Fréttablaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 42
FÓLK|TÍSKA
● TÍSKA
Settar hafa verið nýjar reglur
fyrir leikara sjónvarpsþáttanna
vinsælu Downton Abbey. Þeir
mega nú ekki klæðast nútíma-
legum undirfatnaði eða vera
með nokkuð nútímalegt undir
höndum sem óvart gæti slæðst
á mynd. Ástæða þessara breyt-
inga er kynningarmynd sem
nýverið var tekin af tveimur
leikaranna fyrir framan arin.
Við fyrstu sýn er ekkert at-
hugavert við myndina en þegar
nánar er að gáð sést glitta í
plastflösku sem einhver hefur
gleymt á arinhillunni.
Viðmælandi Telegraph
greindi frá því að nútímaleg
úr og skartgripir væru einnig
bannaðir. Aðeins hafi verið
gerð undanþága fyrir gleraugu
og astmapúst.
Leikararnir hafa tekið
þessum mistökum með vatns-
flöskuna létt og hafa raunar
nýtt tækifærið til að benda
á það sem betur mætti fara í
heiminum. Þannig birtu þeir
hópmynd af sér á Instagram-
síðu góðgerðarsamtakanna
Water Aid UK. Þar hélt allur
hópurinn á vatnsflöskum líkum
þeirri sem óvart laumaði sér
inn á kynningarmyndina.
NÚTÍMANÆR-
FÖT BÖNNUÐ
Enski bloggarinn Lucy Aitken
Read fékk nóg af því að punga út
stórum fjárhæðum fyrir rándýr
sjampó og ákvað að hætta að þvo
hár sitt upp úr kemískum hársáp-
um fyrir tveimur og hálfu ári. Hún
segir hár sitt aldrei hafa litið betur
út né verið meðfærilegra en nú.
„Fyrst um sinn leit hárið virkilega
illa út en þegar upp er staðið er
hárið milljón sinnum heilbrigðara
og fyllra og vex mun hraðar en
áður,“ segir Lucy sem er tveggja
barna móðir og skilgreinir sig sem
nútíma hippa í útliti.
Lucy viðurkennir að það hafi
verið erfitt að hætta að nota
sjampó.
„Fyrst verður hárið að fá að
fitna eftir áralanga notkun kem-
ískra hársápa sem hindra fram-
leiðslu náttúrulegrar húðfitu og á
meðan er hárið bæði illa lyktandi
og skelfing að sjá. Haldi maður
sig hins vegar við efnið verður
hárið smám saman fyllt, hreint og
fallegt á náttúrulegan hátt.“
Lucy hefur sent frá sér bókina
Happy Hair þar sem hún deilir
náttúrulegum hárhreinsiaðferðum
með þeim sem eru orðnir leiðir
á fokdýrum sjampóum, fullum af
vafasömum efnablöndum.
● Blandið matskeið af matarsóda
saman við svolítið vatn og látið
vera í hársverði í fáeinar mín-
útur. Skolið og hárið verður
tandurhreint.
● Pískið egg í bolla, hellið yfir hárið
og nuddið í hársvörðinn. Skolið
með köldu en ekki heitu vatni.
Egg gera hárið hreint, mjúkt og
glansandi.
● Eplaedik er fyrirtaks hárnæring.
Setjið skvettu ediks á móti vatni í
hárið í fáeinar mínútur og skolið.
● Blanda af sykri og sítrónu gerir
frískandi hársprey.
SKÍTUGT OG FALLEGT HÁR
● TÍSKA
Leikstjórinn Cary Joji Fukunaga
hlaut Emmy-verðlaunin í vik-
unni fyrir leikstjórn þáttanna
True Detective. Hann vakti sér-
staka athygli tískuspekúlanta
og Twitter-notenda sem kikn-
uðu í hnjánum yfir persónu-
leikagleraugum, vel sniðnum
smóking og ekki síst hárinu
sem var fallega fléttað.
Fukunaga er þekktur fyrir að
skrifa og leikstýra myndinni Sin
Nombre (2009) og leikstýra
kvikmyndinni Jane Eyre (2011).
FLOTTUR
MEÐ FLÉTTU
FEGRUNARRÁÐ | BLOGGARI GEFUR ÚT BÓK UM NÁTTÚRULEGAR HÁRHREINSIAÐFERÐIR