Fréttablaðið - 27.08.2014, Blaðsíða 24
KYNNING − AUGLÝSINGHeimilsþrif MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 20142
Nauðsynlegt er að þrífa salerni og bað-herbergi reglulega.■ Hellið ediki í salernisskálina og látið
liggja yfir nótt. Burstið vel og sturtið niður.
■ Hellið hálfum bolla af matarsóda og hálf-
um bolla af ediki í niðurföll til að hreinsa
burt fitu, olíu- og hárstíflur. Látið standa á
meðan freyðir í nokkrar mínútur og skolið
svo vel með sjóðheitu vatni.
■ Til að hindra myglumyndun er mikilvægt
að auka loftstreymi og ljós í baðherberg-
inu. Opnið glugga eða kveikið á viftum/
loftræstingu á meðan baðast er og í minnst
hálftíma á eftir.
■ Þerrið baðkar, sturtubotn og blöndunar-
tæki með þurru frotte-handklæði eftir
baðferðir til að koma í veg fyrir að sápusk-
án og útfellingar steinefna festist
á hreinlætistækjum.
■ Setjið stur tuheng ið
reglulega í þvottavél
og þvoið gömul hand-
klæði með sem nudda
óhreinindin úr.
■ Dragið sturtuhengi fyrir
eftir baðferðir svo vatn
setjist ekki í fellingar þess.
■ Fjarlægið vatn af veggjum
með þvöru eftir hvert bað.
■ Fúga á milli flísa er gljúp
og drekkur í sig olíu úr
hárvörum og sápum.
Það getur leitt til myglu
sem dreifir sér áfram um
flísarnar. Hreinsið myglu með einum hluta
klórs á móti tíu hlutum vatns og skrúbb-
ið með mjúkum bursta. Þvoið með heitu
sápuvatni til að fjarlægja klórinn sem eftir
situr.
■ Leggið baðleikföng í ediksblöndu í tíu mín-
útur til að fjarlægja bakteríur og myglu
sem ellegar sest inn í þau. Nuddið vel með
svampi, skolið og þurrkið.
■ Skiptið um handklæði á þriggja daga fresti.
■ Handlaugin er skítugasti f lötur baðher-
bergisins, full af sýklum og bakteríum, og
óhreinni en klósettið. Burstið hana með
ediki eða matarsóda og skolið vel á eftir.
Gott er að nota einnota, sótthreinsandi
klúta til að strjúka af blöndunartækjum og
yfirborðsflötum því tuskur færa bakteríur
frá einum stað til annars. Notið tannþráð til
að hreinsa burt óhreinindi sem
safnast fyrir á milli blöndunar-
tækja og vasks.
■ Hreinsið klósettburstann
reglulega með klórblöndu.
■ Lokið klósettinu án undan-
tekninga þegar sturtað er niður.
Ellegar spreyjast vatnsagnir um
nærliggjandi svæði og sýklar eins
og E-coli og salmonella berast út
í andrúmsloftið og á nærliggj-
andi fleti. Af sömu ástæðu ætti
alltaf að geyma tannbursta og
augnlinsur í lokuðum baðskáp
og hafa handklæði til daglegrar
notkunar fjarri salernisskálinni sjálfri.
Skínandi hreint baðherbergi
Skítug baðherbergi eru ókræsileg til daglegrar notkunar en marga hryllir við því að þrífa klósett og önnur hreinlætistæki
heimilisins. Notið eftirfarandi ræstingarráð til að halda baðherberginu sýklalausu og ilmandi hreinu.
Það er kannski ekkert gaman að skrúbba klósettskálina en það er sannarlega góð tilfinning eftir á.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmaður auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, jonatan@365.is, s. 512 5446
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Ýmsir hlutir sem fólk notar í daglegu lífu eru óhreinni en það gerir
sér grein fyrir og í raun gróðrarstía fyrir bakteríur og sýkla. Marg-
ir þessara hluta eru í mikilli notkun og stöðugt á milli handanna á
fólki. Í sumum tilfellum er bakteríu- og sýklafjöldinn jafnvel meiri
en finna má á salernum heimila. Lausnin við þessu er í f lestum til-
fellum sótthreinsun og að sjálfsögðu handþvottur sem er besta
leiðin til að koma í veg fyrir að smitast af alls kyns pestum.
■ Fjarstýringar. Þessir nauðsynlegu hlutir verða yfirleitt útund-
an í hefðbundinni tiltekt þrátt fyrir að flestir heimil-
ismeðlimir handfjatli þær daglega. Þegar fólk veik-
ist eykst notkun þeirra yfirleitt því þá er legið fyrir
framan sjónvarpið og horft og því enn fleiri bakterí-
ur sem setjast á fjarstýringarnar.
■ Farsímar. Farsímanotkun hefur aukist gríðarlega
á undanförnum árum og fólk notar símana sína
miklu meira en bara til að tala í þá. Oft ganga þeir
líka á milli fólks þegar til dæmis skemmtilegar myndir
eru til sýnis. Þessi tæki eru því í f lestum tilfellum yfirfull
af sýklum og hafa rannsóknir sýnt fram á að það geti
jafnvel verið fimm hundruð sinnum fleiri
sýklar á farsímum en finnast á dæmi-
gerðri klósettsetu.
■ Tannbursti. Flestir setja þá upp í
munninn á sér að minnsta kosti
tvisvar á dag en hugsa aldrei út í
alla þá sýkla sem leynast í þeim og
lifa þar góðu lífi. Ekki er nóg með
að sýklarnir úr munninum hafist
við í tannburstunum heldur kom
það fram í rannsókn sem Charl-
es P. Gerba gerði á áttunda ára-
tugnum við Háskólann í Ari-
zona að bakteríublandað vatn
úr klósettinu kemst út í and-
rúmsloftið þegar sturt-
að er niður og sýklarnir
geta flotið um loftið í allt
að tvo tíma áður en þeir
lenda – á tannburstun-
um. Gott ráð er því að
skipta tannburstum
reglulega út og hafa
setuna niðri þegar
sturtað er.
Hvar eru mestu sýklarnir?