Fréttablaðið - 28.08.2014, Page 6

Fréttablaðið - 28.08.2014, Page 6
28. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík Sími 590 2160 · www.notadir.is Suzuki Grand Vitara Árgerð 2012, ekinn 31 þús. km., bensín, beinskiptur 4x4. Verð: 4.090.000 kr. Honda CRV Árgerð 2012, ekinn 48 þús. km., bensín, sjálfskiptur 4x4. Verð: 4.690.000 kr. Nýlegir bílar á betra verði Bílaleigubílarnir komnir í sölu Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-164x4 4x4 Margir af helstu trúnaðarmönn- um úr innra starfi Sjálfstæðis- flokksins lýsa stuðningi við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkis- ráðherra. Forystu flokksins skipa, auk formanns og varaformanns, fjórir formenn landssambanda. Halldór Blöndal, fyrrverandi sam- gönguráðherra og þingmaður til margra ára, er formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna. Hann seg- ist styðja afstöðu Bjarna Benedikts- sonar, formanns flokksins, til máls- ins og telur að Bjarni hafi staðið sig vel. Bjarni hefur lýst trausti í garð Hönnu Birnu „Og ég geng út frá því að Hanna Birna skýri satt og rétt frá,“ segir Halldór Blöndal. Magnús Júlíusson, formaður Sam- bands ungra sjálfstæðismanna, segir málið erfitt. „Það er ekki enn komin endanleg niðurstaða. Mér finnst eðlilegt að hún svari þessu bréfi frá umboðsmanni og eftir það er hægt að taka stöðuna.,“ segir Magnús. Hún hafi ítrekað lýst yfir sakleysi sínu og það sé ekki annað hægt en að trúa því. Af ellefu formönnum fulltrúaráða Sjálfstæðisflokksins sem Frétta- blaðið náði sambandi við vildu sex þeirra ekki tjá sig. Guðjón Hjör- leifsson, formaður fulltrúaráðsins í Vestmannaeyjum og fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, telur eðlilegt að bíða niðurstöðu í athugun umboðsmanns Alþingis. Hann bendir á að Elliði Vignisson bæjarstjóri hafi tjáð sig um mál Hönnu Birnu að undanförnu. Elliði hefur í tveimur pistlum sem hafa birst á vefsvæði hans lýst eindregn- um stuðningi við varaformanninn. Aðrir formenn fulltrúaráða sem svöruðu Fréttablaðinu lýstu yfir stuðningi og töluðu sumir um að hún hefði mátt þola miklar árásir að undanförnu. - jhh Margir af helstu trúnaðarmönnum innan Sjálfstæðisflokksins segjast styðja Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, varaformann flokksins: Varaformaðurinn nýtur stuðnings trúnaðarmanna HALLDÓR BLÖNDAL MAGNÚS JÚLÍUSSON GUÐJÓN HJÖRLEIFSSON HANNA B. KRIST- JÁNSDÓTTIR STJÓRNSÝSLA Hanna Birna Krist- jánsdóttir innanríkisráðherra gagnrýndi vinnubrögð Tryggva Gunnarssonar, umboðsmanns Alþingis, harðlega í yfirlýsingu sem hún sendi fjölmiðlum í gær. Tilefnið var bréf umboðsmanns til hennar vegna rannsóknar á lekamálinu svokallaða, en hann hefur ákveðið að taka samskipti ráðherra og Stefáns Eiríksson- ar, fyrrverandi lögreglustjóra á höfuð borgarsvæðinu, til form- legrar athugunar. Birting bréfsins sama dag og það var sent ráðherra og máls- hraðinn hjá umboðsmanni hafa verið umdeild en lögfræðingar sem Fréttablaðið ráðfærði sig við segja engar reglur hafa verið brotnar af umboðsmanni. En hvað er embætti umboðs- manns og hvers vegna tekur umboðsmaður Alþingis það upp hjá sjálfum sér að rannsaka málið? Hefur eftirlit með stjórnsýslu Umboðsmaður Alþingis er kos- inn beint af þinginu til fjögurra ára í senn. Samkvæmt núgildandi lögum um embættið skal það hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Það eru því eink- um athafnir stjórnvalda sem falla undir starfssvið umboðsmanns en hann fjallar ekki aðeins um ákvarðanir og úrlausnir þeirra heldur einnig málsmeðferð þeirra og framkomu starfsmanna. Til umboðsmanns getur hver sá kvartað sem telur stjórnvald hafa beitt sig rangindum en auk þess að taka við kvörtunum getur umboðsmaður tekið mál til athug- unar að eigin frumkvæði. Þannig getur hann fjallað um hvers konar háttsemi stjórnvalda sem honum þykir rannsóknarverð. Málið sem nú er til rannsóknar á samskipt- um ráðherra og lögreglustjóra er slíkt mál. Á síðasta ári stofnaði umboðs- maður aðeins til einnar frum- kvæðisathugunar. Árið 2012 voru þær tvær en árið 2011 voru þær hins vegar níu talsins og fleiri árin áður. Skýringuna má rekja til fjölgunar á kvörtunum sem bár- ust embættinu frá og með árinu 2011 en samkvæmt ársskýrslu þess árs fjölgaði þeim um 40 pró- sent. Þó hefur starfsmannafjöldi embættisins haldist sá sami. Því hefur minni tími gefist til að taka upp mál að eigin frumkvæði og almennur afgreiðslutími mála hefur lengst. Gagnrýna vinnubrögð Bæði Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráð- herra tóku undir gagnrýni Hönnu Birnu í gær og átöldu að hún hefði ekki fengið tækifæri til að svara bréfi umboðsmanns til að koma að andmælum áður en bréf- ið var gert opinbert, sem og að það hafi verið gert á meðan málið er enn til meðferðar. Í kvöld- fréttum Stöðvar tvö í fyrradag sagði Birgitta Jónsdóttir, kaft- einn Pírata, að nú myndu hefjast árásir til að grafa undan trúverð- ugleika embættis umboðsmanns Alþingis. Þeir lögfræðingar sem Frétta- blaðið hefur haft samband við vegna málsins segja að ljóst sé að umboðsmaður hafi ekki brot- ið nein lög eða reglur með því að birta bréfið samdægurs. Í fyrra hóf embættið að birta bréf vegna frumkvæðisathugana samdægurs á vef umboðsmanns, annars vegar vegna athugunar á málefnum Landspítalans og hins vegar Litla-Hrauns. Hins vegar töldu sumir lögfræðinganna það ekki vandaða stjórnsýsluhætti að birta slíkt samdægurs, eðlilegra væri að senda málsaðilum bréfin fyrst áður en þau væru birt opin- berlega. Hröð afgreiðsla málsins Málið hefur fengið hraða afgreiðslu hjá umboðsmanni, sem oft hefur verið gagnrýndur fyrir hæga afgreiðslu. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst telur embættið að málið sé þannig vaxið að nauðsynlegt sé að hraða afgreiðslu þess eins og kostur er. Eðli mála hafi mikið um það að segja hversu mikið þeim er hrað- að og hvorki þingið, ráðuneytið né ráðherrann geti unað því að afgreiðsla þess dragist á langinn. fanney@frettabladid.is Umboðsmaður ekki brotið reglur Innanríkisráðherra gagnrýndi umboðsmann Alþingis harðlega vegna birtingu á bréfi áður en hægt var að koma að andmælum. Sérfræð- ingar segja umboðsmann ekki hafa brotið reglur en birtingin sé ekki vandaðir stjórnsýsluhættir. Fréttablaðið skoðar embættið ítarlega. HÖRÐ GAGN- RÝNI Innan- ríkisráðherra segir vinnubrögð umboðsmanns í lekamálinu hafa það að markmiði að sanna sekt. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Svíar urðu fyrstir þjóða til að setja á stofn embætti umboðsmanns en ákvæði um það hafa verið í sænsku stjórnarskránni frá árinu 1809. Á Íslandi komu fyrst fram hugmyndir að stofnun slíks embættis á Alþingi árið 1963 en það var ekki fyrr en 1. janúar 1988 að fyrstu lögin um umboðsmann Alþingis tóku gildi. Aðeins tveir menn hafa verið kosnir í embættið frá stofnun þess, Gaukur Jörundsson, sem gegndi því frá árinu 1988 til 1998 þegar hann forfallaðist og Tryggvi Gunnarsson núverandi umboðsmaður var fenginn til að leysa hann af. Tryggvi var síðan kjörinn umboðsmaður Alþingis frá 1. janúar 2000 og hefur gegnt því síðan utan hlés þegar hann sat í rannsóknarnefnd Alþingis. Álit og niðurstöður umboðsmanns Alþingis eru ekki bindandi fyrir stjórnvöld en sæti athafnir stjórnvalds aðfinnslum eða gagnrýni umboðs- manns getur hann beint til þess tilmælum um úrbætur. Þá getur um- boðsmaður meðal annars látið í ljós álit sitt á því hvort tiltekin athöfn sé í samræmi við lög eða vandaða stjórnsýsluhætti. Embætti umboðsmanns Alþingis

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.