Fréttablaðið - 28.08.2014, Qupperneq 36
KYNNING − AUGLÝSINGRyksugur FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, jonatan@365.is, s. 512 5446
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Framvegis verða gerðar meiri
kröfur til ryksuguframleiðenda
líkt og framleiðenda annarra
heimilistækja. Kröfurnar snúa
að orkunotkun, hávaða, end-
ingu og fleiri þáttum.
„Þetta þýðir ekki að fólk þurfi
að hlaupa til og henda ryksugum
sem það á og innflytjendur mega
selja þann lager sem til er í land-
inu,“ segir Guðrún Lárusdóttir,
sérfræðingur hjá Neytendastofu.
„Framvegis þurfa framleiðend-
ur hins vegar að fylgja nýjum
reglum og einungis framleiða
ryksugur sem eru undir 1600
vöttum. Árið 2017 er stefnt að því
að viðmiðið verði komið niður í
900 vött eða minna.
Að sögn Guðrúnar hafa engar
kröfur verið gerðar til ryksugu-
framleiðenda hingað til. „Það hafa
einfaldlega verið búnar til ryk-
sugur og þær settar á markað. Það
hefur svo verið neytenda að velja
og væntanlega hefur valið farið
eftir því sem sagt er í verslunum
eða bara eftir merkjum. Eftir breyt-
inguna þurfa framleiðendur hins
vegar að upplýsa neytendur um
orkueyðsluna, hávaða, endingu,
hversu vel ryksugan sýgur upp
agnir og hversu mikið ryk hún losar
út í andrúmsloftið. Þessar upplýs-
ingar þurfa að vera sýnilegar á ryk-
sugupakkningunni við kaup.“
Guðrún segir reglugerðina
bæði til hagsbóta fyrir umhverf-
ið og neytendur. „Kröfur til fram-
leiðenda heimilistækja fara sífellt
vaxandi og gilda þær til dæmis
um ísskápa, þvottavélar, þurrk-
ara, kaffivélar og önnur álíka
tæki. Hugmyndin með þeim er
að minnka orkunotkunina en um
leið að gera auknar gæðakröfur.
Talið er að kröfur um minni orku-
notkun heimilistækja leiði til 5%
orkusparnaðar á ári í Evrópu eða
um 400 teravattstundir á ári.
Fyrir neytendur og umhverfið
Frá og með 1. september verður framleiðendum ryksuga óheimilt að selja og dreifa orkufrekum heimilisryksugum á Evrópska
efnahagssvæðinu. Frá þeim tíma mega ryksugur einungis vera 1600 vött en algengustu ryksugur í dag eru 1800 vött. Vöttin segja
til um hversu mikil rafmagnsnotkun vélarinnar er en ólíkt því sem margir halda hefur meiri orkunotkun ekkert með gæði að gera.
Að seilast lengra
Ekki henda pappahólkunum innan
úr jólapappírsrúllunum. Slíkar rúll-
ur má nota sem framlengingu á ryksug-
ustúta. Með því að líma hólkinn við ryk-
sugurörið með taulímbandi er hægt að
seilast mun lengra en annars. Þann-
ig má ryksuga köngulóarvefi úr loftum
eða sjúga rykið af viftum og ljósakrón-
um. Einnig má nýta þessa framleng-
ingu til að ryksuga undan rúmum og
öðrum húsgögnum. Fyrir þrengri rými
má klípa rúlluna saman og þá má troða
henni víða þar sem hart járnrörið kemst
ekki.
Nælonsokkar til bjargar
Martröð foreldra verður að veruleika
þegar börnin missa plastperludunkinn
í gólfið og litríkar perlur skoppa um allt.
Mikill höfuðverkur getur fólgist í að tína
upp þetta smádót. Þá kemur ryksugan til
bjargar. Með því að klippa nælonsokka-
buxur og líma við ryksugustútinn er hægt
að fara hamförum í að ryksuga perlur af
gólfum án þess að þær endi allar í maga
ryksugunnar. Nælonsokkurinn gríp-
ur perlurnar og síðan er hægt að losa þær
þægilega ofan í boxið á ný.
Þetta nælonsokkaráð virkar einn-
ig þegar ryksuga á viðkvæma hluti á borð
við silkiblóm og gluggatjöld. Þá er nælon-
sokkurinn strekktur yfir stútinn svo að-
eins ryk kemst í gegn.
Fyrir hárið
Skemmtilegt myndband gekk um net-
heima fyrir nokkru. Þar sést faðir setja
hárteygju utan um ryksugurörið. Þá
kveikir hann á tækinu, ryksugar hár
dóttur sinnar inn í rörið og smellir síðan
teygjunni upp á hárið til að mynda tagl.
Fyrirmyndarráð fyrir þá sem þykjast ekki
kunna að greiða hár.
Ilmandi gott
Oft blossar upp sérstök ryksugulykt
þegar kveikt er á ryksugunni. Á netinu
er bent á sniðuga leið til að koma ilm um
allt hús. Þannig má spreyja ilmi í papp-
írsþurrku, hún er síðan ryksuguð upp í
vélina og á þaðan að veita lykt um allt
rýmið.
Öfugsnúin lausn
Það er ekki tekið út með sældinni að ryk-
suga undir rúmum. Sérstaklega borga
hnén fyrir erfiðið. Ein auðveld lausn er að
snúa handfanginu öfugt. Þannig mynd-
ast öfugur bogi sem gerir fólki auðveld-
ara að ná undir rúmin án þess að þurfa
að krjúpa.
Hlífum veggjum
Þegar ryksugað er rösklega vill ryksugu-
hausinn strjúkast við veggi og annað-
hvort rispa þá eða lita. Með því að líma
límband meðfram ryksuguhausnum
minnka líkurnar á slíkri eyðileggingu.
Hugvitsamleg nýting ryksugunnar
Hlutverk ryksugunnar er flestum ljóst. Hún sýgur ryk og önnur óhreinindi af gólfum og úr teppum. Hana má einnig nota til að
hreinsa mylsnuna úr sófapullunum. Ryksuguna má þó nota á mun fjölbreyttari hátt eins og eftirfarandi dæmi sýna: