Fréttablaðið - 06.09.2014, Qupperneq 40
FÓLK|HELGIN
Elíza stígur á svið í Kirkjuvogs-kirkju í Höfnum, Reykja-nesbæ, á morgun klukkan 16.
Þar mun hún flytja gömul og ný lög
frá tuttugu ára ferli sínum, allt frá
Kolrössu krókríðandi til Eyjafjalla-
jökuls og frumflytja splunkunýtt
efni. Aðgangur er ókeypis en frjáls
framlög fara til styrktar viðhalds á
Kirkjuvogskirkju.
Hvað er það sem þú gerir alltaf
um helgar? Ég drekk mikið kaffi,
hlusta á tónlist og er í náttfötunum
fram eftir degi.
Hvar finnst þér best að vera um
helgar? Heima er best.
Hvað ætlar þú að gera sérstakt um
þessa helgi? Í dag verð ég að æfa
mig og búa mig undir tónleikana
í Kirkjuvogskirkju og svo kíki ég á
alls konar skemmtilegt sem verður
í boði á Ljósanótt. Þar langar mig
til dæmis að kaupa einhverja flotta
list á þeim fjölmörgu sýningum sem
verða í boði um helgina.
Vakirðu fram eftir um helgar?
Ég vaki eiginlega alltaf of lengi og
myndi vaka enn þá lengur ef ég væri
ekki með eina fjöruga eins árs dömu
sem þykir gaman að vakna klukkan
sex á morgnana!
Ertu árrisul að eðlisfari eða sef-
urðu út? Ég elska að sofa út en get
það ekki lengur þar sem dóttirin
vekur mig í miklu stuði eldsnemma
á hverjum morgni. Henni er slétt
sama hvort það er helgi eða ekki.
Hver er draumamorgunverðurinn?
„Full English Breakfast, please.“
Hvernig er dæmigert laugardags-
kvöld í þínu lífi? Bara að hafa það
náðugt heima, horfa á bíómynd og
slappa af.
Ertu með nammidag og hvert er
uppáhaldssælgætið þitt? Hjá mér
er nammidagur á hverjum degi en
ég er að reyna að temja það niður
í einn dag í viku og gengur misvel.
Uppáhaldsnammið er Þristur og
flest allt súkkulaði og sterkt nammi,
held ég. Það breytist þó eftir því
hversu svöng ég er þegar ég labba
fram hjá nammihillum búðanna.
Hvað maularðu í sjónvarpssóf-
anum á kósíkvöldi? Súkkulaði, salt-
stangir og gamla góða poppið sem
ég poppa í potti.
Heldurðu hvíldardaginn heilagan?
Ég reyni að slaka á en það virkar
ekki alltaf sem skyldi.
Ferðu til kirkju eða hlustar á út-
varpsmessuna á sunnudögum? Nei,
en ég fer til kirkju á morgun til að
spila.
Hvað verður með sunnudags-
kaffinu og með hverjum drekkurðu
það? Best er að fá eitthvað heima-
bakað frá húsbóndanum Gísla; hann
er öflugur í bakstrinum. Ég drekk
sunnudagskaffið með honum og
Sölku Sigurlilju dóttur okkar sem
fær sér mjólkursopa. Kannski kíkja
svo pápi gamli og hans frú við.
Til hvers eru helgarfrí, að þínu
mati? Til að eiga tíma með fjölskyld-
unni, leika við dóttur mína, tralla
í tónlist og njóta náttúrunnar allt í
kringum mig.
Hvað er annars að frétta af þér,
Elíza? Allt gott að frétta. Ég er flutt í
sveitina við sjóinn, Hafnir Holly-
wood, og það er alveg yndislegt.
Hvað ertu að bralla þessa
dagana? Ég er nýbyrjuð að kenna
tónlist í Háaleitisskóla á Ásbrú
og það er ansi fjörugt. Svo er ég
að vinna á fullu að nýrri plötu
sem verður fjórða sólóplatan
mín og stefni á að gefa hana út
snemma á næsta ári. Svo var
ég að gefa út nýtt lag sem heitir
Flöskuskeyti og er byrjað að
hljóma í útvarpinu þessa dagana.
Af hverju settistu að í Höfn-
um? Af því ég vissi ekki hvað ég
saknaði hafsins og víðáttunnar
mikið fyrr en ég flutti til Hafna
eftir margra ára búsetu erlendis.
Nú er ég svo sannarlega komin
heim. Ég á margar tengingar
við Hafnir; pabbi minn, Geir
New man, er alinn þar upp og í
Höfnum eyddi ég miklum tíma
sem barn. Hér hefur mér alltaf
liðið mjög vel í Höfnum sem eru
kannski gleymdur gimsteinn á
Reykjanesinu. ■ thordis@365.is
FLUTT HEIM Í GLEYMDAN GIMSTEIN
HELGIN Tónlistarkonan Elíza Geirsdóttir Newman er komin heim úr langri útlegð; heim í Hafnir Hollywood, eins og hún kallar
paradís æskuára sinna. Þar poppar hún á kósíkvöldum og nýtur tilverunnar með sínum heittelskaða og ársgamalli dóttur þeirra.
SUÐURNESJAMÆR Elíza Geirsdóttir Newman upplifði sáran söknuð eftir hafi og ís-
lenskri víðáttu þegar hún flutti heim til Hafnar eftir áralanga búsetu ytra.
MYND/GÍSLI KRISTJÁNSSON
½ bolli smjör
½ bolli sykur
¼ tsk. salt
1 tsk. vanillu-extrakt
2 eggjarauður
1½ bolli hveiti
1 tsk. lyftiduft
1/3 bolli mjólk
1½ bolli nýtínd bláber
2 eggjahvítur
¼ bolli sykur
Aðferð
Hitið ofninn í 175°C.
Hrærið saman smjöri og
hálfum bolla af sykri, þar
til mjúkt. Bætið við salti
og vanillu. Skiljið eggin,
geymið hvíturnar, bætið
eggjarauðunum við
blönduna og hrærið.
Blandið saman 1½
bolla af hveiti, lyftidufti
og mjólk og bætið því
smátt og smátt við
eggjarauðublönduna.
Veltið bláberjum upp úr
hveiti og bætið þeim við
deigið.
Þeytið eggjahvíturnar
í annarri skál. Bætið ¼
bolla af sykri smátt og
smátt við eggjahvíturnar
og bætið þeim svo við
deigið. Hellið í form
og og stráið sykri yfir
deigið.
Bakið í 50 mín-
útur eða þar til kakan er
bökuð í gegn.
LJÚFFENG UM HELGINA
Margir eiga nóg af bláberjum eftir berjatínslu síðast-
liðna daga eða ætla að skella sér í berjamó um
helgina. Fyrir þá er ráð að baka þessa gómsætu
köku úr afrakstrinum og gæða sér á með kaffinu.
GÓMSÆT Bláberjakaka getur ekki klikkað með kaffinu.