Fréttablaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 28.08.2014, Blaðsíða 38
KYNNING − AUGLÝSINGRyksugur FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 20144 ÓFRÝNILEG RYKSUGA Ryksugur geta verið mikil ólíkindatól og efniviður í margs konar listsköpun. Ófrýnileg ryksuga var meðal annars miðpunktar eins þáttar í hryllingsseríunni vinsælu Tales from the Darkside sem sýnd var í bandarísku sjónvarpi á árunum 1984-1988. Umræddur þáttur var í fjórðu seríu og ber nafnið „Hush“. Þar greinir frá barn- fóstru sem á að líta eftir veikum pilti eina kvöldstund. Til að stytta sér stundir finna þau upp á saklausum leik sem gengur út á að búa til ýmis kvikindi úr heimilis- tækjum sem borða allt sem gefur frá sér hljóð. Ekki vildi betur til en svo að ryksuga heimilisins öðlaðist líf og hóf að sjúga til ólífis allt sem gaf frá sér hljóð á heimilinu. Tekur nú við æsilegur eltingaleikur þar sem ryksugan reynir að hafa upp á þeim tveimur. Þar sem pilturinn er lasinn og með stöðugan hósta gengur flóttinn illa. Leikar æsast enn frekar þegar ryksugan öðlast mátt til að greina hjartslátt stúlkunnar. Sögulok verða ekki gefin upp hér en áhugasamir geta horft á þáttinn, ásamt öðrum þáttum úr fjórum seríum Tales from the Darkside, á YouTube. Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð! Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Sérfræðingar í RYKSUGUM ZD10-50LRyk/blautsuga Drive 1000W, 50 lítrar 28.900,- Soteco Topped 515, Longo pac 165.990,- Ryk/blautsuga Drive ZD98A-2B 2000W, 70 lítrar 44.900,- gAr es HKV-100GS30 1000W, 30 lítrar 29.900,- Soteco Base XP 315 1300W 35.990,- gaSpandy heimilisryksu 1600W, HEPA filter 6.690,- rive Bískúrsryksugan 1200W, 20 lítrar 7.490,- Fyrir fyrirtækin Fyrir iðnaðarmanninn Fyrir meistara Fyrir minni spámenn Fyrir stærri spámenn Fyrir alla yrir bílskúrinnFyrir húsbóndannFyrir Alvöru kt kver a a Arges HKV-100GS15 1000W, 15 lítrar 25.900,- D FFyrir „alvöru “ verktaka Pullman Ermator - Áratuga reynsla á Íslandi! 00W Ermator Pullmann S26 26 349.900,- Ermator Pullmann S13 1300W 254.600,- Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16 Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 9-12 & 13-18 TEPPI SKYLDI RYKSUGA TVISVAR Í VIKU Mælt er með því að ryksuga heimilið að lágmarki einu sinni í viku. Ef ekki eru börn og dýr á heimilinu gæti tvisvar í mánuði dugað en þá er nauðsynlegt að moppa á móti. Teppi ætti aftur á móti að ryksuga tvisvar í viku. Þeir staðir sem oftast verða útundan þegar ryksugan er á lofti og safna því óþarflega miklu ryki eru rúm, bólstruð húsgögn, púðar og tuskudýr. Eins gleymist oft að ryksuga á bak við og undir húsgögn og ofan af hillum. Að jafnaði dugar að ryksuga helstu gólffleti en miða skyldi við að ryksuga á fyrrgreindum stöðum að lágmarki einu sinni í mánuði. VISSIR ÞÚ ÞETTA? Fyrsta ryksugan var Whirlwind- uppsópsvél sem notaði ekki rafmagn og var fundin upp í Chicago 1869. Á eftir straujárninu var ryksuga annað vinsælasta heimilisraftæki heimsins á árunum 1920 til 1960. Árið 1913 kom á markað ryksuga í sex mismunandi útfærslum og útbúin fylgihlutum fyrir ryksugun á gólfum, veggjum, áklæði og stútum fyrir rifur. Hana var meira að segja hægt að nota sem hár- blásara Á 19. öld voru ryksugur sam- byggðar fínum innréttingasam- stæðum sem gjarnan gegndu hlutverki sófaborðs eða kokkteil- bars. Ryksugur eru áhrifaríkasta og sparneytnasta leiðin til að halda gólfum hreinum og fjarlægja ryk og ofnæmisvaka innanhúss. Sannað hefur verið að unnt er að fjarlægja 90 til 95 prósent allra óhreininda úr teppum með reglulegri ryksugun. Áður en ryksugur komu til sögunnar voru teppi bönkuð með teppaspaða til ryklosunar og telaufum dreift á teppin til að draga í sig ryk og drullu sem svo var sópað af.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.