deild og bikar á heimavelli.
Honum líður svo sannarlega best heima á Heimaey. „Mér var bent á þetta
nýlega, en sjálfur áttaði ég mig ekki á þessu. Ég vil skora alls staðar þannig að
þetta er bara tilviljun,“ sagði Glenn. Ítarlegra viðtal má finna á Vísi. - tom
Heima(ey) er langbest hjá Glenn
FÓTBOLTI Manchester United sló félagsmetið í Bretlandi í
gær þegar félagið keypti Argentínumanninn Ángel Di María
frá Real Madrid fyrir 59,7 milljónir punda, eða ellefu og
hálfan milljarða íslenskra króna.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Manchester
United kaupir í sumar, en félagið er alls búið að eyða
131,1 milljónum punda (25,5 milljörðum króna) í
fjóra leikmenn; Luke Shaw, Ander Herrera, Marcos
Rojo og Di María.
Argentínumaðurinn er langdýrastur í sögu breska
fótboltans, eða tæpum tíu milljón pundum dýrari
en Fernando Torres sem var keyptur frá Liverpool
til Chelsea fyrir 50 milljónir punda. Þá er hann
sjötti dýrasti leikmaður sögunnar á eftir Garet Bale,
Cristiano Ronaldo, Neymar, Luis Suárez og James
Rodríguez.
Sjötti dýrastur í sögunni
➜
KÖRFUBOLTI Mikilvægi kvöldsins
fyrir íslenskan körfubolta verður
seint metið til fulls. Íslenska karla-
landsliðið á þá möguleika á því
að tryggja sér farseðil á stórmót
í fyrsta sinn í sögunni og það er
þegar orðið ljóst að kvöldið verð-
ur sögulegt enda Höllin troðfull í
fyrsta sinn á körfuboltalandsleik.
„Ég var eiginlega búinn að
búast við því. Ég er búinn að finna
fyrir miklum stuðningi og mikl-
um áhuga í kringum liðið síðan
við komum heim frá London. Það
kemur því ekki á óvart að fólk ætli
að svara kallinu og mæta hingað
á morgun til að upplifa spennandi
leik og mikla stemningu,“ segir
Jón Arnór Stefánsson en hverju
breytir full höll fyrir íslenska
liðið?
Meiri læti og miklu meira undir
„Það verða aðeins meiri læti og
miklu meira undir. Það verður allt
annað spennustig en maður er í
þessu til þess að spila þessa stóru
leiki,“ segir Jón Arnór og liðið
verður að halda sig á jörðinni.
„Við þurfum að einbeita okkur
að leikplaninu og halda okkur á
jörðinni. Við þurfum að hugsa
um leikinn og reyna að gera sem
best í honum til að ná sem best-
um úrslitum. Við þurfum að hafa
fókusinn á því en allt hitt er síðan
bara bónus,“ segir Jón Arnór um
möguleikann á að rétt úrslit komi
liðinu á EM.
Fréttir bárust frá Bosníu að
NBA-leikmaðurinn Mirza Telet-
ovic komi ekki til Íslands. „Það
kallar bara á extra einbeitingu.
Við þurfum að vera enn meira á
tánum því þeir eru bara hættu-
legri fyrir vikið ef hann er ekki
með. Það vill oft gerast að þegar
svona lykilmenn detta út þá stíga
menn upp og það verður til allt
öðru vísi „fílingur“ í liðinu. Menn
spila kannski aðeins betur,“ segir
Jón Arnór en það munaði minnstu
að fyrirliðinn Hlynur Bæringsson
gæti ekki spilað í kvöld.
„Okkar Teletovic er tæpur í
ökklanum en hann ætlar að taka
slaginn með okkur. Hann er nátt-
úrulega rosalega mikilvægur fyrir
okkur og eiginlega eini leikmað-
urinn sem við megum ekki missa.
Við getum eiginlega ekki fyllt hans
skarð því það getur enginn. Það
skiptir engu máli þótt ég sé ekki
með eða einhver annar. Hans staða
er sú mikilvægasta á vellinum og
hann er okkar mikilvægasti leik-
maður,“ segir Jón Arnór um Hlyn.
En hver er staðan á Hlyni?
Vonar að adrenalínið gleypi
sársaukann
„Ökklinn er ekki alveg eins góður
og ég var að vonast til. Við höfum
enn einn sólarhring og ég vona að
hann batni aðeins meira,“ sagði
Hlynur Bæringsson á æfingu
liðsins í gær. „Ég gat skokkað
á æfingu í gær en gat ekki tekið
neina hliðarhreyfingar eða körfu-
boltahreyfingar. Það var allt í lagi
en svolítill sársauki enn þá frá
honum. Ég vonast til þess að adr-
enalínið gleypi þetta og að þá verði
þetta allt í góðu,“ segir Hlynur og
hann treystir hinum strákunum
í liðinu til að hjálpa enn meira í
þessum leik.
„Ég myndi sleppa leiknum ef
ég væri að gera einhvern skaða.
Ef ég væri mínus inni á vellinum
þá myndi ég frekar sleppa því að
spila. Ég held að ég geti gert eitt-
hvað gagn. Ef svo fer að ég spila
lítið þá er eins dauði annað brauð.
Þá tekur bara einhver annar við.
Við sýndum breiddina í Bosníu þar
sem bekkurinn spilaði meira. Þá
spiluðu þessir strákar vel og það
gæti verið svolítið stórt á morg-
un. Það er svolítið annað að koma
inn í svona leik eftir að hafa átt að
minnsta kosti eitt gott móment í
Bosníuleiknum í stað þess að hafa
ekkert komið inn á. Ég hef fulla
trú á því að þeir komi sterkir inn
ef þess þarf,“ segir Hlynur.
Frábær sigur á Bretum úti í
London kom íslenska liðinu í frá-
bæra stöðu fyrir lokaleikinn og
svo gæti farið að liðið megi tapa
í kvöld. Það eina sem er öruggt er
að liðið tryggir sig endanlega inn
á EM með sigri. Tapist leikurinn
taka við alls kyns útreikningar.
Enn sætara að klára þetta sjálfir
„Við erum því miður ekki örygg-
ir áfram en erum mjög nálægt
þessu. Við ætlum ekki að þurfa að
treysta á Letta eða Hollendinga
eða hverja sem við þurfum til því
við ætlum að reyna að gera þetta
sjálfir. Það væri líka enn þá sæt-
ara að komast þannig á EM,“ segir
Hlynur Bæringsson. ooj@frettabladid.is
Okkar Teletovic tekur slaginn
Íslenska körfuboltalandsliðið spilar í fyrsta sinn fyrir fullri Laugardalshöll í kvöld og í boði er sæti á EM. „Við
erum því miður ekki öryggir áfram en erum mjög nálægt þessu,“ segir Hlynur Bæringsson sem ætlar að
spila þrátt fyrir ökklameiðsli. „Hann er eini leikmaðurinn sem við megum ekki missa,“ segir Jón Arnór.
SPILAR Í GEGNUM SÁRSAUKANN Hlynur
Bæringsson, fyrirliði íslenska körufboltalands-
liðsins ætlar að vera með í kvöld þegar liðið
mætir Bosníumönnum fyrir framan troðfulla
Laugardalshöll. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
SPORT