Fréttablaðið - 06.10.2014, Blaðsíða 14
6. október 2014 MÁNUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is
MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Stofnaður var sérstakur myndlistar-
sjóður með lögum árið 2012 sem hefur
það markmið að auðvelda þeim sem
vinna við myndlist að koma metnaðar-
fullum verkefnum í framkvæmd. Fé úr
sjóðnum hefur eflt sýnileika myndlist-
ar á Íslandi og styrkt stoðir menningar-
lífsins. Niðurskurður á fjárveitingum
í sjóðinn ógnar því góða starfi sem þar
hefur unnist.
Rannsóknir benda til þess að mynd-
list geti haft margþætt jákvæð áhrif
á efnahagslífið. Öflug myndlist eykur
framleiðni og tekjur hjá þeim sem
vinna með beinum hætti við mynd-
list. Myndlist sem er sýnileg hefur
jákvæð áhrif á menningartengda ferða-
mennsku, sem skilar þjóðarbúinu hvað
mestum tekjum. Myndlist er einnig
hvati fyrir fjölbreyttara menningarlíf
sem laðar að sér hæft og vel menntað
fólk, eins og til dæmis lækna.
Við stöndum okkur bærilega í því að
styrkja kjarna myndlistarlífsins með
listamannalaunum. Hins vegar skortir
verulega leiðir til að koma starfi mynd-
listarmanna á framfæri. Sýnileiki
listarinnar hér á landi gæti verið mun
meiri og þar með menningarleg áhrif
hennar. Þess vegna er myndlist hér á
landi vannýtt auðlind; við nýtum ekki
efnahagslega möguleika hennar nema
að litlu leyti.
Stofnun myndlistarsjóðs fyrir þrem-
ur árum var þess vegna skynsamleg og
hagkvæm aðgerð. Stefnt var að því að
efla hann smátt og smátt með auknum
fjárveitingum og auka þannig þjóðhags-
legt gildi myndlistarstarfs til muna.
Það er því áhyggjuefni að í stað þess
að styrkja sjóðinn hefur Alþingi skert
fjárveitingar til hans verulega. Á síð-
asta ári drógust fjárveitingar saman
úr 45 milljónum í 25 milljónir. Nú er
lagt til að leggja einungis 15 milljónir
til sjóðsins. Í stað þess að bæta hóflegu
fé í sjóðinn, og efla þannig efnahags-
legt gildi myndlistar, er grafið undan
starfinu. Þannig verður myndlistin, því
miður, áfram vannýtt auðlind.
Myndlist – vannýtt auðlind
- Til sölu -
Toyota Landcruiser 150 GX
7 manna bíll - Nýskráður 10/2011 - Ekinn 71000
Aukahlutir, krókur, filmur, húddhlýf og
gluggavindhlýfar
Verð 7.990.000 uppl síma 864 7272
F
riðarsúlan í Viðey verður tendruð næstkomandi
fimmtudag á fæðingardegi bítilsins og friðarsinnans
Johns Lennon. Friðarsúlan var eins og flestir muna
reist í Viðey árið 2007 og er í raun útilistaverk unnið af
Yoko Ono til minningar um eiginmann hennar heitinn.
Súlan er tákn fyrir baráttu hjónanna fyrir heimsfriði og lýsir upp
kvöldhimininn frá 9. október, fæðingardegi Lennon, ár hvert til
og með 8. desember en þann dag var Lennon myrtur árið 1980. Að
auki er Friðarsúlan tendruð nokkra aðra valda daga, á gamlárs-
kvöld, í kringum vetrarsólstöður
og á sérstökum hátíðardögum.
Þá var hún tendruð sérstaklega í
ágúst síðastliðnum til að minnast
fórnarlamba átakanna á Gasa.
„Ljós er það sem heimurinn
þarfnast. Við búum öll í skugga
ótta og ringulreiðar í hinum
mengaða heimi. Þetta ljós á
Íslandi verður aldrei slökkt, það er eilífðargeislinn sem við
sendum út til heimsins og geimsins til að gefa von og sannfæringu
um að draumar okkar geti ræst,“ sagði Yoko Ono þegar ákveðið
var að reisa súluna.
Friðarsúlan kostar Reykjavíkurborg um sex milljónir króna
á ári. Þetta kemur fram í svari menningar- og ferðamálasviðs
Reykjavíkur við fyrirspurn Sveinbjargar Birnu Sveinbjörns-
dóttur, borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina í borgar-
ráði. Sveinbjörg lagði fram fyrirspurnina í kjölfar þess að hún
gagnrýndi að Jón Gnarr tæki á móti sex milljóna króna styrk úr
friðarsjóði Yoko Ono. Hún taldi það skjóta skökku við að fyrr-
verandi borgarstjóri skuli þiggja styrk úr friðarsjóði Ono í ljósi
þess að Reykjavíkurborg greiði fyrir rekstur súlunnar. „Ég
hefði allavega ekki tekið við þessum styrk,“ sagði Sveinbjörg við
fréttastofu RÚV.
Reyndar tekur Jón Gnarr ekki persónulega á móti styrknum,
eins og síðar hefur komið fram, heldur velur hann gott málefni
sem friðarsjóðurinn styrkir síðan um þessa fjárhæð. Meðal fyrri
styrkþega má nefna tónlistarkonuna Lady Gaga sem styrkti sam-
tök sem berjast gegn einelti.
Friðarsúlan hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem eitt af kenni-
leitum Reykjavíkurborgar. Hún leggur sitt af mörkum við að gera
Reykjavík að einni af höfuðborgum friðar, mannréttinda og gleði
sem er góður boðskapur og sérstaða sem við ættum að vera stolt
af. En framlag og boðskapur Jóns Gnarrs í þá veru er eitt af því
sem mun gera borgarstjóratíð hans ódauðlega. Í því samhengi
verður sex milljóna árlegur kostaður að teljast harla léttvægur.
Það er hlutverk minnihlutans í borgarstjórn að veita meirihlut-
anum nauðsynlegt aðhald, sérstaklega varðandi meðferð útsvars
borgarbúa. Að því leyti eru spurningar borgarfulltrúans sjálf-
sagðar. Að auki hefur minnihlutanum í borgarstjórn undanfarið,
hvaða flokkar sem hann skipa, verið legið á hálsi fyrir að standa
sig ekki í stjórnarandstöðu. Það er fínt til þess að vita að einhver
ætlar að vera á vaktinni í andstöðunni næstu misseri.
Engu að síður vaknar upp mikilvæg spurning. Á hvaða vegferð
er viðkomandi borgarfulltrúi? Þetta er annað málið sem hann
setur á oddinn – áður hlaut hann verðskuldaða gagnrýni fyrir
fordóma gegn múslimum og andstöðu við byggingu mosku hér
á landi. Nú kemur hann sér í fjölmiðla fyrir að gera friðarsúlu
og friðarstyrkveitingar til góðra málefna hennar tortryggilegar.
Hvað kemur eiginlega næst?
Sex milljóna árlegur kostnaður er léttvægur:
Boðskapur friðar
MENNING
Hlynur Helgason
lektor í listfræði
við Háskóla Íslands
og formaður List-
fræðafélags Íslands
➜ Myndlist sem er sýnileg hefur
jákvæð áhrif á menningartengda
ferðamennsku, sem skilar þjóðar-
búinu hvað mestum tekjum.
Rödd samviskunnar
Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar
eru sannarlega löngu liðnir. Fylgið á
meðal kjósenda mælist 38,5 prósent,
samkvæmt mælingu Capacent. Það
er um þremur prósentum minna en í
síðustu könnun. Jóhanna Sigurðardóttir,
fyrrverandi forsætisráðherra, spyr hvort
til of mikils sé mælst að fjármála-
ráðherra skili lyklunum að ráðuneyti
sínu. Og ungir sjálfstæðismenn,
sem jafnan eru kallaðir rödd
samvisku Sjálfstæðisflokksins,
skora á flokksforystuna í
ályktun að slíta samstarfinu
við Framsóknarflokkinn. Svo
er bara að sjá hvort forystan
heyrir röddina.
Ríkisvernduð einokun
Ögmundur Jónasson,
þingmaður VG, gerir alvarlegar at-
hugasemdir við ákvörðun Samkeppnis-
eftirlitsins um að leggja 370 milljóna
króna sekt á Mjólkursamsöluna. Sektin
var lögð á vegna þess að MS seldi sam-
keppnisaðila hrámjólk á 17 prósenta
hærra verði en aðilum sem eru tengdir
MS. Ögmundur segir að kerfið kringum
mjólkurframleiðslu virki vel, en það
þyrfti að skoða betur fákeppni á
smásölumarkaði. Afstaða Ögmundar
virðist mótuð af þeirri skoðun að
ríkisvernduð einokun sé eitthvað
skárri en önnur einokun. Hann
þarf að skýra betur hvernig það
getur staðist.
Orð skulu standa
Már Guðmundsson
seðlabankastjóri
var gestur útvarps-
þáttarins Sprengisandur á Bylgjunni í
gær. Þar sagði hann að ekki hefði verið
staðið við gefin fyrirheit um umsamin
laun. Hann sagðist ekki hafa áttað sig
á að fá vilyrðið skriflegt, sagðist vera
vanur að starfa í umhverfi þar sem
sögð orð standa. Hann fundaði með
þáverandi forsætisráðherra, Jóhönnu
Sigurðardóttur, og taldi sig full-
vissan um að launin tækju ekki þeim
breytingum sem síðar varð. Þegar Már
var skipaður seðlabankastjóri til
ársins 2019 hafði hann á orði að
til greina kæmi að hætta áður en
skipunartíminn væri allur. Hann
sagðist ekki vera að leita sér að
öðru starfi, til þess hefði
hann ekki nokkurn tíma.
jonhakon@frettabladid.is
sme@frettabladid.is