Fréttablaðið - 06.10.2014, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 06.10.2014, Blaðsíða 18
FÓLK|HEIMILI Við fluttum úr 150 fermetra húsnæði í rétt um 40 fermetra. Undanfarið hef ég því verið að græja og gera fínt hjá okkur,“ segir Sara Hlín Hilmars- dóttir lífsstílsbloggari þegar hún er spurð út í nýjustu framkvæmdirnar á heimilinu. Meðal annars fékk svefnherbergi fjölskyldunnar andlitslyftingu. „Strákurinn okkar sefur núna inni hjá okkur og mig langaði til að gera hornið hans meira fyrir hann en tengja það samt svefnherberginu. Ég bjó því til nafnið hans úr stafaborða sem ég fékk frá Omdesign og hengdi yfir rúmið óróa eftir Fanneyju Svansdóttur, með svartri, hvítri og gulri flugvél. Svo horfði ég á þennan stóra hvíta vegg sem er við bæði höfðagaflinn okkar og hans og velti fyrir mér hvað ég ætti að gera. Við erum í leiguhúsnæði svo það má ekki mikið bora í veggi og eins fannst mér ekki heillandi að eiga á hættu að eitt- hvað gæti dottið yfir okkur ef það kæmi jarðskjálfti. Ég hafði séð skemmtilega vegglímmiða, krossa, á erlend- um bloggum og rakst svo á þá hjá Form límmiðar. Ég plataði karlinn minn í að setja þá upp og er ótrúlega ánægð með útkomuna. Hann bölvaði mér nú svolítið þegar hann hófst handa og þurfti að mæla allt út. En þó kom okkur á óvart hvað þetta var fljótlegt. Svona límmiðar eru frábærlega sniðugir til að skreyta leigu- húsnæði.“ Sara segist vera frekar mínimalísk þegar hún er beð- in að lýsa stílnum á heimilinu. Hún sé hrifin af klass- ískum hlutum og fer varlega í litaval. „Ég vil hafa alla veggi hvíta og nota frekar litla auka- hluti til að poppa upp. Ég er hrifin af svörtu og hvítu en þá er auðvelt að leika sér að því að bæta einhverju við sem er í tísku. Til dæmis passar koparliturinn sem er mikið núna vel við svart og hvítt. Það er nauðsynlegt að breyta alltaf aðeins til. Þá er svo gaman að koma heim.“ Sara Hlín hefur bloggað um innanhússhönnun, tísku og lífsstíl á www.fagurkerar.is síðasta ár auk þess að stunda stílistanám í fjarnámi við London College of Style. „Ég lýk náminu um áramótin og svo taka vonandi spennandi tímar við,“ segir Sara. SVART OG HVÍTT HEIMILI Sara Hlín Hilmarsdóttir lífsstílsbloggari er að koma sér fyrir á nýju heimili á Selfossi. Hún segir vegglímmiða sniðuga leið til að hressa upp á leiguhúsnæði þar sem síður má bora í veggi. LÍFSTÍLSBLOGG- ARI Sara Hlín Hilmarsdóttir bloggar á Fagur- kerar.is og stundar stílistanám í fjar- námi við London College of Style. SMART Sara Hlín segir nauðsynlegt að breyta reglulega til og raða hlut- unum upp á nýtt. Þá sé svo gaman að koma heim. VEGGSKREYTING „Við erum í leigu- húsnæði svo það má ekki mikið bora í veggi og eins fannst mér ekki heillandi að eiga á hættu að eitthvað gæti dottið yfir okkur ef það kæmi jarðskjálfti.“ Svartir vegglím- miðar urðu fyrir val- inu sem auðvelt er að taka niður aftur. MYNDIR/SARA HLÍN Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 10-70% afsláttur af völdum vörum Barskápar Glerskápar Skenkar Speglar Sófaborð Bókahillur Púðar Sófasett Tungusófar Hornsófar Stakir sófar Borðstofuborð Sjónvarpsskápar Fjarstýringavasar LOKADAGUR ÚTSÖLUNNAR ÍSLENSKIR SÓFAR Í ÖLLUM STÆRÐUM SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM Verð áður 428.900 kr. 99.900 kr. Sjónvarpsskápur Salsa Sjónvarpsskápur Cubic TV2 Þú sparar 40.000 kr. 19.900 kr. Verð áður 28.000 kr. 19.900 kr. *Verð á dýnu Verð með botn 99.000 kr. 69.900 kr. Dýnustærð 193x200 Þú sparar 144.900 kr. 77.000 kr. Skenkur 216,5x55x84 cm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.