Fréttablaðið - 06.10.2014, Blaðsíða 8
6. október 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Umframkostnaður vegna rann-
sókna og vöktunar í kjölfar jarð-
hræringanna í Bárðarbungu var
yfir 100 milljónir króna fyrstu
fjórar vikurnar. Vel á fimmta
hundrað manns hafa komið að
verkefninu í einhverri mynd frá
því um miðjan ágúst.
Eins og allir þekkja eru jarð-
hræringarnar í og við norð vestan-
verðan Vatnajökul einn mark-
verðasti jarðvísindalegi atburður
sem vísindamenn og almenning-
ur á Íslandi hefur orðið vitni að.
Sérstaka athygli vekur hvernig
nútímatækni hefur gert áhuga-
sömum kleift að fylgjast með þró-
uninni dag frá degi, hvort sem er
jarðskjálftahrinunni sem hófst 16.
ágúst eða eldgosunum sem síðar
fylgdu. En að baki þessu stendur
her manns frá mörgum ólíkum
stofnunum og samtökum sem sofin
og vakin hafa legið yfir verkefninu.
Á sólarhringsvakt
Sigrún Karlsdóttir, náttúruvár-
stjóri Veðurstofu Íslands, segir
að frá upphafi eldsumbrotanna
hafi jarðváreftirlitið verið á sólar-
hringsvakt og vatnaváreftirlitið
hefur verið á bakvakt allan sólar-
hringinn frá upphafi eldsum-
brotanna. Alls hafa 107 starfs-
menn stofnunarinnar komið að
verkefninu fram til þessa.
„Í þremur tilfellum hefur verið
nauðsynlegt að hafa þrjá veður-
fræðinga á vakt í tengslum við
þennan atburð. Fjöldi eftirlits-
ferða hefur verið farinn á svæðið,
þ.e. norðan við Vatnajökul, til að
koma upp fleiri mælitækjum og
auka þannig getu Veðurstofunnar
til að bregðast við og gefa út við-
varanir tímanlega til almanna-
varnaryfirvalda. Enn fremur var
nauðsynlegt að flytja færanlegu
rat sjárnar til að hægt sé að fylgj-
ast með ösku í andrúmslofti ef til
öskugoss kemur,“ segir Sigrún.
Mikilvægt hefur verið að koma
á sjálfvirkum ferlum við birtingu
mæligagna til að auðvelda allt
eftir lit og auka skilning á fram-
vindu atburðanna.
„Tölvufræðingar Veðurstof-
unnar hafa unnið þrekvirki í þess-
um efnum. Stofnunin hefur þurft
að bregðast við beiðnum frá yfir-
völdum, m.a. til að meta flóða-
hættu vegna hugsanlegs jökul-
hlaups Jökuls ár á Fjöllum og í
Skjálfandafljóti,“ segir Sigrún
en Veður stofan hefur komið upp
reiknilíkönum til að geta spáð fyrir
um dreifingu ösku og brennisteins
í andrúmslofti. Þátttaka á fundum
vísindamannaráðs Almannavarna,
íbúafundum og öðrum fundum
hagsmunaaðila hefur einnig kall-
að á mikið vinnuálag á Veðurstof-
unni sem hefur komið upplýsingum
stöðugt á framfæri við landsmenn.
Hefur stofnunin nýtt sér vefinn og
aðra miðla, s.s. Facebook, í því
sambandi. „Brýnt er að þessi þjón-
usta sé til staðar jafnt um helgar
sem á virkum dögum, sem hefur
kallað á mikið vinnuálag og yfir-
vinnu starfsmanna í upplýsinga-
kerfum og upplýsingamiðlun,“
segir Sigrún.
Allir á dekk
Stór hluti af starfsmönnum Jarð-
vísindastofnunar Háskóla Íslands
hefur komið að viðbrögðum við eld-
gosinu og atburðunum í Bárðar-
bungu með einum eða öðrum hætti.
Stofnunin er með starfsmenn á
vettvangi til að fylgjast með þróun
gossins en þær vaktir hafa minnk-
að, aðallega vegna veðurs og vegna
þess hversu lengi jarðhræring arnar
hafa staðið yfir. Margir koma að
eftirliti úr lofti og jöklamæl ingum,
vöktun með fjarkönnun, efnagrein-
ingum á bergsýnum og öðrum
sýnum, eftirliti með jarðskorpu-
hreyfingum (jarðskjálftum) og
mælingum. Einnig koma mælingar
og rannsóknir á gæðum andrúms-
loftsins og mælingar á vatni í jökul-
ám og öðrum á svæðinu við sögu.
Þegar allt er talið hjá Jarðvísinda-
stofnun og Jarðvísindadeild Háskól-
ans eru um 30 vísindamenn að
störfum auk fimm tæknimanna og
skrifstofu, og hefur stór hluti þeirra
komið að vinnu í tengslum við gosið.
Einhverjir hafa alfarið sinnt þess-
um viðbrögðum, aðrir minna. Þá eru
um 50 nýdoktorar, doktorsnemar og
aðrir tímabundið ráðnir starfsmenn
sem starfa hjá stofnunni og hefur
stór hluti þeirra einnig komið að
þessum rannsóknum.
„Það er erfitt að tilgreina ná-
kvæm lega hversu margir af okkar
starfsmönnum hafa unnið alfarið
við gosið en ætla má að um 50-60
manns í heildina hafi komið að
vinnu við þetta frá byrjun,“ segir
Svandís H. Halldórsdóttir, skrif-
stofustjóri Jarðvísindastofnunar.
Allt á einum stað
Víðir Reynisson, deildarstjóri
almannavarnadeildar Ríkislög-
reglustjóra, segir að embættið hafi
fengið það verkefni að safna saman
öllum þeim aukakostnaði sem fellur
til vegna atburðanna. „Aukakostn-
aðurinn losar 100 milljónir fyrir
fyrstu fjórar vikurnar. Þetta eru
töluverðar upphæðir sem eru að
falla til í aukakostnað og mikið enn
ótalið. Þegar þetta hefur allt verið
tekið saman verður skýrslu skilað
til ráðherranefndarinnar sem var
skipuð vegna atburðanna. Þar eru
menn að skoða þessi mál,“ segir
Víðir og bætir við að starfsmenn
deildarinnar, átta að tölu, hafi ein-
göngu unnið að verkefnum sem
tengjast jarðhræringunum frá upp-
hafi. Eins hafa tíu frá öðrum deild-
um Ríkislögreglustjóra komið að
vinnunni. „Þess utan tíu heilbrigð-
isstarfsmenn og aðrir tíu frá Rauða
krossinum og fjöldi björgunar-
sveitarmanna,“ segir Víðir.
Guðbrandur Örn Arnarson, sem
annast aðgerðamál hjá Lands-
björgu, segir að 136 björgunar-
sveitarmenn hafi komið við sögu
aðgerða; flestir við gæslu, en mikl-
um mun færri sem hafa tekið þátt
í beinum verkefnum. Þar af hafa
um 30 manns komið að aðgerða-
stjórn og starfað í samhæfingar-
stöð Almannavarna í Skógarhlíð.
Eldgosið hefur kostað 100 milljónir
Gosið einn merkasti jarðvísindalegi atburður sem vísindamenn og almenningur á Íslandi hefur orðið vitni að. Nær allir starfsmenn Jarðvís-
indastofnunar, Veðurstofunnar og Landhelgisgæslunnar hafa komið að aðgerðum, auk fjölda björgunarsveitarmanna og annarra.
■ Vegna jarðhræringanna í og við
Vatnajökul hafa á milli 90 og 100
starfsmenn Landhelgisgæslunnar
komið að aðgerðum, samkvæmt
upplýsingum frá Hrafnhildi Brynju
Stefánsdóttur upplýsingafulltrúa.
■ Flugdeild Gæslunnar hefur öll
tekið þátt með einhverjum hætti,
þ.e. flugmenn, stýrimenn í flugvél
og þyrlum, flugvirkjar og ýmsar
stoðeiningar, starfsmenn aðgerðasviðs og starfsmenn í Keflavík sem
vakta upplýsingar ratsjárstöðvanna.
■ Gæslan hefur flogið 17 ferðir yfir gosstöðvarnar. Flugvélin TF-SIF hefur
farið í 11 flug og flogið í 38 klukkustundir samtals. Þyrlurnar hafa farið
í sex flug og flogið samtals 22 klukkustundir. Þyrluflugin hafa öll verið
notuð til að flytja búnað og tæknimenn.
■ TF-SIF er búin ratsjám sem kortleggja yfirborð gosstöðvanna og
jökulsins og gerir vísindamönnum kleift að fylgjast með breytingum á
yfirborðinu og hraunflæði óháð skýjafari og birtu. Búnaðurinn getur
einnig kortlagt breytingar á mannvirkjum, svo sem vegum, brúm og raf-
magnslínum sem hugsanlega geta orðið fyrir skemmdum vegna flóða.
Þá gerir vélin vísindamönnum unnt að fylgjast grannt með dreifingu og
hæð öskustróks. Flugvélin er einnig búin hitamyndavél sem gagnast við
að meta ástandið á svæðinu og þróun mála.
HEFUR FARIÐ Í 17 FLUG VEGNA HOLUHRAUNS Brýnt er
að þessi
þjónusta sé til
staðar jafnt
um helgar
sem á virkum
dögum, sem
hefur kallað á mikið vinnu-
álag.
Sigrún Karlsdóttir náttúruvárstjóri
Í HOLUHRAUNI
Allir sem vettlingi
geta valdið innan
Jarðvísindastofn-
unar hafa komið
að vinnu vegna
jarðhræringanna.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is