Fréttablaðið - 28.08.2014, Side 39
KYNNING − AUGLÝSING Hannyrðir28. ÁGÚST 2014 FIMMTUDAGUR 3
Verslunin Fjarðarkaup var opnuð í Hafnarfirði árið 1973. Hún er þekkt fyrir fjölskrúðugt vöruúrval og þar á
meðal myndarlega garndeild sem ber nafn-
ið Rokka. „Það kom fyrst garn hér í hús árið
1997. Deildin var í fyrstu lítil í sniðum en
fyrir rúmum þremur árum var ákveðið að
stækka og nú er þetta hið myndarlegasta
horn,“ segir deildarstjórinn, Hjördís Sigur-
bergsdóttir.
Mikið af prjónuðum sýnishornum
Hjördís segir leitast við að bjóða upp á gott
vöruúrval, góða þjónustu og ráðgjöf. „Þá
leggjum við okkur fram um að hafa mikið
úrval af prjónuðum sýnishornum sem hefur
mælst vel fyrir enda gott að geta séð útkom-
una en ekki aðeins mynd á blaði.“ Hjördís
segir birgjana duglega við að koma með
sýnishorn en auk þess hafi hún látið prjóna
fyrir sig.
„Við erum með garn frá fjórum mismun-
andi birgjum og bjóðum allt frá fínu silki-
garni upp í grófasta lopa. Við reynum allt-
af að vera með eitthvað nýtt af nálinni. Bir-
gjarnir eru jafnframt duglegir að fylgjast
með, fara til útlanda á sýningar og koma
með það sem er heitast hverju sinni.“
Ekkert lát á prjónaáhuganum
Hjördís segir alls ekkert vera að draga úr
þeim prjónaáhuga sem hefur ríkt hér á
landi frá því eftir hrun. „Það er mikið að
gerast í prjónaheiminum og mér finnst
íslenskar konur uppfullar af sköpun-
argleði. Ég segi konur, því karlarn-
ir eru því miður í minnihluta og
ekki alveg jafn áhugasam-
ir. Það er þó alltaf einn og
einn sem kemst á bragðið.
Það er nefnilega svo mikil
slökun sem f ylgir því
að prjóna. Prjónaskap-
ur er að mínu mati fíkn
sem enginn vill fá neina
lækningu við. Þeir sem
ánetjast honum vilja
bara meira garn og fleiri
uppskriftir.“
Gott úrval af upp-
skriftum
Í deildinni er mikið
úrval af prjónabókum
og blöðum. „Mér telst svo til að gefnar hafi
verið út á bilinu tíu til fimmtán íslensk-
ar prjónabækur á árinu sem undirstrikar
gróskuna. Við seljum allt sem við komumst
yfir; bæði erlent og íslenskt enda lykilatriði
að vera með gott úrval af uppskriftum. Þá
höfum við líka verið að selja einblöðunga
með stökum uppskriftum. Það hefur gefist
mjög vel enda hentar ekki öllum að kaupa
heilu blöðin eða bækurnar. Þá vill svo
skemmtilega til að tvær kvennanna sem
starfa í deildinni hafa verið að búa til upp-
skriftir sem þær selja og eru að sjálfsögðu
með prjónuð sýnishorn.“
Efni til skartgripagerðar væntanlegt
Ýmsar nýjungar eru fyrirhugaðar í deild-
inni með haustinu. „Við skynjum mikinn
áhuga á alls kyns handavinnu og ætlum að
bæta við efni til skartgripagerðar í haust.
Fyrr á árinu hætti svo eina vefnaðarvöru-
verslunin í Hafnarfirði og er hennar sárt
saknað. Við ætlum að reyna að koma til
móts við kröfur um að selja í það minnsta
tvinnakefli og annað sem tilheyrir sauma-
skap enda ómögulegt að Hafnfirðingar
þurfi að fara í annað bæjarfélag eftir því,“
segir Hjördís. Aðspurð hvort jafnvel verði
farið út í að selja efni segir Hjördís svo
ekki vera. „Nei, við höfum ekki pláss
til þess.“
Hjördís segir þegar vera farið að
huga að jólunum. „Ég var að fá
inn úrval útsaumspakka fyrir
jólin enda ekki seinna vænna
að fara að byrja á jólasokkun-
um og dagatölunum.“ Hún
bendir á að frá og með deg-
inum í dag og fram á laugar-
dag verði afsláttur af völd-
um vörum í deildinni. Hún
bendir jafnframt á Facebo-
ok-síðu Rokku. „Þar er fólk
að skiptast á ýmiskonar
fróðleik og uppskriftum.”
Enginn vill lækningu við prjónafíkn
Garndeildin Rokka í Fjarðarkaupum hefur tilheyrt versluninni frá 1997. Fyrir þremur árum var deildin stækkuð. Eitt af
aðalsmerkjum hennar er að vera með úrval af prjónuðum sýnishornum. Með haustinu bætist efni til skartgripagerðar við deildina.
Mikil áhersla er lögð á prjónuð
sýnshorn en þannig er hægt að sjá
útkomu verksins vel fyrir sér.
Leitast er við að bjóða upp á nýjungar bæði hvað
varðar garn, uppskriftir og fylgihluti.
Í Rokku er að finna allt frá fínu silkigarni upp í grófan
lopa.
Fimm konur skipta
með sér verkum í
deildinni. Þegar ljós-
myndara bar að garði
stóðu þær Hjördís
Sigurbergsdóttir (til
hægri) og Guðlaug
Sigmundsdóttir vakt-
ina. Aðrir starfsmenn
eru: Auður Skúladóttir,
Hjördís Ingvarsdóttir
og Ingibjörg Rún
Sumarliðadóttir.
MYND/VALLI
TILBOÐ FRÁ FIMMTUDEGI
TIL LAUGARDAGS
■ 20% afsláttur af Smart, Alfa, Lanett, Wintersun, King
Baby Lama og Sunset garni.
■ 20% af öllum KnitPro prjónasettum.
■ 50% af öllum Tinnu-, Bjarkar- og Rauma-blöðum,
nema nýjustu blöðunum.
Deildin var stækkuð fyrir þremur árum.