Fréttablaðið - 06.10.2014, Page 8

Fréttablaðið - 06.10.2014, Page 8
6. október 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Umframkostnaður vegna rann- sókna og vöktunar í kjölfar jarð- hræringanna í Bárðarbungu var yfir 100 milljónir króna fyrstu fjórar vikurnar. Vel á fimmta hundrað manns hafa komið að verkefninu í einhverri mynd frá því um miðjan ágúst. Eins og allir þekkja eru jarð- hræringarnar í og við norð vestan- verðan Vatnajökul einn mark- verðasti jarðvísindalegi atburður sem vísindamenn og almenning- ur á Íslandi hefur orðið vitni að. Sérstaka athygli vekur hvernig nútímatækni hefur gert áhuga- sömum kleift að fylgjast með þró- uninni dag frá degi, hvort sem er jarðskjálftahrinunni sem hófst 16. ágúst eða eldgosunum sem síðar fylgdu. En að baki þessu stendur her manns frá mörgum ólíkum stofnunum og samtökum sem sofin og vakin hafa legið yfir verkefninu. Á sólarhringsvakt Sigrún Karlsdóttir, náttúruvár- stjóri Veðurstofu Íslands, segir að frá upphafi eldsumbrotanna hafi jarðváreftirlitið verið á sólar- hringsvakt og vatnaváreftirlitið hefur verið á bakvakt allan sólar- hringinn frá upphafi eldsum- brotanna. Alls hafa 107 starfs- menn stofnunarinnar komið að verkefninu fram til þessa. „Í þremur tilfellum hefur verið nauðsynlegt að hafa þrjá veður- fræðinga á vakt í tengslum við þennan atburð. Fjöldi eftirlits- ferða hefur verið farinn á svæðið, þ.e. norðan við Vatnajökul, til að koma upp fleiri mælitækjum og auka þannig getu Veðurstofunnar til að bregðast við og gefa út við- varanir tímanlega til almanna- varnaryfirvalda. Enn fremur var nauðsynlegt að flytja færanlegu rat sjárnar til að hægt sé að fylgj- ast með ösku í andrúmslofti ef til öskugoss kemur,“ segir Sigrún. Mikilvægt hefur verið að koma á sjálfvirkum ferlum við birtingu mæligagna til að auðvelda allt eftir lit og auka skilning á fram- vindu atburðanna. „Tölvufræðingar Veðurstof- unnar hafa unnið þrekvirki í þess- um efnum. Stofnunin hefur þurft að bregðast við beiðnum frá yfir- völdum, m.a. til að meta flóða- hættu vegna hugsanlegs jökul- hlaups Jökuls ár á Fjöllum og í Skjálfandafljóti,“ segir Sigrún en Veður stofan hefur komið upp reiknilíkönum til að geta spáð fyrir um dreifingu ösku og brennisteins í andrúmslofti. Þátttaka á fundum vísindamannaráðs Almannavarna, íbúafundum og öðrum fundum hagsmunaaðila hefur einnig kall- að á mikið vinnuálag á Veðurstof- unni sem hefur komið upplýsingum stöðugt á framfæri við landsmenn. Hefur stofnunin nýtt sér vefinn og aðra miðla, s.s. Facebook, í því sambandi. „Brýnt er að þessi þjón- usta sé til staðar jafnt um helgar sem á virkum dögum, sem hefur kallað á mikið vinnuálag og yfir- vinnu starfsmanna í upplýsinga- kerfum og upplýsingamiðlun,“ segir Sigrún. Allir á dekk Stór hluti af starfsmönnum Jarð- vísindastofnunar Háskóla Íslands hefur komið að viðbrögðum við eld- gosinu og atburðunum í Bárðar- bungu með einum eða öðrum hætti. Stofnunin er með starfsmenn á vettvangi til að fylgjast með þróun gossins en þær vaktir hafa minnk- að, aðallega vegna veðurs og vegna þess hversu lengi jarðhræring arnar hafa staðið yfir. Margir koma að eftirliti úr lofti og jöklamæl ingum, vöktun með fjarkönnun, efnagrein- ingum á bergsýnum og öðrum sýnum, eftirliti með jarðskorpu- hreyfingum (jarðskjálftum) og mælingum. Einnig koma mælingar og rannsóknir á gæðum andrúms- loftsins og mælingar á vatni í jökul- ám og öðrum á svæðinu við sögu. Þegar allt er talið hjá Jarðvísinda- stofnun og Jarðvísindadeild Háskól- ans eru um 30 vísindamenn að störfum auk fimm tæknimanna og skrifstofu, og hefur stór hluti þeirra komið að vinnu í tengslum við gosið. Einhverjir hafa alfarið sinnt þess- um viðbrögðum, aðrir minna. Þá eru um 50 nýdoktorar, doktorsnemar og aðrir tímabundið ráðnir starfsmenn sem starfa hjá stofnunni og hefur stór hluti þeirra einnig komið að þessum rannsóknum. „Það er erfitt að tilgreina ná- kvæm lega hversu margir af okkar starfsmönnum hafa unnið alfarið við gosið en ætla má að um 50-60 manns í heildina hafi komið að vinnu við þetta frá byrjun,“ segir Svandís H. Halldórsdóttir, skrif- stofustjóri Jarðvísindastofnunar. Allt á einum stað Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnadeildar Ríkislög- reglustjóra, segir að embættið hafi fengið það verkefni að safna saman öllum þeim aukakostnaði sem fellur til vegna atburðanna. „Aukakostn- aðurinn losar 100 milljónir fyrir fyrstu fjórar vikurnar. Þetta eru töluverðar upphæðir sem eru að falla til í aukakostnað og mikið enn ótalið. Þegar þetta hefur allt verið tekið saman verður skýrslu skilað til ráðherranefndarinnar sem var skipuð vegna atburðanna. Þar eru menn að skoða þessi mál,“ segir Víðir og bætir við að starfsmenn deildarinnar, átta að tölu, hafi ein- göngu unnið að verkefnum sem tengjast jarðhræringunum frá upp- hafi. Eins hafa tíu frá öðrum deild- um Ríkislögreglustjóra komið að vinnunni. „Þess utan tíu heilbrigð- isstarfsmenn og aðrir tíu frá Rauða krossinum og fjöldi björgunar- sveitarmanna,“ segir Víðir. Guðbrandur Örn Arnarson, sem annast aðgerðamál hjá Lands- björgu, segir að 136 björgunar- sveitarmenn hafi komið við sögu aðgerða; flestir við gæslu, en mikl- um mun færri sem hafa tekið þátt í beinum verkefnum. Þar af hafa um 30 manns komið að aðgerða- stjórn og starfað í samhæfingar- stöð Almannavarna í Skógarhlíð. Eldgosið hefur kostað 100 milljónir Gosið einn merkasti jarðvísindalegi atburður sem vísindamenn og almenningur á Íslandi hefur orðið vitni að. Nær allir starfsmenn Jarðvís- indastofnunar, Veðurstofunnar og Landhelgisgæslunnar hafa komið að aðgerðum, auk fjölda björgunarsveitarmanna og annarra. ■ Vegna jarðhræringanna í og við Vatnajökul hafa á milli 90 og 100 starfsmenn Landhelgisgæslunnar komið að aðgerðum, samkvæmt upplýsingum frá Hrafnhildi Brynju Stefánsdóttur upplýsingafulltrúa. ■ Flugdeild Gæslunnar hefur öll tekið þátt með einhverjum hætti, þ.e. flugmenn, stýrimenn í flugvél og þyrlum, flugvirkjar og ýmsar stoðeiningar, starfsmenn aðgerðasviðs og starfsmenn í Keflavík sem vakta upplýsingar ratsjárstöðvanna. ■ Gæslan hefur flogið 17 ferðir yfir gosstöðvarnar. Flugvélin TF-SIF hefur farið í 11 flug og flogið í 38 klukkustundir samtals. Þyrlurnar hafa farið í sex flug og flogið samtals 22 klukkustundir. Þyrluflugin hafa öll verið notuð til að flytja búnað og tæknimenn. ■ TF-SIF er búin ratsjám sem kortleggja yfirborð gosstöðvanna og jökulsins og gerir vísindamönnum kleift að fylgjast með breytingum á yfirborðinu og hraunflæði óháð skýjafari og birtu. Búnaðurinn getur einnig kortlagt breytingar á mannvirkjum, svo sem vegum, brúm og raf- magnslínum sem hugsanlega geta orðið fyrir skemmdum vegna flóða. Þá gerir vélin vísindamönnum unnt að fylgjast grannt með dreifingu og hæð öskustróks. Flugvélin er einnig búin hitamyndavél sem gagnast við að meta ástandið á svæðinu og þróun mála. HEFUR FARIÐ Í 17 FLUG VEGNA HOLUHRAUNS Brýnt er að þessi þjónusta sé til staðar jafnt um helgar sem á virkum dögum, sem hefur kallað á mikið vinnu- álag. Sigrún Karlsdóttir náttúruvárstjóri Í HOLUHRAUNI Allir sem vettlingi geta valdið innan Jarðvísindastofn- unar hafa komið að vinnu vegna jarðhræringanna. Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.