Fréttablaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 28
28. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT
Emmett Louis Till var myrtur á þessum degi
árið 1955, aðeins fjórtán ára gamall. Emmett
var þeldökkur á hörund og ættaður frá Chicago
í Illinois. Hann heimsótti ættingja sína í Money
í Mississippi og talaði við hvíta stúlku að nafni
Carolyn Bryant, 21 árs, sem var gift eiganda
lítillar matvöruverslunar.
Nokkrum dögum seinna heimsótti eigin-
maður Carolyn, Roy, og hálfbróðir hans, J. W.
Milam, Emmett. Þeir fóru með hann út í hlöðu
þar sem þeir börðu hann og stungu úr honum
annað augað. Loks skutu þeir hann í höfuðið
og losuðu sig við líkið í Tallahatchie-ánni. Lík
Emmetts fannst þremur dögum síðar.
Móðir hans vildi að líkkistan yrði opin í
jarðarförinni til að sýna alheiminum hve
hrottafengið morðið hefði verið. Tugþúsundir
manna fóru í jarðarförina og mynd af líkinu var
birt í ýmsum miðlum.
Réttarhöld yfir Roy og J.W. fékk talsverða
fjölmiðlaathygli og olli það mikilli hneykslun
alheimsins þegar kviðdómur, sem var bara skip-
aður hvítum einstaklingum, sýknaði bræðurna.
Nokkrum mánuðum síðar játuðu þeir verknað-
inn í viðtali við tímaritið Look og var málið
tekið upp aftur árið 2004. Morðið á Emmett Till
er talið hafa verið mikilvægur hlekkur í upphafi
réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum.
ÞETTA GERÐIST: 28. AGÚST ÁRIÐ 1955
Myrtur fyrir að daðra við hvíta konu
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR
sjúkraliði,
Lundi 92, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn
19. ágúst. Útför hennar fer fram frá
Digraneskirkju föstudaginn 29. ágúst kl. 13. Blóm og kransar
eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélagið.
Steingrímur Steingrímsson
Helga Björg Steingrímsdóttir Þorlákur Ingi Hilmarsson
Hrönn Steingrímsdóttir
Andri, Arnar Gauti, Margrét Inga og Steinar.
Okkar ástkæri faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ARNÓR BENEDIKTSSON
frá Borgartúni í Þingeyjarsveit,
sem lést 21. ágúst, verður jarðsunginn
föstudaginn 29. ágúst kl. 14 frá
Þorgeirskirkju. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Skógarbrekku hjá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.
Indriði Arnórsson Birna Kristjánsdóttir
Þórhallur Arnórsson Jóna Jónsdóttir
afabörn og langafadætur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur,
JÓHANNES HELGASON
flugstjóri,
Asparlundi 3, Garðabæ,
lést sunnudaginn 17. ágúst á
Landakotsspítala. Útför hans fer fram
í dag frá Langholtskirkju kl. 13.00.
Unnur Einarsdóttir
Helgi Jóhannesson Freyja Rut Emilsdóttir
Atli Jóhannesson Halldóra Elín Jóhannsdóttir
Laufey Helga, Emma Katrín, Júlía Marín Helgadætur
og Þórey Atladóttir
Helgi Scheving Jóhannesson Lára Kristinsdóttir
Metta Helgadóttir Jón Árnason
Hildur Kristín Helgadóttir Finnur Leifsson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir mín,
amma og tengdamóðir,
GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR BUCH
Einarsstöðum, Reykjahreppi,
lést miðvikudaginn 20. ágúst. Útförin fer
fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn
30. ágúst kl. 13.00.
Jón Þór Ólason Elín Björg Harðardóttir
Tryggvi Garðar Jónsson
Arna Sif Jónsdóttir
Innilegar þakkir fyrir
auðsýnda samúð við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
STEFÁNS GUNNARSSONAR
Vesturbergi 10, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Vífilsstaðaspítala.
Lillý Erla Guðjónsdóttir og fjölskylda.
Elskulegur eiginmaður,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINN RAFN EIÐSSON
frá Fáskrúðsfirði,
Gullsmára 5, Kópavogi,
lést á Landakoti 22. ágúst. Útför hans fer
fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 29. ágúst
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Karitas hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustu.
Gyða Ingólfsdóttir
Ingólfur Sveinsson Anna Björg Pálsdóttir
Eiður Sveinsson Rut Gunnþórsdóttir
Sveinn Kr. Sveinsson Margrét Káradóttir
Agnar Sveinsson Andrea Sigurðardóttir
Klara Sveinsdóttir Þorlákur Á. Helgason
Skúli Þór Sveinsson Hjördís Lilja Reynisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
URSULA IRENA KARLSDÓTTIR
kennari,
Miðleiti 7, Reykjavík
áður til heimilis að Vallholti 23, Akranesi,
lést 11. júlí og hefur jarðarför farið fram.
Bragi Ingólfsson
Baldur Már Bragason
Helga Bára Bragadóttir
Þórný Pétursdóttir
Atli Mar Baldursson
Ásgeir Bragi Baldursson
Unnar Búi Baldursson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGDÓR SIGURÐSSON
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði,
lést föstudaginn 22. ágúst á hjúkrunar-
heimilinu Sólvangi. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn
29. ágúst kl. 11.00.
Ída Heiður Jónsdóttir
Halldór Sigdórsson Marta Katrín Sigurðardóttir
Ævar Sigdórsson Una Lilja Eiríksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Skólinn var stofnaður 28. ágúst 1989
og þegar fyrirtæki eru með sömu
kennitölu í 25 ár þykja þau svolítið
gömul hér á landi. En tíminn hefur
liðið ótrúlega hratt,“ segir Kara Arn-
grímsdóttir, annar eigandi Dansskóla
Jóns Péturs og Köru. Þegar haft er orð
á að dansinn haldi eigendunum greini-
lega ungum segir hún glaðlega að það
hljóti bara að vera. „Ég segi það allt-
af við mig þegar ég kíki í spegilinn á
morgnana!“
Svo er hún beðin að rekja upphafið.
„Fyrsta Íslandsmeistaramót í sam-
kvæmisdansi var haldið 1986. Við Jón
Pétur ákváðum að taka þátt í því og
byrjuðum þá að dansa saman. Eftir það
vorum við fulltrúar Íslands á Evrópu-
og heimsmeistaramótum og þegar við
vorum búin að taka danskennarapróf
1989 hjá Sigurði Hákonarsyni langaði
okkur að stofna dansskóla og gerðum
það, alveg græn. Ég held við höfum
ekki séð fyrir okkur þá að við yrðum
enn að 25 árum síðar en þetta hefur
gengið vel og maðurinn minn hefur
verið með okkur í rekstrinum.“
Kara segir dansmenninguna hafa
breyst mikið. „Það er að deyja út að
fólk fari út bara til að dansa. Enda eru
ekki einu sinni til hús með sæmilegu
dansgólfi nema í félagsheimilum úti á
landi, þannig að dansinn er mun minni
þáttur í félagslífi almennings en var.“
En hvar fær fólk sem lærir hjá
ykkur útrás fyrir sína kunnáttu á
dansgólfinu? „Aðallega í dansskólan-
um. Fólk kemur í danstíma einu sinni
í viku yfir veturinn og við erum með
einn dansleik á hvorri önn og stundum
opnar æfingar þess á milli.“
Kara segir dansinn alltaf að breyt-
ast. „Með diskóinu fór fólk að dansa
hvert í sínu lagi og nú dansar það
þannig í hringjum og grúppum. En
danshaldið er að víkja. Ég tel það aft-
urför því að dansa saman tvö og tvö
eflir félagsþroska ungs fólks og dregur
úr feimni. Fyrir utan hvað kunnátta í
dansi veitir mikið sjálfsöryggi.“
Telur hún vangadansinn í hættu?
„Nei, ég held nú ekki. En það getur
verið erfiðara að stíga slík skref þegar
fólk er bara að dansa í hring.“
Skólinn er í Valsheimilinu á Hlíðar-
enda. Þar verður opið hús á laugardag-
inn milli 13 og 15. Kara segir boðið upp
á danssýningar og einhverjar veiting-
ar. „Okkur langar að sjá fólk sem var
hjá okkur fyrir 25 árum, þá sem eru
hjá okkur núna og hafa verið í milli-
tíðinni og líka einhverja sem langar að
koma og læra að dansa.“
gun@frettabladid.is
Danshaldið er að víkja
Dansskóli Jóns Péturs og Köru er tuttugu og fi mm ára í dag og fagnar því með opnu húsi
í Valsheimilinu milli eitt og þrjú á laugardag. Þar verður boðið upp á dans og veitingar.
JÓN PÉTUR OG KARA
Þau voru fulltrúar Íslands á
Evrópu- og heimsmeistara-
mótum og hafa dansað
saman og kennt í áratugi.
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/AN
D
RI M
ARIN
Ó
Þegar fyrirtæki eru
með sömu kennitölu í 25 ár
þykja þau svolítið gömul hér
á landi. En tíminn hefur
liðið ótrúlega hratt.
Kara Arngrímsdóttir, annar eigenda
Dansskóla Jóns Péturs og Köru