Fréttablaðið - 28.08.2014, Side 60
28. ágúst 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 44
Hanna Birna
Kristjáns-
dóttir var ein
af fj órum
táningum í
umfj öllun um
fermingar í
Vikunni árið
1980.
HÖLL MINNINGANNA FRÁ HÖNNU BIRNU TIL HÖNNU BIRNU
➜
➜
➜
➜
➜
➜
Í sama blaði var mynd
af Katrínu Júlíusdóttir í
kúrekaklæðnaði á
Kisudeild leikskólans
Álft aborgar.
Katrín fermdist í
Kópavogskirkju árið
1988, þann 24 apríl
klukkan 14.00.
Sama dag
klukkan 10.30
fermdist
tónleikahald-
arinn Ísleifur
B. Þórhallsson í
sömu kirkju.
Ísleifur var í ritnefnd Verzlunarskóla-
blaðsins árið 1994.
Ísleifur hélt tónleika með
Justin Timberlake á sunnu-
dagskvöld. Meðal gesta var
Bjarni Benediktsson en Bjarni
situr með Hönnu Birnu í
ríkisstjórn.
Tjón upp á
tæpa milljón
Ærslabelgurinn Charlie Sheen
rústaði svítu á Plaza-hótelinu í
New York árið 2010. Var tjónið
metið á sjö þúsund dollara,
rúmlega 820 þúsund krónur. Talið
er að Charlie hafi gengið berserks-
gang í herberginu á nærfötunum
á meðan kærastan hans öskraði í
lokuðum skáp. Að sögn blaðafull-
trúa leikarans á þessum tíma var
orsökin slæmar aukaverkanir lyfja
sem leikarinn tók.
Breyta svítum
í svínastíur
Frægasta fólk heims er vant því að lifa í lúxus hvar
sem það er en iðulega endar hóteldvölin illa.
CHARLIE SHEEN
FLORENCE WELCH
COURTNEY LOVE
LINDSAY LOHAN
Bláberjabína með kanilkexi
„Einn fljótlegasti og ferskasti eftirréttur sem sögur fara af.
Þið hafið enga afsökun fyrir því að hafa ekki haft tíma til
þess að bjóða upp á eftirrétt í matarboðinu eða með laug-
ardagsmatnum. Börnin mín elska skyr og á okkar heimili er
skyr oftast kallað skyrís, það hljómar bara einhvern veginn
meira spennandi. Þessi eftirréttur er í miklu uppáhaldi hjá
börnunum mínum,“ segir Thelma Þorbergsdóttir en þessi
uppskrift er úr bók hennar, Freistingar Thelmu, en hún
heldur líka úti blogginu Freistingarthelmu.blogspot.com.
Fyrir 6-8 manns
6 Lu-kanilkex
500 g bláberjaskyr (skyr.is)
½ lítri rjómi
Fersk bláber
Setjið Lu-kanilkex í matvinnsluvél og vinnið þar til kexið
er orðið fínhakkað. Setjið 1-2 msk. af kexinu í hvert glas.
Þeytið 250 ml af rjóma og blandið saman við bláberjaskyr-
ið, hrærið með sleif þar til allt hefur blandast vel saman.
Setjið skyrblönduna í sprautupoka og sprautið skyrinu jafnt
í 6-8 glös og raðið bláberjum yfir og meðfram köntum
glassins. Þeytið aðra 250 ml af rjóma, setjið í sprautupoka
og sprautið fallega ofan á bláberin. Skreytið með kanilkexi.
Geymið í kæli þar til þið berið réttinn fram
Girnilegt og gómsætt í haustinu
Nú er sá tími árs sem náttúran býður upp á fínasta hráefni sem um er að gera
að nýta í matargerð. Hér má sjá girnilega eft irrétti úr uppskeru haustsins.
Kveikti næstum
í hótelinu
Rauðhærða söngkonan Florence
Welch olli miklum usla á herbergi
á Bowery-hótelinu í New York fyrir
tveimur árum. Hún játaði syndir sín-
ar í viðtali við tímaritið Q og sagði
að hún hefði vaknað eftir fyllerí með
Kanye West og Lykke Li í herbergi
sem var nánast orðið brunarústir
einar. „Ég held að ég hafi fengið mér
um sautján Dirty Martini-drykki. Ég
týndi símanum mínum og kjóllinn
minn rifnaði. Ég kveikti næstum því
í Bowery-hótelinu því ég hafði skilið
eftir kveikt á kanilsprittkerti.“
Skipt um öll teppi
Sagan segir að partípían Lindsay
Lohan sé á svarta listanum á níu
hótelum. Hún olli tjóni upp á
fimmtíu þúsund dollara, tæplega
sex milljónir króna, á W New York
Union Square en skipta þurfti
um öll teppi í herberginu vegna
brunabletta. Þá olli Lindsay tjóni
upp á tæplega 47 þúsund dollara
á Sunset Boulevard-hótelinu.
Óhreinar nálar
út um allt
Tónlistarkonan Courtney Love
er þekkt fyrir mikið partístand
og fór afar illa með herbergi sitt
á The Inn í New York. Courtney
skildi eftir notaðar hreinlætis-
vörur út um allt herbergið sem
og óhreinar nálar. Þá olli hún líka
talsverðu vatnstjóni á staðnum.
Talið er að tjónið í heild sinni
hafi verið upp á fimm þúsund
dollara, tæplega sex hundruð
þúsund krónur.
Rabarbara- og perubaka með stökkum hafrahjúpi
„Mér finnst voðalega gott að setja eitthvað sætt með í
rabarbarabökurnar, það gefur svo gott jafnvægi við súran
rabarbarann. Stundum set ég hindber með en að þessu
sinni notaði ég perur, það kom ofsalega vel út. Ef þið
eruð hrifin af hvítu súkkulaði þá er sannarlega ekki verra
að strá yfir rabarbarabökuna dálitlu af hvítum súkkulaði-
dropum. Hafrahjúpurinn ofan á bökunni er meðal annars
með púðursykri og sírópi sem gefur henni stökka áferð og
karamellukennt bragð,“ segir Dröfn Vilhjálmsdóttir sem
bloggar undir heitinu Eldhússögur, eða eldhus sogur.com.
500 g rabarbari, skorinn í bita
2 stórar perur, afhýddar og skornar í bita
1 msk. kartöflumjöl
1 dl sykur + 1 msk.
1 dl púðursykur
2 dl haframjöl
2 dl hveiti
½ tsk. lyftiduft
½ tsk. vanillusykur
½ dl ljóst síróp
125 g smjör
½ dl rjómi
Ofninn er stilltur á 150 gráða undir- og yfirhita. Rabarbar-
anum og perunum er dreift í smurt form og 1 msk. af sykri
og kartöflumjöli er stráð yfir. Smjörið er brætt í potti ásamt
rjómanum. Þurrefnunum er blandað saman í skál ásamt
sírópinu og brædda smjörinu og rjómanum er svo hrært
út í. Blöndunni er því næst dreift jafnt yfir rabarbarann og
perurnar. Bakað í ofni við 150 gráður í ca. 40–50 mínútur.
Bakan er borin fram heit með þeyttum rjóma eða ís.