Fréttablaðið - 06.10.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.10.2014, Blaðsíða 2
6. október 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2 STJÓRNMÁL „Vilji þingmanna Fram- sóknarflokksins virðist ekki standa til þess að auka frelsi einstaklings- ins, heldur virðast þeir vera sann- færðir um að leið haftabúskapar, boða og banna sé hin eina rétta,“ segir í ályktun af málefnaþingi Sambands ungra sjálfstæðismanna sem haldið var um helgina. „Ef sú verður áfram raunin, ber Sjálfstæðis- f lokk num að standa fast á hug- sjónum um frelsi einstaklingsins til orðs og athafna og slíta ríkisstjórn- arsamstarfinu við Framsóknar- flokkinn,“ segir áfram í ályktuninni. Magnús Júlíusson, formaður SUS, kvaðst í gær ekki vilja tjá sig um innihald ályktun- arinnar. Þá vildi Ragnheiður Rík- harðs dóttir, for- maður þingflokks sjálf stæðis- manna, heldur ekki lýsa viðhorfi sínu til áskorun- ar SUS-liðanna. Kvaðst Ragnheiður ekki vera búin að kynna sér álykt- unina. SUS segir Sjálfstæðisflokkinn ekki mega við því að miðla málum þannig að flestar fórnirnar í ríkis- stjórnarsamstarfinu lendi á honum og þeim hugsjónum sem hann standi fyrir. „Þingmenn flokksins verða að þora að taka slaginn og standa vörð um grunngildi sjálfstæðisstefn- unnar, sama þótt það kosti átök við samstarfsflokkinn,“ segja unglið- arnir. Vísa SUS-menn til þess að þegar þingmenn og ráðherrar sjálfstæðis- flokksins hafi talað fyrir frjáls- lyndum og víðsýnum hugmyndum hafi þeim ávallt verið mótmælt kröftuglega af framsóknarmönn- um. Meðal dæma sem þeir nefna er afnám einokunarsölu ríkisins á áfengi, hugsanleg koma verslunar- keðjunnar Costco til landsins og ábyrg stjórn í ríkisfjármálum. „Ungir sjálfstæðismenn harma þá ákvörðun þingflokks Sjálfstæðis- flokksins að beygja sig undir vilja Framsóknarflokksins og samþykkja stærstu ríkisvæðingu einkaskulda í sögu Íslands. Flokkur sem kennir sig á tyllidögum við ábyrgð í ríkis- fjármálum á ekki að nýta áttatíu milljarða króna af almannafé til þess að greiða niður verðtryggð húsnæðislán tiltekins þjóðfélags- hóps,“ segja ungir sjálfstæðismenn sem telja að frekar ætti að nýta slíka fjármuni til þess að grynnka á „níðþungum“ skuldum ríkisins og lækka skatta á fólk og fyrirtæki. „Það kæmi öllum til góða, ekki bara sumum.“ gar@frettabladid.is / adda@frettabladid.is SPURNING DAGSINS 20% afsláttur Gildir í október Lyfjaauglýsing Elva, er íþróttaálfurinn ekki nógu sætur? „Jú, algjörlega. Ætli hann væri tilbúinn í ísbíltúr með mér?“ Elva Björk Ágústsdóttir, sálfræðikennari og námsráðgjafi, segir að í sýningunni Latabæ sé einstrengingslegur áróður gegn sykurneyslu. HONG KONG, AP Hluti lýðræðissinna í Hong Kong ákvað í gær að fjarlægja suma af þeim vegatálmum sem búið var að koma fyrir á vegum og gangstéttum í borginni. Einnig ákváðu þeir að draga úr mótmælum sínum. Stjórnvöld í Hong Kong höfðu sagt mótmælendum að þau myndu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að um þrjú þúsund opinberir starfsmenn gætu komist á skrifstofur sínar í dag. Lýðræðissinnar voru ekki sammála um hvernig bregðast ætti við hótunum stjórnvalda og sumir þverneituðu að gefa eftir. Bandalag stúdenta sem hefur staðið fyrir mótmælun- um sagðist í gær ætla að hefja viðræður við stjórnvöld að nýju um lýðræðislegar umbætur í Hong Kong. Það ætlaði engu að síður að halda mótmælum sínum áfram. „Við þurfum að bíða og sjá hvort stjórnvöld standi við loforð sín,“ sagði bandalagið í yfirlýsingu sinni. Stjórnvöld hafa tilkynnt að þau ætli að opna skóla á nýjan leik og sömuleiðis einhverjar götur. „Til að koma aftur á reglu erum við sannfærð um að við höfum getu til að grípa til nauðsynlegra úrræða,“ sagði talsmaður lögreglunnar. „Enginn almennur borgari ætti að geta valdið truflunum.“ Að sögn lögreglunnar hafa þrjátíu manns verið hand- teknir síðan mótmælin hófust. Hún sagðist hafa notað piparúða gegn mótmælendum á laugardaginn eftir að þeir höfðu ögrað lögregluþjónum. - fb Hluti mótmælenda í Hong Kong gaf eftir vegna hótana stjórnvalda: Fjarlægðu vegatálma í borginni VATÍKANIÐ, AP Frans páfi setti alþjóðlega prestastefnu í kirkjunni St. Peter‘s í Vatíkaninu í gær. Prestastefnan stendur yfir í tvær vikur og hana sækja meira en tvö hundruð biskupar og kardinálar víða að úr heiminum. Tilgangurinn er að ræða um hvort skoðanir kirkjunnar á fjölskyldu- lífi, svo sem hjónabandi, kynlífi, getnaðarvörnum, skilnuðum og sam- kynhneigð, eigi við hjá kaþólskum nútímafjölskyldum. Ekki er búist við því að kirkjan muni breyta viðhorfum sínum að einhverju ráði. - fb Alþjóðleg prestastefna hófst í kirkjunni St. Peter‘s í gær: Prestar ræða um fjölskyldulíf MENNING Lyfjafyrirtækið Alvo- gen hefur ráðið myndlistarmann- inn Hjalta Parelius Finnsson til að mála ný málverk í höfuð- stöðvum fyrirtækisins sem rísa í Vatnsmýrinni. „Samningur Alvogen og Hjalta er til 18 mánaða en á þeim tíma vinnur Hjalti einungis fyrir Alvogen,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. „Þetta er án efa einn stærsti samningur sem íslenskur myndlistarmaður hefur fengið í meira en hálfa öld.“ Hjalti á að mála þrjú verk sem samtals eru sögð verða um 100 fermetrar. - gar Alvogen ræður listmálara: Samningurinn sagður stærstur Ungliðar vilja slíta stjórnarsamstarfinu Samband ungra sjálfstæðismanna harmar að þingmenn flokksins hafi beygt sig undir vilja Framsóknarflokksins og samþykkt að nota 80 milljarða af almannafé til að greiða einkaskuldir. Slíta eigi stjórnarsamstarfinu nema breytingar verði. ELDGOS Eldgosið í Bárðarbungu er enn með sama styrk og undan- farna daga. Athuganir á svæð- inu benda til þess að suðurjaðar hraunsins hafi verið að færast til austurs undanfarna daga. Jarðeðlisfræðingur á Veður- stofu Íslands segir skjálftavirkni nú eingöngu bundna við Bárðar- bungu. Klukkan fimm síðdegis í gær var stærsti skjálfti dagsins og mældist hann fimm á Richter. Um klukkan sjö í gærkvöldi var skýjað við gosstöðvar og því erfitt að sjá eldgosið í vefmynda- vélum. - asi Sami styrkur á eldgosinu: Helst skjálftar í Bárðarbungu KJARAMÁL Störfum hjá ríkinu hefur fækkað um 10,6 prósent frá árinu 2008. Ef litið er aftur til aldamóta hefur starfsmönnum ríkisins fjölgað um 5,6 prósent frá árinu 2000 en fjöldi starfa á vinnumarkaðnum öllum hefur aukist um 11,8 prósent. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá BSRB sem er byggð á upplýs- ingum frá Hagstofunni og Fjár- málaráðuneytinu. Upplýsingarnar stangast á við fullyrðingar Viðskiptaráðs um að ríkisstarfsmönnum hafi fjölgað um 29 prósent frá aldamótum og að aðhaldsaðgerðir síðustu ára hafi ekki fækkað starfs mönnum ríkisins frá 2008 til 2014 um nema þrjú prósent. „Hagfræðingur okkar fór að kafa ofan í þessar tölur og það er ljóst að þær standast ekki. Þess vegna erum við að senda frá okkur þessar upplýsingar sem við teljum vera sannar og réttar,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, for- maður BSRB. „Þegar fullyrðingar Viðskipta- ráðs komu fram komu þær mér algerlega í opna skjöldu,“ held- ur Elín áfram. „Sérstaklega frá 2008 höfum við orðið sífellt meira vör við að fólki hefur verið sagt upp og starfsmönnum fækkað.“ - fb Yfirlýsing BSRB um fjölda starfa ríkisstarfsmanna stangast á við fullyrðingar Viðskiptaráðs: Störfum hjá ríkinu fækkað um 10 prósent ELÍN BJÖRG JÓNSDÓTTIR Formaður BSRB segir að fullyrðingar Viðskiptaráðs standist ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRANS PÁFI Páfi kaþólsku kirkjunnar heldur á guðspjallabókinni við messu í kirkj- unni St. Peter‘s í Vatíkaninu í gær. NORDICPHOTOS/AFP MEÐ GULA REGNHLÍF Stytta sem stúdentar bjuggu til heldur á gulri regnhlíf fyrir utan stjórnarbyggingu í Hong Kong. Stjórnvöld hafa krafist þess að lýðræðissinnar rými göturnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HEIMSÓKN Í ALÞINGI Fulltrúar Sambands ungra sjálfstæðismanna hittu formann flokksins í heimsókn í Alþingishúsið. MAGNÚS JÚLÍUSSON RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR Fjölgun starfs- manna ríkisins frá árinu 2000. 5,6% Flokkur sem kennir sig á tyllidögum við ábyrgð í ríkisfjármálum á ekki að nýta áttatíu milljarða króna af al- mannafé til þess að greiða niður verðtryggð hús- næðislán tiltekins þjóð- félagshóps. Samband ungra sjálfstæðismanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.