Fréttablaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 6
28. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
NOTAÐIR BÍLAR
Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík
Sími 590 2160 · www.notadir.is
Suzuki Grand Vitara
Árgerð 2012, ekinn 31 þús. km., bensín,
beinskiptur 4x4.
Verð: 4.090.000 kr.
Honda CRV
Árgerð 2012, ekinn 48 þús. km., bensín,
sjálfskiptur 4x4.
Verð: 4.690.000 kr.
Nýlegir
bílar
á betra
verði
Bílaleigubílarnir komnir í sölu
Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-164x4 4x4
Margir af helstu trúnaðarmönn-
um úr innra starfi Sjálfstæðis-
flokksins lýsa stuðningi við Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur innanríkis-
ráðherra. Forystu flokksins skipa,
auk formanns og varaformanns,
fjórir formenn landssambanda.
Halldór Blöndal, fyrrverandi sam-
gönguráðherra og þingmaður til
margra ára, er formaður Samtaka
eldri sjálfstæðismanna. Hann seg-
ist styðja afstöðu Bjarna Benedikts-
sonar, formanns flokksins, til máls-
ins og telur að Bjarni hafi staðið sig
vel. Bjarni hefur lýst trausti í garð
Hönnu Birnu „Og ég geng út frá því
að Hanna Birna skýri satt og rétt
frá,“ segir Halldór Blöndal.
Magnús Júlíusson, formaður Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna,
segir málið erfitt. „Það er ekki enn
komin endanleg niðurstaða. Mér
finnst eðlilegt að hún svari þessu
bréfi frá umboðsmanni og eftir það
er hægt að taka stöðuna.,“ segir
Magnús. Hún hafi ítrekað lýst yfir
sakleysi sínu og það sé ekki annað
hægt en að trúa því.
Af ellefu formönnum fulltrúaráða
Sjálfstæðisflokksins sem Frétta-
blaðið náði sambandi við vildu sex
þeirra ekki tjá sig. Guðjón Hjör-
leifsson, formaður fulltrúaráðsins
í Vestmannaeyjum og fyrrverandi
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
telur eðlilegt að bíða niðurstöðu í
athugun umboðsmanns Alþingis.
Hann bendir á að Elliði Vignisson
bæjarstjóri hafi tjáð sig um mál
Hönnu Birnu að undanförnu. Elliði
hefur í tveimur pistlum sem hafa
birst á vefsvæði hans lýst eindregn-
um stuðningi við varaformanninn.
Aðrir formenn fulltrúaráða sem
svöruðu Fréttablaðinu lýstu yfir
stuðningi og töluðu sumir um að
hún hefði mátt þola miklar árásir
að undanförnu. - jhh
Margir af helstu trúnaðarmönnum innan Sjálfstæðisflokksins segjast styðja Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, varaformann flokksins:
Varaformaðurinn nýtur stuðnings trúnaðarmanna
HALLDÓR
BLÖNDAL
MAGNÚS
JÚLÍUSSON
GUÐJÓN
HJÖRLEIFSSON
HANNA B. KRIST-
JÁNSDÓTTIR
STJÓRNSÝSLA Hanna Birna Krist-
jánsdóttir innanríkisráðherra
gagnrýndi vinnubrögð Tryggva
Gunnarssonar, umboðsmanns
Alþingis, harðlega í yfirlýsingu
sem hún sendi fjölmiðlum í gær.
Tilefnið var bréf umboðsmanns
til hennar vegna rannsóknar á
lekamálinu svokallaða, en hann
hefur ákveðið að taka samskipti
ráðherra og Stefáns Eiríksson-
ar, fyrrverandi lögreglustjóra á
höfuð borgarsvæðinu, til form-
legrar athugunar.
Birting bréfsins sama dag og
það var sent ráðherra og máls-
hraðinn hjá umboðsmanni hafa
verið umdeild en lögfræðingar
sem Fréttablaðið ráðfærði sig
við segja engar reglur hafa verið
brotnar af umboðsmanni.
En hvað er embætti umboðs-
manns og hvers vegna tekur
umboðsmaður Alþingis það upp
hjá sjálfum sér að rannsaka
málið?
Hefur eftirlit með stjórnsýslu
Umboðsmaður Alþingis er kos-
inn beint af þinginu til fjögurra
ára í senn. Samkvæmt núgildandi
lögum um embættið skal það hafa
eftirlit með stjórnsýslu ríkis og
sveitarfélaga. Það eru því eink-
um athafnir stjórnvalda sem falla
undir starfssvið umboðsmanns
en hann fjallar ekki aðeins um
ákvarðanir og úrlausnir þeirra
heldur einnig málsmeðferð þeirra
og framkomu starfsmanna.
Til umboðsmanns getur hver
sá kvartað sem telur stjórnvald
hafa beitt sig rangindum en auk
þess að taka við kvörtunum getur
umboðsmaður tekið mál til athug-
unar að eigin frumkvæði. Þannig
getur hann fjallað um hvers konar
háttsemi stjórnvalda sem honum
þykir rannsóknarverð. Málið sem
nú er til rannsóknar á samskipt-
um ráðherra og lögreglustjóra er
slíkt mál.
Á síðasta ári stofnaði umboðs-
maður aðeins til einnar frum-
kvæðisathugunar. Árið 2012 voru
þær tvær en árið 2011 voru þær
hins vegar níu talsins og fleiri
árin áður. Skýringuna má rekja til
fjölgunar á kvörtunum sem bár-
ust embættinu frá og með árinu
2011 en samkvæmt ársskýrslu
þess árs fjölgaði þeim um 40 pró-
sent. Þó hefur starfsmannafjöldi
embættisins haldist sá sami. Því
hefur minni tími gefist til að taka
upp mál að eigin frumkvæði og
almennur afgreiðslutími mála
hefur lengst.
Gagnrýna vinnubrögð
Bæði Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra og Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráð-
herra tóku undir gagnrýni Hönnu
Birnu í gær og átöldu að hún
hefði ekki fengið tækifæri til að
svara bréfi umboðsmanns til að
koma að andmælum áður en bréf-
ið var gert opinbert, sem og að
það hafi verið gert á meðan málið
er enn til meðferðar. Í kvöld-
fréttum Stöðvar tvö í fyrradag
sagði Birgitta Jónsdóttir, kaft-
einn Pírata, að nú myndu hefjast
árásir til að grafa undan trúverð-
ugleika embættis umboðsmanns
Alþingis.
Þeir lögfræðingar sem Frétta-
blaðið hefur haft samband við
vegna málsins segja að ljóst sé
að umboðsmaður hafi ekki brot-
ið nein lög eða reglur með því að
birta bréfið samdægurs.
Í fyrra hóf embættið að birta
bréf vegna frumkvæðisathugana
samdægurs á vef umboðsmanns,
annars vegar vegna athugunar á
málefnum Landspítalans og hins
vegar Litla-Hrauns. Hins vegar
töldu sumir lögfræðinganna það
ekki vandaða stjórnsýsluhætti að
birta slíkt samdægurs, eðlilegra
væri að senda málsaðilum bréfin
fyrst áður en þau væru birt opin-
berlega.
Hröð afgreiðsla málsins
Málið hefur fengið hraða
afgreiðslu hjá umboðsmanni, sem
oft hefur verið gagnrýndur fyrir
hæga afgreiðslu. Eftir því sem
Fréttablaðið kemst næst telur
embættið að málið sé þannig
vaxið að nauðsynlegt sé að hraða
afgreiðslu þess eins og kostur er.
Eðli mála hafi mikið um það að
segja hversu mikið þeim er hrað-
að og hvorki þingið, ráðuneytið
né ráðherrann geti unað því að
afgreiðsla þess dragist á langinn.
fanney@frettabladid.is
Umboðsmaður ekki brotið reglur
Innanríkisráðherra gagnrýndi umboðsmann Alþingis harðlega vegna birtingu á bréfi áður en hægt var að koma að andmælum. Sérfræð-
ingar segja umboðsmann ekki hafa brotið reglur en birtingin sé ekki vandaðir stjórnsýsluhættir. Fréttablaðið skoðar embættið ítarlega.
HÖRÐ GAGN-
RÝNI Innan-
ríkisráðherra
segir vinnubrögð
umboðsmanns í
lekamálinu hafa
það að markmiði
að sanna sekt.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Svíar urðu fyrstir þjóða til að setja á stofn embætti
umboðsmanns en ákvæði um það hafa verið í sænsku
stjórnarskránni frá árinu 1809.
Á Íslandi komu fyrst fram hugmyndir að stofnun slíks
embættis á Alþingi árið 1963 en það var ekki fyrr en 1.
janúar 1988 að fyrstu lögin um umboðsmann Alþingis
tóku gildi.
Aðeins tveir menn hafa verið kosnir í embættið frá
stofnun þess, Gaukur Jörundsson, sem gegndi því frá árinu
1988 til 1998 þegar hann forfallaðist og Tryggvi Gunnarsson núverandi
umboðsmaður var fenginn til að leysa hann af. Tryggvi var síðan kjörinn
umboðsmaður Alþingis frá 1. janúar 2000 og hefur gegnt því síðan utan
hlés þegar hann sat í rannsóknarnefnd Alþingis.
Álit og niðurstöður umboðsmanns Alþingis eru ekki bindandi fyrir
stjórnvöld en sæti athafnir stjórnvalds aðfinnslum eða gagnrýni umboðs-
manns getur hann beint til þess tilmælum um úrbætur. Þá getur um-
boðsmaður meðal annars látið í ljós álit sitt á því hvort tiltekin athöfn sé
í samræmi við lög eða vandaða stjórnsýsluhætti.
Embætti umboðsmanns Alþingis